Síða 1 af 1

Antler Kassi m/350W psu

Sent: Fim 20. Mar 2003 18:18
af icemob
Ég hef verið að spá í að kaupa þennann kassa Antler, hefur einhver hér á spjallinu reynslu af þessum kassa?

Ég var reyndar að spá í Shuttle AK37GT móðurborð með kassanum.
Sama með það hefur einhver reynslu af því?

Endilega komið með einhverjar skoðanir á þessu!

Sent: Fim 20. Mar 2003 20:51
af MezzUp
Jebbs, minns á sona borð.......
Þetta er topp borð, og ekki skemmir verðið :D
Ég ætlaði að telja upp gallanna á þessu borði þar sem að framleiðendur og búðir telja upp kosti en ég mundi ekki eftir mörgum göllum.
Hitamælirinn á móðurborðinu er old-style, þ.e. sensor undir örranum frekar heldur en að nota dæmið sem að er innbyggt í örrann.
RAID controlerinn tefur boot-up'ið um nokkrar sekúndur. (En það er hægt að slökkva á honum ef að maður er ekki að nota hann).
Það er ekki hægt að tengja geisladrif í RAID IDE portin(sem að skiptir engu máli)
Það eru tvö SATA tengi og tvö IDE tengi í RAID controlernum, EN það er bara hægt að nota tvö í einu. Þ.e. 2xIDE, 2xSATA eða 1xIDE og 1xSATA.
Hardware monitorinn sem að fylgir með á geisladisknum virkar ekki hjá mér í Win2000. En ég nota SpeedFan en þar get ég séð hitann á örgjörva, chipsetti og PSU. En ég get ekki breytt hraða á viftum eða séð HD hitann. :(
That's about it, endilega skjóttu ef að þú hefur einhverjar spruningar.

Sent: Lau 22. Mar 2003 11:00
af Marino
Ætlar enginn hérna að svara icemob, ég var einmitt að hugsa um hvort að það væri ekki í lagi að kaupa svona Antler kassa :conf

Sent: Lau 22. Mar 2003 11:26
af Voffinn
þetta er kassi, ekki geimflaug...skoðaðu hann bara í búðinni....

Sent: Lau 22. Mar 2003 11:56
af Marino
Það er allt gott um þennan kassa að segja, ég vill bara fá að vita hvort PSU og annað sé ekki nógu vandað, og hvort það væri betra fyrir mig að taka dýrari kassa :bri

Sent: Lau 22. Mar 2003 13:07
af GuðjónR
Ég er ekki alveg með þessa watta tölu á hreinu.
Kassin er sagður 350w
En í speccunum stendur:
ATX 12V 300W ALL SAFETY +
Noise Control
AMD Recommended

Hvort er hann 300 eða 350 ?

Sent: Lau 22. Mar 2003 15:38
af icemob
Ég vil þakka Mezzup fyrir skjót svör, ég tek að öllum líkindum þetta móðurborð.
Brill verð :lol:

Hvað varðar kassann þá var mér sagt hjá Tölvuvirkni að psu væri 350W

Sent: Lau 22. Mar 2003 21:55
af Marino
GuðjónR: Ég held að þetta sé einhvers konar vara PSU.

Sent: Þri 08. Apr 2003 18:44
af asgeir1
Ég er með svona móðurborð og ég er mjög sáttur við það. Síðan er þjónustan hjá tölvuvirkni frábær. Ég er líka með svona kassa og hann er frábær því loftflæðið er mjög gott í honum.