Síða 1 af 2

Hefur einhver spáð í ........

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af sumo
Vatnskælingu?
ég hef mikið spekulerað í þessu og kom mér í samband við company úti sem selur kassa með þessu í og hef stundum velt því fyrir mér hvort menn hér hefðu áhuga á að fá sér svona og hvort maður ætti að flytja þetta inn??
hvað finnst mönnum að sé eðlilegt verð á slíku .
Þá á ég við kassa (flottan, dragon eða coolermaster alum. etc.)
með psu og kælibúnaði-dælu og slöngum ásamt vatnstankinum (kæliplötur fyrir örgjörva og kort þarf að kaupa sér oftast)
Þetta er náttla ekki gefins en hvað er eðlilegt verð finnst ykkur?

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Saber
Ég myndi segja að 20-30 þús.kr. kassinn m/kælingu (fer eftir verði kassans án kælingunar). Þ.e.a.s. sirka 7-10 þús.kr. fyrir kælinguna.

Er það ekki sona frekar sanngjarnt verð?
:roll:

Swiftech

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af thorgeir
Ég hef mikið verið að spá í vökvakælinga kassa, en veit ekki um neinn sem selur þetta hér á landi en las reveiw um þenna kassa (http://www.sidewindercomputers.com/swifquietpow.html) og þessi er sagður vera ein af þeim betri, ef ekki besti kassin...
Hann kemur tilbuinn, buið að setja allt vökvakælingar dóti inn í kassa og mar þarf bara að setja ihlutina sina inn...
þetta væri gjöf frá guð að vera með svona... ég er með tölvunna inni svefnherbergi og slekk aldrei á henni og viftuhljóðið getur orðið frekar pirrandi stundum


http://www.sidewindercomputers.com/swifquietpow.html

En ef einhver er að spá í að panta, endilega látið mig vita, gæti verið sniðugt að panta dótið saman...

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
en það auðvitað vifta á vatnskassanum......... :(

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Hannesinn
Þetta er þegar selt hérna á landi og var ég mikið búinn að spá í þessu vegna þess að þetta er hljóðlátasta sem og besta kæling sem völ er á. Ég glími við það vandamál að hafa GeForce4 skjákort í vélinni minni sem gerir hana sjálfvirkt að þotuhreyfli í stofunni hjá mér. :shock:

Það er góður vatnskælibúnaður seldur hjá TASK.IS ( http://www.task.is ) en hann er ekki gefins. Þess ber þó að geta að grunnkittið kostaði rúmlega 20.000 kall úti í USA þegar ég skoðaði seinast. Vídeo og fleira er á síðunni.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Hannesinn
Gleymdi að minnast á að...

Víst að kælibúnaðurinn stakur kostar um 20-30000 kall (og þá án vga plötu) þá segir það sig sjálft að td. moddaður dragon kassi með þessu kostar ekki 20-30000 kall eins og einhver hér fyrir ofan stakk uppá.

Svo er náttúrulega ekki til neitt sem heitir sanngirni eða "eðlilegt" í íslensku verðlagi :wink:

Já nú er ég hissa

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Saber
Mér finnst 30.000+ kr. fyrir vatnskælingu bara brjálæði. Það er vifta á vatnskassanum svo maður losnar ekki við allan hávaðan.
Það eru til ódýrari og betri lausnir. Svo sem eins og Peltier thermoelectric cooling, hljóðlaus heatsink, hljóðlausar örgjörvaviftur og hljóðeinangrunarefni í kassann.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af halanegri
[quote="Hannesinn":2mdfh9em]Ég glími við það vandamál að hafa GeForce4 skjákort í vélinni minni sem gerir hana sjálfvirkt að þotuhreyfli í stofunni hjá mér. :shock:[/quote:2mdfh9em]

Er þá ekki best að vera bara með kort frá Abit, eru þau ekki talin vera langhljóðlátust? og msi langháværast

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Hannesinn
Enda tók ég það fram að þetta væri ekki gefins og mér finnst þetta mjög hátt verð fyrir kælingu, en...

Ef þú ert að spá í silent vél með góðri kælingu, þá ertu kominn upp í góða fúlgu hvort eð er, því þetta silent dót er heldur ekki gefins. Og ekki gleyma því að vatnskælingin kælir draslið mikið betur.

Og nei, ég er ekki með MSI gf4 kortið sem var eins og hárþurrkari. Ég er með Asus Ti4600 kort sem hljómar einhvers staðar á milli Abit og MSI.

áhætta??

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af GuðjónR
Er einhver áhætta af vatnskælingu ???

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
ég veit að vökvinn sem notaður er leiðir ekki rafmagn og því er óhætt að hella honum tölvustuff en hinsvegar ef að rörið dettur af þá hættir kerfið að kæla og þá byrjar að koma vond lykt af örranum................

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Hannesinn
Alveg rétt... alveg eins og þegar örgjörvavifta hættir að snúast :roll:

Vökvinn sem fer í þetta held ég að sé eimað vatn til móts við eitthvað kælivökvasull sem leiðir illa rafmagn og stuðar því ekki þó að það dropi lítillega á móbóið.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Castrate
tekur þetta ekki mikið pláss ég spurði gaurinn hjá task.is að því og hann sagði að ég kæmi þessu öllu ekki inní venjulegan kassa. hefur eikkur séð þetta sem task.is gaurarnir eru með?

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
ef að þú ætlar að setja vatnskassann inní tölvukassann þá verður helst að vera soldið pláss fyrir ofan PSU'ið og svo tekur pumpan soldið pláss í kassanum. Þeir gerðu myndband og grein um vatnskælingu á THG, endilega skoðiði það ef að þið eruð að spá í vatnskælingu.

