Síða 1 af 1

2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 22:03
af Oak
Sælir

Skellti þessu bara hér en var ekki alveg viss samt.

Ég er sem sagt með móðurborð sem tekur 3 pin en pinninn úr kassanum fyrir Power LED er 2 pin. Hvernig græja ég þetta vandamál?
Væri frábært að fá skjót svör... :D

Takk.

Kv. Oak.

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 22:09
af beatmaster
Ef að það er bara 3 pin fyrir PWR-LED (það er á mörgum borðum bæði 2-pin og 3-pin) þá verðurðu bara að taka hann í sundur, ekkert mál að gera það með rakvélarblaði, þannig að 2-pin verði klofinn í 2x1-pin

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 22:13
af Oak
ofaní plugginu þá er + og svo er sami litur á hinum tveim...er það þá ekki sami tengipunktur?

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 22:33
af beatmaster
Prufaðu bara að tengja hann þannig, hvernig móðurborð er þetta annars?

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 23:11
af Oak
það virtist ekki virka rétt...þetta er GA Z68A-D3H-B3
eru ekki miklar líkur á að maður brjóti pluggið með því að föndra með rakvélarblað, skæri eða eitthvað því um líkt?

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 23:15
af mercury
alls ekki nota skæri. verkfæri dauðans. notaðu dúkahníf eða rakvélarblað ef þú ætlar að skera þetta í sundur. ætti ekki að brotna við það nema að þú notir of mikið átak.
En annars tengi ég aldrei neitt af þessu ljósa drasli við borðið, nota bara pwr og rs. sé ekki tilganginn í að nota hin.

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 23:20
af Oak
ég prufaði að sleppa því og þá sló út. ekki alveg að skilja afhverju...

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 23:24
af mercury
þá hlítur einhvað annað að vera vitlaust tengt. getur ekki verið möst að tengja þetta þar sem ég hef ekki gert það í öll þessi skipti sem ég hef sett saman vélar og þau eru þó nokkur. nokkur móðurborð einhver socket misjafnir aflgjafar misjafnir kassar and so on.

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 23:27
af beatmaster
Plúsinn á PWR-LED á að fara í gula plúsinn og mínusinn í gula án plús, þetta er bara standard frontpanel og þetta græna er fyrir restart takkann

FPANEL1.jpg
FPANEL1.jpg (55.76 KiB) Skoðað 616 sinnum

Re: 2 pin Power LED to 3 pin móðurborð

Sent: Fim 20. Okt 2011 23:38
af Oak
úff hvað ég fattaði ekki að það væri tveir staðir til að tengja þetta. takk kærlega fyrir þetta :)