Síða 1 af 1

Val á aflgjafa

Sent: Sun 24. Jún 2012 23:49
af CurlyWurly
Sælir, er að reyna að ákveða hvernig aflgjafa ég vil hafa í buildinu mínu. Vil helst að það sé möguleiki að keyra GTX 560 Ti í SLI, overclock er ekki nauðsyn. Er búinn að vera að skoða Tacens Radix V 750W og Corsair GS700 og veit ekkert hvor er betri valmöguleiki, þó að Tacensinn sé talsvert ódýrari.
Verð með þetta í CM 690II Advanced þannig það er líklegt að ég láti viftuna snúa niður til að taka inn kalt loft að utan í stað þess að fá það heitt inn úr kassanum.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 00:18
af AciD_RaiN
Þessi býður upp á SLI og er semi modular http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=3142

Bara hugmynd ;)

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 00:31
af Svansson
Er einmitt með sama turninn og er líka að leita mér á aflgjafa, haha er búin að kynna mér gs700 en held að þessi hx650 sé ekki a klikka og er betri kostur

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 00:52
af CurlyWurly
Og ræður 650W aflgjafi við SLI á svona kortum? þetta er reyndar Corsair sem mér skilst að sé einn besti PSU framleiðandinn :D

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 01:06
af chaplin
Nokkuð viss um að Corsair HX650 ræður leikandi við tvö GTX560 Ti. :happy

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 01:07
af AciD_RaiN
CurlyWurly skrifaði:Og ræður 650W aflgjafi við SLI á svona kortum? þetta er reyndar Corsair sem mér skilst að sé einn besti PSU framleiðandinn :D

Samkvæmt því em ég hef skoðað þá eru 600W nóg
http://www.guru3d.com/article/geforce-g ... -review/14

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 01:08
af CurlyWurly
Jæja, þá er ég farinn c.a. 8000 þús yfir budgetið sem ég var upphaflega með á aflgjafa... Held ég sjái bara ekkert eftir því \:D/

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 01:11
af worghal
corsair er ekkert nema gæði þessa dagana :happy

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 01:12
af AciD_RaiN
CurlyWurly skrifaði:Jæja, þá er ég farinn c.a. 8000 þús yfir budgetið sem ég var upphaflega með á aflgjafa... Held ég sjái bara ekkert eftir því \:D/

Nei trúðu mér þú munt sko ekki sjá eftir því...

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 07:29
af bulldog
það er bara must að eyða auka í almennilegann aflgjafa ekki koma eitthvað no name rusl

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 16:38
af CurlyWurly
Var bara svo hræddur um að 650W myndu ekki vera nálægt því að duga, en fyrst svona margir vaktarar koma saman og segja það ásamt anandtech þá verð ég bara að trúa því! Ég er strax farinn að slefa yfir tilhugsuninni við að hafa þetta í tölvunni í staðinn fyrir eitthvað no name dóterí!

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 17:05
af AciD_RaiN
Gott dæmi um hvað þessir noname aflgjafar geta verið hættulegir http://www.youtube.com/watch?v=MCuKM6Ux ... ploademail

Lítur rosa flott út samt.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 22:45
af CurlyWurly
Eru snúrurnar ekki alveg pottþétt nógu langar fyrir CoolerMaster 690 II Advanced? Hlýtur að vera einhver hérna sem að er a.m.k. með svipað langar snúrur og veit þetta. Gekk illa að fá google til að sýna mér nothæfar niðurstöður fyrir þetta :-"

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 22:49
af worghal
CurlyWurly skrifaði:Eru snúrurnar ekki alveg pottþétt nógu langar fyrir CoolerMaster 690 II Advanced? Hlýtur að vera einhver hérna sem að er a.m.k. með svipað langar snúrur og veit þetta. Gekk illa að fá google til að sýna mér nothæfar niðurstöður fyrir þetta :-"

jú, þær eiga að vera nógu langar.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 22:54
af Xovius
http://www.youtube.com/watch?v=MCuKM6Ux4B4
Basically video um hvað það er sniðugt að eyða svoldið meira og fara í almennilegt quality brand :)

