Síða 1 af 1
haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 11:41
af tomas52
já þetta er könnun mín til ykkar hvort ætti maður að kaupa undir nýja stuffið ég er með xspc 360 vatnskælingu sem ég vill hafa inní kassanum og það sem ég hef séð hingað til þá eru þetta einu kassarnir sem bjóða uppá það það er samt eitthver 8000 króna verðmunur á þeim svo ég vill vita kosti og galla og af hverju og hitt og þetta
Re: haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 11:47
af Arnzi
Er ekki HAF línan hannað fyrir "High Air FLow" ?
svo er þetta so mikið geimskip eitthvað, fannst það flott en vaxaði eiginlega frá því, en haf x er stærra svo ég myndi fara í það ef þú ert með mikið af vatnskælingar dóti.
Re: haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 11:48
af Benzmann
þú kemur þessu líka í Corsair 800D kassann
Re: haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 11:52
af mundivalur
Get bara svarað fyrir Haf-X ,er með XSPC Rasa rs360 kælingu sem passar vel í turninn og get ekki kvartað undan neinu jú langar í en þá stærri turn
Re: haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 12:30
af AciD_RaiN
Af þessum 2 skaltu ekki hugsa þig tvisar um og fá þér haf-x en svo eru alveg betri kostire. Er sjálfur með Corsair obsidian 800D og mér finnst hann bara vera of lítill og langar helst að fá mér einhvern 40 feta gám bara... Ekki reyna að spara einhverja smáaura á kassnaum þínum því þú munt sjá eftir því
Re: haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 21:02
af tomas52
en fæst haf x í bláu eitthverstaðar?
Re: haf x vs haf 932
Sent: Þri 10. Apr 2012 21:23
af halli7
tomas52 skrifaði:en fæst haf x í bláu eitthverstaðar?
Skiftir bara út viftunum fyrir svona:
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... bccf98dd9eOg svo eitt svona:
http://buy.is/product.php?id_product=9208823
Re: haf x vs haf 932
Sent: Mið 11. Apr 2012 00:08
af jomminn
ég var allavegana að fá mér HAF X og finnst hann alveg geðveikur ...rosalega gott og mikið loftflæði og ekki mikill hávaði frá honum ...alveg svakalega hljóðlátur kassi miðað við það sem maður á von á þegar maður skoðar hann í búðinni !
Re: haf x vs haf 932
Sent: Mið 11. Apr 2012 08:23
af Gilmore
Ég er bæði með 932 og X-ið.
Haf X er mikið betri kassi að öllu leyti. Ég er ekki mikið fyrir gamer look, og mér finnst X-ið ekki looka mikið þannig, bara frekar látlaus en samt með stíl. Og ekki er hægt að kvarta undan hávaða frá honum, meiri læti í 932.....sérstaklega víbringur.
Re: haf x vs haf 932
Sent: Mán 30. Apr 2012 14:53
af tomas52
ein spurning með haf x hvað eru margar viftur með ljósum í honum og hvaða stærðir og er eitthvað annað en vifturnar sem eru að gefa rautt ljós frá sér
Re: haf x vs haf 932
Sent: Mán 30. Apr 2012 14:55
af Gilmore
Viftan að framan er með rauðu ljósi.......ekkert annað sem lýsir held ég. Það er on/off takki á þessari rauðu líka.
Re: haf x vs haf 932
Sent: Fim 03. Maí 2012 14:28
af tomas52
þetta er glatað er búin að hringja í allar búðir sem selja coolermaster og enginn á þennan kassa til
att á að fá hann í júní eitthverntímann jú og svo sendi ég honum einum manni hvað mundi kosta fyrir mig að sérpanta bláan kassa semsagt þennan
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6811119239 og það væri 50 kall svo ég er að spá hvort það sé ekki ódýrara að kaupa hann á ebay eða amazon og láta sendann hvernig eru gjöldin á kössum?
Re: haf x vs haf 932
Sent: Fim 03. Maí 2012 14:35
af Gilmore
Þú getur bara keypt þennan standard kassa með rauðu viftunni og skipt öllum viftunum út (rauðu líka) fyrir bláar 200mm megaflow viftur. Ég gerði það við minn kassa og hann er glæsilegur.
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=6176Svo er ég með bláa Aerocool Shark 140mm viftu að aftan.
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1906Þannig að allar viftur eru með ljósi, birtan er flott og alveg passleg.
Re: haf x vs haf 932
Sent: Fös 04. Maí 2012 16:20
af tomas52
veit enginn hvað mundi kosta að flytja svona heim sjálfur?
Re: haf x vs haf 932
Sent: Fös 04. Maí 2012 16:37
af Jim
Arnzi skrifaði:Er ekki HAF línan hannað fyrir "High Air FLow" ?
svo er þetta so mikið geimskip eitthvað, fannst það flott en vaxaði eiginlega frá því
vaxaðivaxaði
vaxaðivaxaði
Re: haf x vs haf 932
Sent: Mið 09. Maí 2012 20:40
af tomas52
eru ekki eitthverjar verlsanir í belgíu eða þar í kring sem eru að selja þessa kassa og þá væri það helst Haf X KKN3 Blue editon? endilega bendið mér á tölvuverlsanir þar ..
Re: haf x vs haf 932
Sent: Mið 09. Maí 2012 21:50
af Xovius
Get sjálfur ósköp lítið hjálpað þér með hvar þú átt að kaupa hann en ég get hinsvegar alveg staðfest það að þú vilt fá þér HAF X frekar en HAF 932. Pældi mikið í þessu sjálfur og endaði á HAF X og sé ekkert eftir því
Einn stór galli við báða kassana, verð bara að koma þessu á framfæri, gatið á motherboard backplate'inu sem er til þess að skipta um festingar fyrir örgjörvakælingar er ekki á réttum stað/nógu stórt til að gera nokkuð gagn á lang flestum 2011 socket móðurborðum :/ ekki stórvandamál en það ætti samt að vera svo auðvelt að breyta þessu fyrir þá.