Síða 1 af 1

Hvar get ég fengið glerhlið?

Sent: Þri 07. Sep 2004 19:08
af xtr
Hvar get ég fengið plexi gler eða plast á chaintech kassa sem ég keypti frá task.is, Þeir eru hættir að selja hann só no link. Langar í svona bara til að skipta um hurð nenni ekkert að saga ut eða neinu veseni.

Sent: Þri 07. Sep 2004 19:26
af gumol
[Tilti breytt, lestu reglurnar í FAQ hlutanum]

Afhvejru eru menn sem hafa verið lengi hérna á vaktinni ekki farnir að læra þetta? Það á að hafa lýsandi titil á brefunum.
"Hvar get ég fengið?" er ekki nógu góð lýsing á innihaldi þessa bréfs.

Sent: Þri 07. Sep 2004 20:05
af Hlynzi
Fáðu einhvern járnsmið (blikkara) til þess að saga í kassann fyrir þig, farðu svo í Akron og biddu þá um plexí gler, 4 mm og saga hana bara ca. eftir málunum á gatinu, og límdu hana svo bara í, og skrúfaðu plastið fast með 4 skrúfum eða fleirum, svo það lúkki flott.

Sent: Þri 07. Sep 2004 22:43
af BlitZ3r
það sem þú þarft

1x stingsög

1x Pexigler bútinn (getur latið snýða hann hjá þeim sem þú kaupir)

1x túspenna og tússar á bakhliðinna og saga svo eftir því

1x límkítti/sílikonlím eða eitthvað og kíttar bakhliðinnna og setur svo plexiglerið á og lætur þungan hlut á og lætur vera þannig í nokkra tíma

þetta getur orðið erfitt ef þú átt engin tól óg tæki (Pabbi er með bílskúrin fullan tækjum :) )

Sent: Mið 08. Sep 2004 09:44
af Icarus
glerhliðar fyrir dragon kassa fást t.d. í tölvulistanum :)

Sent: Þri 07. Des 2004 18:08
af iceolpack
En hvernig kemur maður sögini inn?

Sent: Þri 07. Des 2004 18:11
af viddi
bora lítið gat, stinga svo söginni inn og byrja að saga, ekki erfitt :wink:

Sent: Þri 07. Des 2004 23:57
af MezzUp
viddi skrifaði:bora lítið gat, stinga svo söginni inn og byrja að saga, ekki erfitt :wink:

Það er heldur ekki erfitt að lesa reglurnar, en þó ofviða sumum ;)

Sent: Mið 08. Des 2004 00:28
af Icarus
MezzUp skrifaði:
viddi skrifaði:bora lítið gat, stinga svo söginni inn og byrja að saga, ekki erfitt :wink:

Það er heldur ekki erfitt að lesa reglurnar, en þó ofviða sumum ;)



það var hinn gaurinn sem vakti upp þráðinn... ef þú skoðar þetta betur svo viddi er saklaus :)

Sent: Mið 08. Des 2004 01:43
af gumol
Hann var ekki að tala um vidda :)

Sent: Mið 08. Des 2004 15:54
af iceolpack
ég á stingsög en hvað á blaðið í henni að vera þykkt? og á Plexiglerið að vera 4mm?