Síða 1 af 1
Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 10:33
af tomasjonss
Sælir piltar og stúlkur sem stunda þann sið að klukka yfir.
Er að velta fyrir mér, ég er með intel Q6600 2.4 ghz. Mundi það breyta miklu að yfirklukka hann upp í 3.2?
Ég er að spá hvort að breytingin sé það mikil að það sé þess virði eða hvort menn séu í flestum tilvikum að gera þetta upp á sportið.
Vegna þess að þeir geti það.
Takk
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 10:52
af Gunnar
Eg klukkad minn utaf eg get þad og til ad spila nýustu leikina i godum gæðum.
Og a þeim tíma utaf folding @ home.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 11:04
af tomasjonss
Með því að fara með örgjörvann upp í 3.2. verður tölvan mun hraðari við það. Finnur þú mikinn mun?
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 11:30
af GuðjónR
Ég efast um það, það eru aðrir hlutir sem skipta miklu meira máli en nokkur auka MHz
T.d. SSD drif, jafnvel fresh install og nýjir driverar.
Þú getur líka eyðilagt örgjörvann þinn með overclocki.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 11:38
af dori
Ef þú ert ekkert að maxa örgjörvann þá er ólíklegt að þú finnir fyrir einhverjum mun. Ef þú tekur eftir því að örgjörvinn (eða jafnvel bara 1-2 kjarnar á honum) eru að maxa þegar þú spilar leiki þá myndi það örugglega borga sig.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 11:44
af GuðjónR
En hafiði einhverntíman spáð í það hvort og þá hversu mikið þið skerðið líftímann á örgjörvanum með því að maxa hann svona?
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 12:56
af Daz
GuðjónR skrifaði:En hafiði einhverntíman spáð í það hvort og þá hversu mikið þið skerðið líftímann á örgjörvanum með því að maxa hann svona?
Hvenær hittirðu síðast einhvern sem sagði "jæja, örgjörvinn minn kláraðist í gær"? Held að þær rannsóknir sem til eru á líftíma örgjörva gefi til kynna að líftíminn sé mun lengri en mögulegur notkunartími. Yfirklukkun er talin geta skert líftímann, en það er lítt rannsakað (eftir því sem ég best man).
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 13:02
af worghal
GuðjónR skrifaði:En hafiði einhverntíman spáð í það hvort og þá hversu mikið þið skerðið líftímann á örgjörvanum með því að maxa hann svona?
ég held ég hafi lesið að líftími örgjörfa væri 15 ár og að overclocka skerði þann tíma um 2 ár... ég held ég verði búinn að uppfæra fyrir þann tíma.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 13:08
af GuðjónR
Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:En hafiði einhverntíman spáð í það hvort og þá hversu mikið þið skerðið líftímann á örgjörvanum með því að maxa hann svona?
Hvenær hittirðu síðast einhvern sem sagði "jæja, örgjörvinn minn kláraðist í gær"? Held að þær rannsóknir sem til eru á líftíma örgjörva gefi til kynna að líftíminn sé mun lengri en mögulegur notkunartími. Yfirklukkun er talin geta skert líftímann, en það er lítt rannsakað (eftir því sem ég best man).
hehehe hef reyndar lent í því, en þá var það yfirklukkun sem fór yfir strikið og kláraði örrann.
Örgjövar geta lifað áratugum saman og ekki ofnotkun sem sem drepur þá, frekar það að þeir verða úreldir og þeim hent.
Ég hef samt einu sinni lent í því að örgjörvi drapst, aldrei yfirklukkaður eða neitt, hann bara dó.
Vel heppnuð yfirklukkun ætti því líklega ekki að hafa áhrif, jafnvel ekki þótt hún tæki 10 ár af örgjörvanum þá skiptir það engu máli.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 13:19
af tomasjonss
SKemmtilega og frískandi umræður hérna.
Ástæðan að ég set þetta fram er að athuga hvort menn séu að finna mikinn mun eftir að þeir hafa níðst á gripnum.
Hvort það sé þess virði að eyða tíma í kynna sér og læra allt um yfirklukkun og svo kannski er það ekki að skila neinu svakalega miklu. Virðist þurfa að kynna sér þetta vel og rækilega svo maður bræði ekki úr örgjörva eða rústi móðurborðinu.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 14:12
af Fletch
Í stuttu máli græðir þú hraðvirkari tölvu, með litlum sem engum auka kostnaði, nema þá helst öflugri kælingu
Vissulega er margt annað sem hefur áhrif á hraða tölvunar en CPU er stór þáttur.
