Síða 1 af 1

Coolermaster Hyper 6

Sent: Mið 21. Júl 2004 14:11
af tran
Bara svona heads up, ég hringdi í tölvulistann áðan og þeir geta sérpantað Coolermaster Hyper 6 heatsink/viftu fyrir þig..
Besti AMD/P4 heatsinkurinn á markaðinum í dag, tekur meira segja thermalright sp-94/97.. næstum kíló af kopari með 6 heatpipes :p

kostar 6999 í sérpöntun hjá þeim.. minn kemur eftir 2-4 vikur :>
ég ætlaði fyrst að panta að utan en það átti að kosta rúmlega 65 pund með sendingarkostnaði og EKKI með vsk.. sagði nei takk við því :P

Sent: Mið 21. Júl 2004 15:05
af Mysingur
ertu með mynd af kvikindinu ?

Sent: Mið 21. Júl 2004 15:44
af tran

Sent: Mið 21. Júl 2004 15:50
af axyne
shit þetta er geggjaður hlunkur !

Sent: Mið 21. Júl 2004 15:58
af Pectorian
Þetta er klikkað :lol:

Sent: Mið 21. Júl 2004 16:19
af MezzUp
wow...... ég myndi ekki þora að hafa þetta nema með móðurborðið liggjandi

Sent: Mið 21. Júl 2004 18:20
af Zkari
Djö**** er þetta stórt :shock:

Sent: Mið 21. Júl 2004 18:28
af Snorrmund
Er enginn hætta á því að þetta eyðileggji móðurborðið utaf þunga?

Sent: Mið 21. Júl 2004 18:36
af tran
það fylgir sér bracket til að mounta þetta með.. það er í fínu lagi að nota þetta en það ætti að fara varlega með tölvuna þegar hún er færð á milli staða, helst að taka heatsinkinn af mundi ég halda...

Sent: Mið 21. Júl 2004 19:18
af Steini
Það er bara leiðindavesen, ef þeir ætla að hafa þetta flykki þá þurfa þeir að vera vissir um að þetta haldist á

Sent: Mið 21. Júl 2004 21:04
af gulligu
Er þetta toppurinn og er þetta að virka mun betur en blómið?

Sent: Fim 22. Júl 2004 08:41
af Bendill
gulligu skrifaði:Er þetta toppurinn og er þetta að virka mun betur en blómið?


Svo er víst. Þetta heatsink er búið að slá öllum hinum við skilst mér. Ég myndi aldrei treysta þessu, bracket eða ekki. Þótt þú sért með bracket er þetta samt að setja álag á móðurborðið sem það er ekki gert fyrir... það er mín skoðun að minnsta kosti :P

Sent: Sun 25. Júl 2004 12:21
af Hlynzi
Þetta er rosalegur hlunkur, og ég myndi nú bara setja keðju og festa hana í kassann, til að minka álagið á móðurborðinu, þá líka þolir þetta flutninga og þessháttar.

.

Sent: Mán 26. Júl 2004 14:59
af DaRKSTaR
þetta er svakalegt!.. úff..

myndi leggja kassann á hliðina með þetta dæmi á örranum, finndist að þetta stikki ætti að vera boltað í kassann, hehe..

fest í psu.. boltað við lokið.. segi svona :D

Sent: Mán 26. Júl 2004 15:11
af Pandemic
Intel segir 450g held ég max :lol: