Síða 1 af 1
Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 21:33
af bluntman
Sælir, hafið þið eitthvað verið að standa í að kaupa kassa sjálfir ?
Ég fann nefnilega draumakassann:
http://www.fractal-design.com/?view=product&prod=99Mig langar fáránlega mikið í þennan, en sé hann ekki á Íslandi, hafa menn verið að standa í að panta sjálfir og er það dýrara/ódýrara ?
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 21:41
af Klaufi
Ég keypti Fractal Design Arc Mini, kostaði að mig minnir um 18k kominn heim.
Og einn Core 1000 sem endaði í einhver 12k ef ég man rétt..
Svo þú hafir einhvern samanburð.
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 21:55
af Jimmy
Þessi kassi var til sölu hjá annað hvort Tölvuvirkni eða Start, maniggi alveg, fyrir nokkrum vikum, fyi.
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 21:56
af siggi83
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 21:59
af bluntman
Já, veit allt um það. Hann er hinsvegar búinn hjá tölvuvirkni, og kemur víst ekki aftur. Start sögðust fá kassann með glugga en hafa ekki svarað mér síðan. Myndi helst vilja sleppa glugganum.
Einhverjar góðar síður sem þið getið bent á ?
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 22:07
af siggi83
NCIXeru byrjaðir að senda um allan heim.
Hér er hann með glugga.
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 22:14
af worghal
Pantadi bitfenix shinobi xl fra hollandi og thad endadi i einhverjum 32thus
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 22:26
af Squinchy
Frá hvaða síðu varstu þá að panta ?, er einmitt sjálfur að leita að R4 en það virðist vera þannig að tölvu verslanir vilji frekar að maður panti hlutina bara sjálfur heldur en að styrkja þá
Klaufi skrifaði:Ég keypti Fractal Design Arc Mini, kostaði að mig minnir um 18k kominn heim.
Og einn Core 1000 sem endaði í einhver 12k ef ég man rétt..
Svo þú hafir einhvern samanburð.
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 22:44
af AciD_RaiN
Ég er búinn að versla nokkra kassa frá
www.highflow.nl og ef hann er ekki á síðunni þá bara sendirðu mail á
sales@highflow.nl og Freddy græjar þetta
Búinn að vera að varsla þar í hverjum mánuði síðan í mars í fyrra
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 22:45
af Hvati
Start eru víst að fá þessa Define R4 á lager á næstunni, veit ekkert verð.
Annars er ég að pæla í að fá mér þennan, lítur helvíti vel út
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 23:21
af Saber
siggi83 skrifaði:NCIXeru byrjaðir að senda um allan heim.
Hér er hann með glugga.
Sorry OT, en ég get einungis valið US og Canada þegar ég skrái mig. Hefur þú pantað frá þeim?
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Mið 16. Jan 2013 23:45
af Arnarmar96
NCIX sendir ekki til íslands :c þeir ætla að skoða möguleikann samt
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Fim 17. Jan 2013 05:20
af stefan251
það eru kominn 3 ár síðan ég flutti in kassa antec 1200 það hefði kostað mig 35000kr að senda hann heim með fedex vegna þess hann var stór og þungur ég ætla ekki að flyta inn kassa aftur sjálfur en það er mitt álit
http://store.antec.com/Product/enclosur ... 120-7.aspx
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Fös 18. Jan 2013 13:33
af Squinchy
Hvati skrifaði:Start eru víst að fá þessa Define R4 á lager á næstunni, veit ekkert verð.
Annars er ég að pæla í að fá mér þennan, lítur helvíti vel út
Samkvæmt start þá munu þeir ekki fá þessa kassa
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Fös 18. Jan 2013 16:02
af siggi83
Arnarmar96 skrifaði:NCIX sendir ekki til íslands :c þeir ætla að skoða möguleikann samt
Þeir voru að byrja að senda um allan heim.
Var að panta harðandisk um daginn og það var ekkert mál að velja Ísland.
Re: Að kaupa kassa erlendis frá
Sent: Fös 18. Jan 2013 22:12
af Hvati
Ég talaði við Highflow og eru þeir búnir að bæta kassanum við vörulistan sinn:
http://www.highflow.nl/behuizingen/frac ... black.html