Síða 1 af 1

Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 19:53
af upg8
Er með kassa sem ég er að reyna að nútímavæða. Eins og ég keypti hann þá voru 2 viftur framaná (1x 120mm og 1x 80mm) og ein 120mm að aftan. Aflgjafinn er efst í kassanum.

Ég er búinn að skera fyrir 2x 120mm viftum í botninn, æta að skera fyrir 140mm efst og þá er ég að hugsa um að setja stálplötur fyrir aflgjafannn og skera fyrir loftflæði sérstaklega fyrir hann. Þá mun ég líklegast setja stóra viftu á hliðina. Væri betra að hafa eitthvað öðruvísi?

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 19:59
af AciD_RaiN
Fáum við engar myndir??

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:09
af upg8
er að hugsa c.a um eitthvað svona

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:16
af Victordp
Hvernig kassi er þetta ?

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:17
af upg8
það eru engar merkingar á honum, keypti hann í Hugveri fyrir nokkrum árum, eitthvað noname bara.

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:19
af AciD_RaiN
Mjög líkur thermaltake xaser kassa. Mjög fínir kassar í að æfa sig á því álið í þeim er svo mjúkt. Hafðirðu hugsað þér að breyta eitthvað litnum á honum?

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:24
af chaplin
Ertu að íhuga að láta top viftunar blása niður? :?

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:25
af mundivalur
Þetta verður helvíti fínt loftflæði :D og sprauta svart eða Gull :guy

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 25. Jún 2012 20:46
af upg8
chaplin skrifaði:Ertu að íhuga að láta top viftunar blása niður? :?

Nei kassinn er á hvolfi á þessari mynd, ef ég hefði snúið honum við í tölvunni þá hefði verið eins og kaassinn væri fastur í loftinu en ekki á gólfinu :)

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mið 15. Ágú 2012 17:30
af upg8
Framhliðin í smíðun...
vidur.jpg
vidur.jpg (64.94 KiB) Skoðað 1637 sinnum


grunnur.jpg
grunnur.jpg (40.92 KiB) Skoðað 1637 sinnum

Fyrsta umferð af grunninum...

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mið 15. Ágú 2012 17:36
af AciD_RaiN
Mjög töff. Hefði verið eitthvað vitlaust að nota trefjaplast eða ál í framhliðina??

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mið 15. Ágú 2012 17:41
af upg8
Það hefði verið hægt að gera eitthvað töff með trefjaplasti eða áli en ég átti þessa spítu til og varð að finna eitthvað gagn fyrir hana svo hún væri ekki að þvælast fyrir mér :) Ætla að mála þetta svart og svo set ég taufilter yfir allt svo þetta með heftibyssu. Á að lúkka eins og hátalari og ætti ekki mikil hindrun fyrir loftflæði. +Auðvelt að dusta rykið af þessu efni sem ég er með. Er byrjaður að pússa kassann að innan og ætla að lakka hann í svörtu eða dökkum gráum.

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mið 15. Ágú 2012 22:46
af littli-Jake
Er sniðugt að hafa allt innflæðið af gólfinu?

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mið 15. Ágú 2012 22:54
af upg8
Á eftir að setja fætur undir tölvuna og það verður filter fyrir innflæðinu af gólfinu. Hiti leitar uppávið. Kassinn býður varla uppá að hafa negative pressure svo hugsanlega mun ég setja viftu líka í 5.25" hólfið sem sýgur inn loft.

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Fim 16. Ágú 2012 00:50
af AciD_RaiN
littli-Jake skrifaði:Er sniðugt að hafa allt innflæðið af gólfinu?

Þetta skipulag á loftflæðinu meikar lang mestan sense imo...

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Fim 16. Ágú 2012 08:53
af Viktor
Skemmtilegt project, fylgist með.

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Fim 16. Ágú 2012 22:39
af upg8
svart.jpg
svart.jpg (38.05 KiB) Skoðað 1396 sinnum

Eftir að pússa svolítið þegar þornar og mála aðra umferð...

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Sun 19. Ágú 2012 20:24
af upg8
hjologfleira.jpg
hjologfleira.jpg (63.82 KiB) Skoðað 1356 sinnum

Hérna er efnið sem ég mun "bólstra" þetta með. Það verður mjög strekt og slétt. Búinn að saga plötu til að hafa á bakvið.

rofagot.jpg
rofagot.jpg (65.33 KiB) Skoðað 1356 sinnum

Þar sem ég fann ekki rofana sem fylgdu upphaflega með kassanum þá bjó ég bara til pláss fyrir hefðbundna spilakassarofa... á eftir að búa til rauf fyrir snúrurnar.

Re: Ongoing mod á plain kassa.

Sent: Mán 20. Ágú 2012 13:24
af upg8
fram.jpg
fram.jpg (88.54 KiB) Skoðað 1302 sinnum

Fer að verða tilbúið...