Síða 1 af 1

Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 00:30
af Danni V8
Ég var að rífa í spað gamlan 19" Acer LCD skjá sem að virkaði að öllu leiti nema að VGA portið var hægt að taka við signali, þannig hann sýndi alltaf "No Signal" sama hvað var tengt í hann. Ég er búinn að harvesta nokkra hluti úr honum til að nota í ljósmyndun, fann þessar fínu plast filmur eða hvað þetta nú er inní skjánnum.

En ég tók líka perurnar úr skjánnum. Það eru tvær lengjur með tveim fluorescent perum hvor. Þær virka báðar.

Mynd

Á þessari mynd sjást perurnar tvær efst. Vinstri platan er með rafmagns inngangnum og það kemur ekkert ljós á perurnar nema hægri platan sé tengd við, en VGA portið er á henni líka.

Þegar ég tengi í rafmagn kviknar á perunum í nokkrar sek, síðan slökkna þær aftur þar sem skjárinn finnur ekkert signal.

Það sem mig langar að gera er að nota þessar perur einhvernveginn, hvernig sem það er best að fara að því. Venjulegar fluorescent perur í loftljósum eru með störtörum, nema USA perur þær eru með innbyggðum störturum en þessar eru of litlar fyrir innbyggða. Þarf þessa startara fyrir svona perur eða er nóg að finna hvaða volt þær þurfa, útbúa spennubreytir sem sendir út í þeim voltum og tengja síðan ljósin? Eða þarf ég að nota þessar prentplötur og mixa þær einhverveginn? Ef það er hægt að nota þessar perur, er hægt að vera með birtustillir á þeim?

Ef einhver veit þetta, eru svör vel þegin! Ég er ekki hræddur við að taka upp lóðbolta og fikta mig áfram ef þess þarf.

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 00:39
af worghal
VGA port* :-"

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 00:44
af Danni V8
Haha. Úps :P

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 01:04
af Arnzi
Alltaf góð afsökun til að rífa gamalt bilað dót í sundur, "harvesta" :megasmile

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 17:56
af Danni V8
Arnzi skrifaði:Alltaf góð afsökun til að rífa gamalt bilað dót í sundur, "harvesta" :megasmile


:D Ég var alveg rosalega forvitinn að sjá hvernig skjáir eru byggðir upp og komst að því að það er fullt af dóti sem er hægt að nota í ljósmyndun t.d. Pabbi er mikið í ljósmyndum og ég gaf honum næstum allt sem var þarna inní og hann var alveg hæst ánægður.


En er enginn með hugmyndir varðandi hvernig ég get fengið þetta ljós til að virka án þess að fá signal frá VGA kapli?

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 20:51
af arons4
Grunar að hægri platan sendi út merki á einni línunni í vga snúrunni og fái það til baka á annari, gæti mögulega verið nóg að tengja bara eitthvað á milli réttra gata(eins og er gert til að fá powersupply í gang án móðurborðs).
http://en.wikipedia.org/wiki/VGA_connector
Getur vel verið að þetta sé alger vitleysa.

EDIT: Hvað segir smáa letrið við snúruna sem tengir plöturnar saman?

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 20:59
af Gúrú
Ég er kannski vangefinn að giska á það að jarðtengingin fari í gegnum allt vinstra borðið, fari síðan yfir í litla borðið með VGA tenginu og
þaðan aftur í vinstra borðið og þaðan í jarðvírinn á 3PIN rafmagnssnúrunni, en ég geri það samt. :-"

Það eru jú tveir svartir vírar sem að liggja í hægra borðið. :-k

Prófaðu að tengja þessa tvo víra sem að eru annars tengdir saman af tveimur svörtu vírunum í hægra borðið saman á vinstra borðinu ef þú
vilt giska á það með mér. :) Engin ábyrgð tekin ef að þetta steikir borðið. :japsmile

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 21:54
af Danni V8
Tók close-up að vírunum sem liggja í minni prentplötuna:

Mynd

Hvað ætti ég að tengja við hvað? :D

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Mán 13. Ágú 2012 21:56
af Gúrú
Aftengja snúrurnar sem að eru allar í sama stykkinu frá socketinu. (Taka það úr, ekki fjarlægja vírana frá hvorum öðrum eða neitt)

Tengja saman pinnana sem að fara í vírana með svörtu húðinni með einhverjum vír án þess að það snerti hina pinnana.

Ég er mjög vongóður að þetta muni virka horfandi á útskýringarnar á tengjunum þar sem að GND (6. og 3.) hljómar eins og stytting á GROUND. (Slot 6 og 3 eru svörtu) :D

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Sun 19. Ágú 2012 18:48
af Gúrú
Upp og segðu hvernig fór vegna þess að ef að mín uppástunga virkaði þá ætla ég að kaupa handa mér ca. hús í verðlaun. :lol:

Re: Smá brainstorm með ljós úr tölvuskjá.

Sent: Þri 21. Ágú 2012 18:48
af Danni V8
Er ekki ennþá búinn að finna vír sem er nógu grannur til að tengja í þetta stykki. Skal fara í þetta í kvöld og reyna að finna eitthvað úr þessu.