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 22:58
af AciD_RaiN
Xovius skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=MCuKM6Ux4B4
Basically video um hvað það er sniðugt að eyða svoldið meira og fara í almennilegt quality brand :)

Ég linkaði á nákvæmlega þetta myndband hér að ofan ;)

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mán 25. Jún 2012 23:05
af Xovius
AciD_RaiN skrifaði:
Xovius skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=MCuKM6Ux4B4
Basically video um hvað það er sniðugt að eyða svoldið meira og fara í almennilegt quality brand :)

Ég linkaði á nákvæmlega þetta myndband hér að ofan ;)

Afsakið letina, ég las í gegnum meirihlutann af þessu :D

Re: Val á aflgjafa

Sent: Þri 26. Jún 2012 18:45
af CurlyWurly
Var að skoða aflgjafann á Corsair síðunni og fann þessa frétt frá 5. júní í ár sem að segir í stuttu máli að HX serían sé núna orðin gold certified og komin með 140mm ball-bearing viftu (veit ekki hvort hún var fyrir) og svo er aflgjafinn líka stilltur til þess að kveikja ekki á viftunni til að kæla fyrr en þegar það er komið upp í eitthvað X mikið vött, sem ég held að sé alltaf um 20%.
Veit einhver hérna hvort þessi útgáfa sé komin í búðir hérna á klakanum, eða bara hvort hún er komin í búðir almennt? Væri voða næs að fá þessa litlu auka-fítusa.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Þri 26. Jún 2012 20:46
af Xovius
CurlyWurly skrifaði:Var að skoða aflgjafann á Corsair síðunni og fann þessa frétt frá 5. júní í ár sem að segir í stuttu máli að HX serían sé núna orðin gold certified og komin með 140mm ball-bearing viftu (veit ekki hvort hún var fyrir) og svo er aflgjafinn líka stilltur til þess að kveikja ekki á viftunni til að kæla fyrr en þegar það er komið upp í eitthvað X mikið vött, sem ég held að sé alltaf um 20%.
Veit einhver hérna hvort þessi útgáfa sé komin í búðir hérna á klakanum, eða bara hvort hún er komin í búðir almennt? Væri voða næs að fá þessa litlu auka-fítusa.

Er ekki bara málið að fara að senda pósta á tölvufyrirtækin :) þeir eru yfirleitt mjög hjálplegir í að koma með svör...

Re: Val á aflgjafa

Sent: Þri 26. Jún 2012 20:52
af CurlyWurly
Xovius skrifaði:

Mér var ekki búið að detta það í hug, það er bara fjári góð hugmynd. Takk fyrir þessa ábendingu :D

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mið 27. Jún 2012 01:39
af Steini B
Ég er mjög sáttur með gæðin hjá Corsair.
Er með SSD, PSU, RAM og CPU kælingu frá þeim og langar að bæta við kassa, lyklaborð og mús í pakkann...

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mið 27. Jún 2012 22:27
af CurlyWurly
Ég sendi mail á þær síður sem að eru að selja HX aflgjafana og tvær þeirra söguðst ekki búast við því að fá nýju útgáfurnar í bráð en frá start fékk ég eftirfarandi bréf til baka:

Þessi er ekki kominn á lager hjá Dreifingaraðila Corsair í þýskalandi.
En hann er væntanlegur þar.
Við erum með pöntun í gangi.
Endilega vertu í bandi við okkur á Mánudag í næstu viku.

Kv
Gunnar Andri Kristinsson

Ég hef samband við þá aftur á mánudag eða þriðjudag og læt ykkur vita hvernig staðan verður þá, bara svona fyrir ykkur sem að eruð áhugasamir :megasmile