Þegar framleiðendur eru að koma með nýja línu af örgjörvum er þeir seldir á mismundi hraða, og misdýrir. Samt getur þetta verið nákvæmlega eins örgjörvar, eini munurinn að þeir keyra á hærri tíðni frá framleiðanda.
Með smá
knowhow og nokkrum mínútum í bios getur því keyrt hægvirkari örgjörvan og sama eða meiri hraða en dýrasti og sparað þannig pening.
En hjá flestum sem eru að overclocka er þetta hætt að snúast um það að spara á ódýrari CPU heldur að smíða sem hraðvirkustu tölvuna
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 20. Jan 2012 14:12
af SolidFeather
http://www.bit-tech.net/hardware/cpus/2 ... ad_q6600/1Græðir eitthvað smá.
Það var ekkert hrikalega flókið að overclocka E6400, henti bara FSB í 400 og jók voltin þangað til hann varð stable ;D
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Lau 21. Jan 2012 19:39
af KermitTheFrog
Græðir alltaf eitthvað á því en spurningin er sú hvort þú takir eftir því eða hvort annar vélbúnaður sé að takmarka vinnslugetu tölvunnar.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Lau 21. Jan 2012 20:01
af fremen
Flestir overclocka fyrir e-peen. 3DMark scores o.s.frv. og geta verið með flotta undirskrift hingað og þangað.
Nema kannski þeir sem eru að rendera eða eitthvað svoleiðis kannsi(?), allavega græðirðu ekki rass á þessu fyrir leikina nema þú sért með það stórt skjákort að örgjörvinn sé farinn að verða bottleneck.
Þegar menn hafa lately verið að prófa BF3 t.d. í flottri grafík og 1920*1080 eða svoleiðis upplausnum þá er það alltaf skjákortið sem er að bottlenecka langt á undan örgjörvanum.
Gamers hafa ekkert með það að gera, alvöru CPU users hafa eitthvað með það að gera.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Lau 21. Jan 2012 20:24
af AciD_RaiN
I do it cuz it's cool
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Lau 21. Jan 2012 20:51
af mundivalur
Þú finnur alveg mun á þessu! 2.4-3.2ghz er slatti og færð meira út úr skjákortinu en maður finnur ekkert á hækka í td. í 2.6-2.8ghz
Gerðu 3Dmark 06 test á 2.4 svo á 3.2ghz
Græðir ekkert fyrir leiki
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Fös 31. Ágú 2012 21:42
af k0fuz
ég átti Q6600 sem ég yfirklukkaði í 3.2ghz, ég fann kannski smávegis mun, ég man það ekki alveg. Ég yfirklukkaði hann fyrst útaf ég hélt að tölvan yrði mikið hraðari og mig hafði langað að prufa það og experimenta bara
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Lau 01. Sep 2012 01:50
af Minuz1
Í flestum tilfellum er það ekki cost effective að overclocka, í flestum tilfellum er betra að sleppa því að kaupa betri kælingu og fá sér bara dýrari CPU/GPU (or whatever)
+ tíminn sem þarf til þess að rannsaka hvað og hvernig þú gerir það er ekki sem overclockers taka með í reikninginn.
Ef þú villt gera þetta að hobbý-i, þá by all means go nuts.
Re: Hvað græði ég á að overclocka?
Sent: Lau 01. Sep 2012 02:10
af chaplin
@ OP: Líklegast alveg smá - hef átt nokkra Q6600, frábær örgjörvi. Setti hann samt í um 3.6 GHz til að kreista smá meira power úr honum og það skilaði sér mjög vel. Græðir líklegast alveg e-h á því.
Örgjörvarnir skemmast ekki nema farið sé í öfga yfirklukkun - þeir geta hinsvegar "degrade"-að (man ekki íslenska orðið). En það er þó ótrúlega lítið, menn hafa keyrt yfirklukkaða i7-920 í + 4.0 GHz í fleiri ár að folda (ásamt mörgum 775 örgjörvum) án vandræða.
Eins og sagt er, þegar örgjörvinn þinn deyr útaf yfirklukkun, þá er hann hvortið er oðrinn úreltur.
GuðjónR skrifaði:En hafiði einhverntíman spáð í það hvort og þá hversu mikið þið skerðið líftímann á örgjörvanum með því að maxa hann svona?
U MAD?
Daz skrifaði:Hvenær hittirðu síðast einhvern sem sagði "jæja, örgjörvinn minn kláraðist í gær"?
Haha