Síða 1 af 1
Loftkæling til gamans
Sent: Fös 15. Jún 2012 22:03
af upg8
Ég bjó til þessa loftkælingu í dag úr drasli sem var til heima og var ónotað. Ætli það hafi ekki farið svona 40 mín í að gera þetta. Hitapípurnar fékk ég úr gamalli HDD kæligrind.
Klúturinn fyrir ofan er til að fela þetta enda forljótt
Re: Loftkæling til gamans
Sent: Mið 18. Júl 2012 14:18
af Viktor
Fyndin pæling. Væri sniðugt að tengja þetta við rennandi vatn, t.d. vask.
Re: Loftkæling til gamans
Sent: Mið 18. Júl 2012 14:25
af upg8
þetta virkaði þrátt fyrir að ég hefði gleymt því að nota salt. Það er hægt að gera margt betur og það er gaman að fikta. Eina ástæðan fyrir að ég gerði þetta svona er að ég var að reyna að klára þetta á sem skemmstum tíma og það mátti ekki kosta mig neitt. Mæli með stærri viftu nema þetta eigi bara að vera fyrir 1 hehe. Var líka ekki með ísmola og fyllti þessvegna flöskur af vatni og setti í frost, setti vatn útí. Tók þetta í sundur strax eftir notkun þannig að ég gerði ekki neinar tilraunir til að bæta þetta.
Re: Loftkæling til gamans
Sent: Mið 18. Júl 2012 17:18
af vesley
Sniðugt, en alveg merkilega ljótt
Re: Loftkæling til gamans
Sent: Mið 18. Júl 2012 17:41
af upg8
haha, satt... þessvegna var ég með þetta gardínuefni ofaná, lyfti því bara frá meðan ég tók myndina.
Re: Loftkæling til gamans
Sent: Mið 18. Júl 2012 20:38
af mundivalur
Umm hvað ertu að kæla !
Re: Loftkæling til gamans
Sent: Mið 18. Júl 2012 21:09
af upg8
sjálfan mig