Síða 1 af 1

Zalman CNPS7000-Cu - AMD64 ?

Sent: Mán 24. Maí 2004 22:03
af xpider
Ég var að kaupa Zalman sveppinn og er með gigabyte K8NS pro móðurborð. Ég ætlaði að setja hann í en þá er eins og það vanti eitthvað til þess að setja zalman í, einhverju bakplötu sem fer aftan á móbóið.

Kannast einhver við vandræði við að setja zalman í AMD 64 móðurborð?

Plís help

Sent: Mán 24. Maí 2004 23:07
af Steini
Ég er með þessa viftu á p4 en það voru líka einhverjar gylltar skrúfur sem voru fyrir amd 64 einhverjar festingar

Sent: Mán 24. Maí 2004 23:21
af xpider
já einmitt, en það vantar þessa bakplötu sem þessar gylltu skrúfur eiga að festast í. Ég var að skoða síðuna hjá Zalman og þar segja þeir að með Zalman CNPS7000A-Cu eigi að fylgja með bakplata en á pakkanum hjá mér stendur Zalman CNPS7000-Cu, sem sagt ekkert A.

Ég keypti þetta hjá tölvuvirkni en á heimasíðunni hjá þeim selja þeir Zalman CNPS7000A-Cu. Ég ætla að fara á morgunn og tala við þá :(

Sent: Fim 27. Maí 2004 13:08
af xpider
Þeir redduðu þessu strax og létu mig hafa plötu :)

Sent: Fim 27. Maí 2004 21:05
af Dannir
Gott mál ætla að fá mér svona á minn amd64.

En hvað er hitinn hjá þér núna og minkaði hann eitthvað?

Sent: Fös 28. Maí 2004 16:43
af xpider
Hitinn á örranum er idle í 42°c og 50°c í load. Ég er reyndar með mjög gott loftflæði í gegnum kassann en þegar ég slökkti á viftunum og hafði bara zalman í gangi þá fór hitinn uppí 47°c idle.

Sent: Fös 28. Maí 2004 16:48
af Steini
Er það betra en með retail?

Sent: Fös 28. Maí 2004 17:16
af xpider
7 - 8 °c betra í idle og 5-6 °c í load

Sent: Fös 28. Maí 2004 18:00
af Dannir
hvernig kæli krem ertu með? minn er í 41°og 49° í load með retail viftuni

aftur á móti var örrin í 34° idle og 42° load á k8vt800 pro borðinu sem ég fékk fyrst en það borð var meingallað.

Sent: Fös 28. Maí 2004 18:33
af xpider
Ég er bara með kremið sem fylgdi með sveppnum. Allar hitatölur hjá mér eru fengnar með speedfan en munurinn gæti legið í því að það er frekar heitt í herberginu þar sem tölvan er. En ég er líka með svona Nexus fan control með 3 hitamælum og sá hitamælir sýnir hitatölur sem eru 7°c minni en speedfan, þar mælist örrinn stundum á 33 - 34°c (neminn er settur neðst á zalman). Það er bara spurning hvor talan sé réttari!?

Sent: Fös 28. Maí 2004 18:51
af CraZy
eg er bara með einhverja viftu a örranum og hitin er um 29° :?