Síða 1 af 1

Gluggahlið og snúrur

Sent: Þri 20. Júl 2004 12:20
af Andri Fannar
Halló. Ég er með kassa með gluggahlið og allar þessar snúrur úr psu-inu eru svo fáránlegar , hvað gerið þið til að fela þær og ide snúrurnar ? :oops:

btw hér er mynd af kassanum ( ljósin sjást illa útaf birtu )

Sent: Þri 20. Júl 2004 12:26
af Stutturdreki
Well.. ég er ekki með gluggahlið þannig að ég loka bara kassanum :)

Annars eru vel flestar búðirnar hérna með Round IDE kapla, alger snild hvort sem þú ert með glugga eða ekki því þessir gömlu eru frekar óheppilegir í alla staði.

Ef þú vilt gera molex tengin og snúrurnar eitthvað meira aðlaðandi (ef einhver skildi vera að horfa inn um gluggan þinn..) þá er hægt að kaupa lituð UV molex tengi og svo hef ég séð einhverstaðar (amk á netinu) svona kit til að vefja rafmagnssnúrurnar.

Sent: Þri 20. Júl 2004 12:29
af Andri Fannar
ok takk fyrir það en veit einhver hvernig ég tengi vifturnar í gluggahliðinni í móbóið svo ég geti stýrt hraðanum ?

Sent: Þri 20. Júl 2004 12:33
af Stutturdreki
btw.. ég tók líka molex tengin sem ég nota ekki og batt þau 'upp'.. þannig að þau hanga ekki svona út um allann kassa.

Og það er ekkert víst að móðurborðið þitt styðji svona margar viftur.. mitt tekur td. bara 3 (þar með talið örgjörva viftan).. Annars eru þetta lítil þriggja pinna tengi.. skal sjá hvort ég finn mynd að þessu einhverstaðar. (Ættir að finna allt um þetta í manualnum með móðurborðinu þínu).

Edit: Aopen er alltaf með góðar leiðbeiningar.. kíktu á http://www.aopen.nl/tech/eig/mb/ax4cmax ... i-eg-e.pdf, síðu 3 "Installing CPU & System Fan". Staðsettningarnar eru bara líklega aðrar en á þínu móðurborði..

Getur gert þetta

Sent: Þri 27. Júl 2004 00:04
af FilippoBeRio
Þú getur gert svona. Þetta keypti ég í Start.is á 1500 kall svo er task.is með þetta á 1990 held ég

Eitt sem þú vilt gera ef þú ætlar að gera þetta.. vera þolinmóður og ekki klippa í sundur power kapalin í móðurborðið ( eins og einhver gerði :lol: )
Have fun ;)

Sent: Þri 27. Júl 2004 00:38
af Pandemic
sumir setja snúrunar fyrir aftan móbóið sem ég sé ekki tilgangin með. Ég er með Vantec sleeving kit tók alls 4-5 tíma að setja á alla kaplana tók myndir og merkti og vesein þannig að ekkert myndi steikjast síðan er ég með ströp og fel margar snúrur með því að þræða kaplana eftir hliðunum þannig að þeir birtast ekki í kassanum síðan er oft hægt að henda bara köplum sem þú notar ekki inn í 5/4 drive bay sjást ekkert þar. passa bara að vera ekki með opna víra á járninu. Síðan eins og ég gerði á gamla psu að ég tók það í sundur og lóðaði bara snúrurnar sem ég þurfti ekki af var reyndar ónýtt 3 mán seina vegna viftu henti því passa sig bara á rafmagninu í PSU-inu.

Sent: Þri 27. Júl 2004 00:46
af Birkir
Já, hérna hvernig væri að teipa þetta bara? :lol:

Sent: Þri 27. Júl 2004 00:48
af Pandemic
subbulegt og ljót

Sent: Þri 27. Júl 2004 00:52
af WarriorJoe
Ég er með UV cable sleaving kit á öllu mínu schitzeni..

Sent: Mið 28. Júl 2004 13:52
af Kristjan
ég var með ekkvern sona kapal sem eg keyfti i start um dæjin hvernig kemur maðður þessu a ekkvað UV dæmi

Sent: Mið 28. Júl 2004 14:34
af WarriorJoe
Þarft að kaupa UV ljós ( útfjólublá ljós )

Sent: Mið 28. Júl 2004 19:37
af Kristjan
ég er að tala um Hvernig kemur maður þessi a snururnar bara 2 endar og 2 op :)

Sent: Mið 28. Júl 2004 20:02
af Snorrmund
Já ? viltu 2 enda og 4 op eða? ef þú ýtir þessu saman þá stækkar þetta sko.. þetta er þannig "saumað"

Re: Getur gert þetta

Sent: Fim 29. Júl 2004 00:59
af tomaz
FilippoBeRio skrifaði:Þú getur gert svona. Þetta keypti ég í Start.is á 1500 kall svo er task.is með þetta á 1990 held ég

Eitt sem þú vilt gera ef þú ætlar að gera þetta.. vera þolinmóður og ekki klippa í sundur power kapalin í móðurborðið ( eins og einhver gerði :lol: )
Have fun ;)

hahaha hvaða snillingur gerði það ? og reyndi hann kannski að líma snúruna saman með límbyssulími ? :?

Sent: Fim 29. Júl 2004 01:04
af Pandemic
Sko þú verður að taka molex tengin af þetta verður ekki það stórt að þeir komist í gegn. Bara heimskulegt að eyðilegja snúrunar með að troða molex tengjunum í gegn

Sent: Fim 29. Júl 2004 12:25
af Snorrmund
HVernig tekur maður þau af? og er erfitt að setja þau aftur á? ef að það er létta þá ætla ég að setja þetta á eina molexið sem ég nota :) fyrir skjákortið... :D

Sent: Fim 29. Júl 2004 13:10
af Pandemic
Nei þú bara stingur skrúfjárni inn í tengin og sérð strax hvernig þetta er tekið af það eru 2 nælur sem halda vírunum

Sent: Fös 30. Júl 2004 00:12
af FilippoBeRio
tomaz
Hmm það var ég :D Tíhi

svo lóðaði ég það bara saman þetta var ekkert stórmál ;)

Sent: Lau 31. Júl 2004 22:16
af Hlynzi
Ég fékk nú mínar kapalhulsur í Glóey. Svo fékk ég mér round IDE kapla í Tölvuvirkni. Og þá svona reddaðist þetta að mestu. Læt mynd fylgja ;)