Síða 1 af 1

Val á aflgjafa

Sent: Þri 06. Des 2011 02:01
af GeiR
Sælir

Þannig er mál með vexti að mig vantar 2 aflgjafa. Einn fyrir tölvu sem ég er að fara setja saman eftir próf og annan fyrir sjónvarpstölvuna sem foreldrarnir eru að nota.

Hávaðinn skiptir ekkert það miklu máli varðandi tölvuna sem ég er að fara setja saman , hins vegar þarf ég að finna lágværan í sjónvarpstölvuna þar sem núna er 500 w powersupply í Coolermaster 500 Sileo kassa og það er of mikil læti í henni.

Sjónvarpstölvan

Intel Dual Core E6600 3ghz
3 gb Corsair XMS minni ddr2 800
500 gb diskur
ATI Radeon R5450
Man ekki alveg móðurborðið.

Væri flott ef einhver gæti komið með ábendingu á hljóðlátan aflgjafa á góðu verði.

Tölvan sem ég er að fara setja saman.

Intel I5 2500k
Gigabyte S1155 P67x UD3 Móðurborð
Mushkin 8GB DDR3 1333MHz (2x4GB)
60 Gb OCZ SSD Agility 3
6950/560Ti/480gtx Eitt af þessum fer eftir því hvort maður sjái eitthvað bitastætt hérna á vaktinni.

Vantar aflgjafa fyrir þetta setup ekkert overkill bara svona sem væri nóg.

Um að gera að koma með gagnrýni á þetta setup ef einhver hérna myndi fara aðra leið á svipuðu verði.

fyrirfram þakkir

GeiR

Re: Val á aflgjafa

Sent: Þri 06. Des 2011 12:14
af GeiR
Upp

Re: Val á aflgjafa

Sent: Þri 06. Des 2011 12:20
af ScareCrow
Ég persónulega færi í einhvern Corsair aflgjafa í þína vél. http://www.att.is/product_info.php?cPat ... db643d0e2c.

Ekki grænan með hitt.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Þri 06. Des 2011 12:37
af vesley
650w er alveg nóg fyrir þetta setup http://www.att.is/product_info.php?cPat ... db643d0e2c


Lítið hægt að setja út á þetta setup, kannski stærri SSD.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mið 07. Des 2011 14:45
af GeiR
Þakka fyrir ábendingar varðandi tölvuna mína, en væri mjög vel þegið að fá einhverjar ábendingar varðandi sjónvarpstölvuna.

Re: Val á aflgjafa

Sent: Mið 07. Des 2011 15:02
af Gunnar
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1434
fínn aflgjafi sem er 12db.
nóg of öflugur fyrir þessa og flestallar sjónvarpsvélar mynd ég giska.
og svo er hann sleaved