Síða 1 af 1

[?] Vantar smá ráðleggingar - Hljóðlátari tölva

Sent: Þri 15. Jún 2004 13:24
af ICM
Svona er vélin í dag, á eftir að skipa út þessum venjulegu 80MM viftum fyrir þessar 11DB sem eru seldar í Task... EF þið haldið að það dugi. Svo var ég að spá í að kaupa hljóðeinangrandi efni eins og er selt í Start en ég nenni ekki út í kópavog, er einhver önnur búð sem selur eitthvað svona hljóðeinangrandi?

Sent: Þri 15. Jún 2004 13:56
af Snorrmund
Flott mynd, hvaða forrit notaðiru (link á það :))

Sent: Þri 15. Jún 2004 14:22
af sikki
Microsoft Visio 03 ?

Sent: Þri 15. Jún 2004 15:11
af ICM
Expression 3, þið getið sótt það ókeypis ef þið hafið "keypt" Expression 2 hér áður. Þurfið bara að logga ykkur inn með passport fyrst.

Sent: Þri 15. Jún 2004 15:39
af Snorrmund
Hvar get ég fengið það ?

Sent: Þri 15. Jún 2004 15:40
af Voffinn
http://www.microsoft.com/products/expression/

Efsta sem kom upp á google...

Sent: Þri 15. Jún 2004 15:46
af Snorrmund
Takk voffi! ég fattaði bara ekki strax að nota google. notaði það og fann þetta.. :) kíkti svo á spjallið

Sent: Þri 15. Jún 2004 21:28
af Hlynzi
Sendir tölvuvirkni eða task ekki heim ?

eða þeir sem voru með þessa mottur.

Re: [?] Vantar smá ráðleggingar - Hljóðlátari tölva

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:04
af gumol
IceCaveman skrifaði:Svo var ég að spá í að kaupa hljóðeinangrandi efni eins og er selt í Start en ég nenni ekki út í kópavog

Rofl.

Re: [?] Vantar smá ráðleggingar - Hljóðlátari tölva

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:13
af ICM
gumol skrifaði:
IceCaveman skrifaði:Svo var ég að spá í að kaupa hljóðeinangrandi efni eins og er selt í Start en ég nenni ekki út í kópavog

Rofl.

Ertu að halda því fram að ég þori ekki þangað útaf Voffanum?

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:30
af gumol
Áttiru ekki annars heima í Grafarvogi?
Þá er allavega styttra í Start.is heldur en niður í bæ :)

Re: [?] Vantar smá ráðleggingar - Hljóðlátari tölva

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:37
af axyne
IceCaveman skrifaði:Ertu að halda því fram að ég þori ekki þangað útaf Voffanum?


Voffinn að vinna hjá Start.is :?:
eða heima fyrir ofan þá eða eitthvað :roll:

eða eru start.is gaurar komnir með stóran voffa :?:

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:13
af gumol
Margir hérna sem eiga heima nær start.is en Voffinn. Voffinn er ekki starfsmaður Start.is.

Voffinn á heima í Kópavogi. Start.is er í Kópavogi. = Voffinn er í Start.is. :roll:

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:26
af aRnor`
vissi það! :twisted:

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:45
af skipio
Svo maður svari þessi nú í alvöru að þá skaltu kaupa þér SilenX 350W á 6.175 í Tölvuvirkni, eina Papst PA8412NGL á 3.500 í Task, Zalman CNPS7000A-ALCU á 4.000 krónur í t.d. Task og láta gott heita.
Þú skalt ekki kaupa þér neitt hljóðeinangrandi efni. Það hefur lítil áhrif, er máske punkturinn yfir i-ið ef aðrir hlutir eru í lagi. Ég myndi ekki taka þessar Noiseblocker viftur í Task. Panaflo 80mm eru bestar (ég er með svoleiðis) en þær fást ekki á Íslandi - verður að panta hjá Dorothy í UK.
Það er alveg nóg að hafa eina viftu í tölvunni og þá að aftan. Þú skalt keyra Papst viftuna á 5-7V (fá sér viftustilli eða gera eins og á http://www.silentpcreview.com/article6-page1.html )
Það er líka mjög gott að klippa út viftugrillin bæði að framan og aftan (hægt að gera með stórri töng). Það lækkaði allavega hitann hjá mér um þónokkrar gráður.

Þú þarft ekkert meira nema hávaðinn í harða disknum fari að pirra þig. Þá setur þú hann í teygju.

Re: [?] Vantar smá ráðleggingar - Hljóðlátari tölva

Sent: Mið 16. Jún 2004 00:14
af MezzUp
IceCaveman skrifaði:
gumol skrifaði:
IceCaveman skrifaði:Svo var ég að spá í að kaupa hljóðeinangrandi efni eins og er selt í Start en ég nenni ekki út í kópavog

Rofl.

Ertu að halda því fram að ég þori ekki þangað útaf Voffanum?

hehe, enginn nefndi það, skrítið að þér skuli strax detta það í hug :D

Sent: Mið 16. Jún 2004 13:07
af ICM
skipio taka af viftugrillin :( það voru nú nokkrar dauðar hrossaflugur á skjákortinu mínu um dagin og það var með grillinum á, ef ég tek þau af verð ég pottþétt komin með geitunga þarna inn einhvern daginn

Sent: Fim 17. Jún 2004 00:06
af skipio
IceCaveman skrifaði:skipio taka af viftugrillin :( það voru nú nokkrar dauðar hrossaflugur á skjákortinu mínu um dagin og það var með grillinum á, ef ég tek þau af verð ég pottþétt komin með geitunga þarna inn einhvern daginn

Ef þú ert með rykfilter að framan (þú ert með svoleiðis, ekki satt!?) skiptir litlu máli hvort grillið er á að framan og sömuleiðis skiptir grillið að aftan engu svakalegu máli að þessu leyti því það þyrfti býsna öfluga flugu til að sleppa lifandi í gegnum viftu sem blæs lofti út úr tölvunni!
Hinsvegar kann ég ekkert mjög vel við að hafa loftgat á hliðinni nema þá helst ef það væri sérstakur loftstokkur niður að örgjörvaviftunni frá gatinu.

Sent: Fim 17. Jún 2004 11:07
af Snorrmund
HVar fær maður sér viftufilter fyrir dragon-medi ? er hægt að gera þannig sjálfur ?

Sent: Fim 17. Jún 2004 11:08
af elv
Stocker skrifaði:HVar fær maður sér viftufilter fyrir dragon-medi ? er hægt að gera þannig sjálfur ?



Sokkabuxur duga fínt sem viftu filter ;)

Sent: Fim 17. Jún 2004 11:15
af Snorrmund
hehe k... Hvernig þá ? Setja þær "Utan" um viftuna eða ?

Sent: Fim 17. Jún 2004 12:03
af MezzUp
Stocker skrifaði:hehe k... Hvernig þá ? Setja þær "Utan" um viftuna eða ?

hugsa að það sé nóg að klippa bút úr(ræður þykkt með því að brjóta saman) og hafa þar sem að loftið kemur í viftuna, annaðhvort alveg upp við hana eða hinumeginn við járnið

Sent: Fim 17. Jún 2004 12:16
af Snorrmund
takk takk!