Síða 1 af 1
hiti á skjákorti
Sent: Mið 03. Okt 2012 21:48
af Sphinx
var að kaupa notaða MSI GX640 fartölvu og hitinn á skjákortinu er alveg í 59-61°C bara ef ég er á facebook og ef ég set skjakortið i stress test þá fer það bara uppí 64°c
er ekki eitthvað skrítið við þetta ? það er eins og skjakortið sem alltaf undir svaka álagi
edit: ný rykhreinsuð og nýtt kælikrem
Re: hiti á skjákorti
Sent: Mið 03. Okt 2012 22:21
af playman
Skjákortin eru alltaf heitari en örgjafarnir.
að hitin hækki um 5-3 gráður í stress testi er ekki neitt.
Re: hiti á skjákorti
Sent: Mið 03. Okt 2012 22:35
af Sphinx
ég setti tölvuna núna i samband við rafmagn og þá ríkur hitinn alveg uppí 84°C i benchmark
Re: hiti á skjákorti
Sent: Mið 03. Okt 2012 23:02
af playman
Prófaðu að googla MSI GX640 gpu heat
svona það sem að ég sá var að það var mest talað um BIOS og GPU driver uppfærslur.
Það eru margir að lenda í því sama og þú, hérna er t.d. einn sem var að fá 90-110 gráður
http://www.youtube.com/watch?v=Z1HBcZdLCt4Svo virðist sem að það eru bara tvær leiðir til þess að laga þetta.
Láta skipta um kælingu (spurning hvort að það fallist undir ábyrgð, vegna framleiðslu galla)
Kaupa þér svona græju
http://tolvutek.is/vara/thermaltake-coo ... -og-raudur
Re: hiti á skjákorti
Sent: Mið 03. Okt 2012 23:33
af Glazier
playman skrifaði:Skjákortin eru alltaf heitari en örgjafarnir.
að hitin hækki um 5-3 gráður í stress testi er ekki neitt.
Held þú sért að misskilja..
Er hann ekki að tala um að það sé svo lítill munur á idle load og full load að það sé eins og skjákortið sé að reyna á sig þegar það á að vera idle og sé þessvegna að keyra næstum jafn heitt og þegar það er undir full load?
Re: hiti á skjákorti
Sent: Mið 03. Okt 2012 23:48
af Daz
Sphinx skrifaði:ég setti tölvuna núna i samband við rafmagn og þá ríkur hitinn alveg uppí 84°C i benchmark
Skjákortið er í power-saving mode þegar þú ert á batteríinu myndi ég giska á. Líklega hefur benchmarkið skilað mun hærri niðurstöðu í rafmagni en á batteríi?
Re: hiti á skjákorti
Sent: Fim 04. Okt 2012 00:11
af Sphinx
Daz skrifaði:Sphinx skrifaði:ég setti tölvuna núna i samband við rafmagn og þá ríkur hitinn alveg uppí 84°C i benchmark
Skjákortið er í power-saving mode þegar þú ert á batteríinu myndi ég giska á. Líklega hefur benchmarkið skilað mun hærri niðurstöðu í rafmagni en á batteríi?
já, samt alltaf sama hiti i idle, sama hvort ég sé á batterý eða i rafmagni
bara með google chrome og speedfan opið
Re: hiti á skjákorti
Sent: Fim 04. Okt 2012 00:53
af Hnykill
Ef þú færð ekki galla og artifacts, myndbrengl og rugl þá er skjákortið alveg að standa undir væntingum.. og bara eðlilegt hitastig þannig lagað. Átti t.d. ATI 4870 sem var ekki undir 100C° í full load.. virkaði samt alveg eins og það átti að gera.
Þegar kortið fer að klikka, þá máttu fara hafa áhyggjur.. en ef þú ert ekki að fá neit myndbrengl eða neitt, þá er þetta í góðu máli.. sumt af þessu tölvudóti þolir alveg suðumark
, svo ekkert stress alveg strax
Re: hiti á skjákorti
Sent: Fim 04. Okt 2012 01:06
af kubbur
Er með 4870x2 og það idlar i 80