Re:

Sent: Fös 24. Okt 2008 16:53
af CendenZ
MezzUp skrifaði:ef að þú ætlar að setja vatnskassann inní tölvukassann þá verður helst að vera soldið pláss fyrir ofan PSU'ið og svo tekur pumpan soldið pláss í kassanum. Þeir gerðu myndband og grein um vatnskælingu á THG, endilega skoðiði það ef að þið eruð að spá í vatnskælingu.



HVAÐ SKYLDI LESTER SEGJA UM ÞETTA ????

Re: Hefur einhver spáð í ........

Sent: Fös 24. Okt 2008 18:58
af jonsig
vatnskæling felur í sér ákveðið viðhald en mjög góð við overclock td , en langt frá því að vera besta kælingin , eru allir búnir að gleyma freezerunum sem kæla niður í -40

Re: Hefur einhver spáð í ........

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:00
af Allinn
Var með einhverja Drasl vatnskælingu og hún hun lofaði ekki góðu. Þegar ég var að yfirklukka örran þá kemur einhver viðbjósleg fíla frá boxinu.


jonsig skrifaði:vatnskæling felur í sér ákveðið viðhald en mjög góð við overclock td , en langt frá því að vera besta kælingin , eru allir búnir að gleyma freezerunum sem kæla niður í -40


Ekki gott að nota liquid nitrogen nema þú er að leika þér að yfirklukka í 7 Ghz.

Re: Re:

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:16
af Gúrú
CendenZ skrifaði:
MezzUp skrifaði:ef að þú ætlar að setja vatnskassann inní tölvukassann þá verður helst að vera soldið pláss fyrir ofan PSU'ið og svo tekur pumpan soldið pláss í kassanum. Þeir gerðu myndband og grein um vatnskælingu á THG, endilega skoðiði það ef að þið eruð að spá í vatnskælingu.



HVAÐ SKYLDI LESTER SEGJA UM ÞETTA ????


Gauuur old, frá 1970

Vill einhver segja mér af hverju þetta er frá 1970? :'D

Re: Re:

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:22
af Allinn
Gúrú skrifaði:
CendenZ skrifaði:
MezzUp skrifaði:ef að þú ætlar að setja vatnskassann inní tölvukassann þá verður helst að vera soldið pláss fyrir ofan PSU'ið og svo tekur pumpan soldið pláss í kassanum. Þeir gerðu myndband og grein um vatnskælingu á THG, endilega skoðiði það ef að þið eruð að spá í vatnskælingu.



HVAÐ SKYLDI LESTER SEGJA UM ÞETTA ????


Gauuur old, frá 1970

Vill einhver segja mér af hverju þetta er frá 1970? :'D


Nú?. Hefuru aldrei heyrt um þátíð?. Btw hvernig örgjörvar voru til á þessum tíma?

Re: Re:

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:22
af ManiO
Gúrú skrifaði:
CendenZ skrifaði:
MezzUp skrifaði:ef að þú ætlar að setja vatnskassann inní tölvukassann þá verður helst að vera soldið pláss fyrir ofan PSU'ið og svo tekur pumpan soldið pláss í kassanum. Þeir gerðu myndband og grein um vatnskælingu á THG, endilega skoðiði það ef að þið eruð að spá í vatnskælingu.



HVAÐ SKYLDI LESTER SEGJA UM ÞETTA ????


Gauuur old, frá 1970

Vill einhver segja mér af hverju þetta er frá 1970? :'D


Sennilega þar sem þetta er frá því í gamla daga áður en er einhver stór framkvæmd var gerð (skipt um kerfi, kerfið flutt eða e-ð, er ekki viss þar sem þetta var fyrir mína tíð) og þá hafa dagsetningarnar á elstu innleggjunum orðið FUBAR og 1. Jan 1970 er víst einhver default dagsetning.

Re: Hefur einhver spáð í ........

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:25
af Gúrú
Danke sehr, og svo finnst mér þessi könnun fáránleg, það er ekki endilega bara 1 svar :)

Re: Re:

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:28
af Matti21
4x0n skrifaði:Sennilega þar sem þetta er frá því í gamla daga áður en er einhver stór framkvæmd var gerð (skipt um kerfi, kerfið flutt eða e-ð, er ekki viss þar sem þetta var fyrir mína tíð) og þá hafa dagsetningarnar á elstu innleggjunum orðið FUBAR og 1. Jan 1970 er víst einhver default dagsetning.

hérna erum við að tala um Y2K in action :Þ

Re: Hefur einhver spáð í ........

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:41
af CendenZ
fattar enginn þetta?!?!?!?!

Re: Hefur einhver spáð í ........

Sent: Fös 24. Okt 2008 19:52
af ManiO
CendenZ skrifaði:fattar enginn þetta?!?!?!?!


Jú, fannst þetta bara ekkert mjög fyndið :wink:

Re: Hefur einhver spáð í ........

Sent: Lau 25. Okt 2008 01:33
af jonsig
Allinn skrifaði:Var með einhverja Drasl vatnskælingu og hún hun lofaði ekki góðu. Þegar ég var að yfirklukka örgjörvan þá kemur einhver viðbjósleg fíla frá boxinu.


jonsig skrifaði:vatnskæling felur í sér ákveðið viðhald en mjög góð við overclock td , en langt frá því að vera besta kælingin , eru allir búnir að gleyma freezerunum sem kæla niður í -40


Ekki gott að nota liquid nitrogen nema þú er að leika þér að yfirklukka í 7 Ghz.


sæll ? sætaferðir úr Æsufellinu , er kallin dottin í það ? ég talaði aldrei um LN2 ég var bara að meina hub með þjöppu og rana sem er festur við örgjörva Mjög nálægt því að vera eins og ískapurinn heima hjá þér . ég var ekkert að tala um einhverjar -210c°