Síða 1 af 1

Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 04:27
af Moquai
Er að pæla í því hvort það er hægt að hækka hraðann á kælingunni

Er með hana tengda í móðurborðið via 3 pinna tengi.

Re: Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 04:31
af worghal
gætir prufað beintengt molex tengi.

Re: Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 10:15
af mundivalur
þú ert með gigabyte móðurborð þá á ertu kanski með Easytune 6 sem á að geta stýrt viftunni (undir SMART)og tengja 3 pin í CPU fan á móðurborðinu,en þú gætir þurft að fara í bios og undir pc health /cpu fan mode velur manual (gætir þurft að eins meira sé það í næsta restarti) annars er líka hægt að gera disable á allt viftu dæmi sem þíðir allar viftur í botn.

Re: Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 12:23
af Joi_BASSi!
ef þú vilt að vifturnar snúist hraðar en þær eru að núna. þá geturðu tengt þær beint í molex, en þá eru þær altaf í botni. ég mæli alls ekki með því því að fátt er leiðinlegra en tölva sem að er alltaf með vifturnar óstjórnlega í botni.
en síðan geturðu yfir voltað vifturnar ef að þú vilt að þær snúist ennþá hraðar en max. ég veit ekki inná hvað þú gætir tengt þær sem að er meira en 12v innaí tölvunni. þannig að þú þirftir þá einhvað annað powersupply, t.d batterí
(ekki gera það)
annars geturðu skipt um viftur

ég myndi bara kaupa viftustíringu. þá stírirðu manually hrðanum á viftunum að vild

Re: Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 14:30
af AciD_RaiN
Ég keypti mér þessa ekki alls fyrir löngu og virkar alveg djöfulli vel http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1833

Re: Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 14:38
af Moldvarpan
Ég minnkaði hraðann á mínum með kaplinum sem fylgdi með.
Hef nú ekki spáð í hvernig það er hækkaður hraðinn, nema þá að taka þennan kapal í burtu.

Þessir kaplar á myndinni eru til að minnka hraðann á viftunni.
Mynd

Re: Hækka hraða á Noctua NH-D14

Sent: Fös 17. Feb 2012 17:42
af Moquai
AciD_RaiN skrifaði:Ég keypti mér þessa ekki alls fyrir löngu og virkar alveg djöfulli vel http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1833


Jáá, ætli að ég skelli mér ekki í eitthvað svipað.