Síða 1 af 1

Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 00:12
af Bjarni44
Var aðalega að spá hvort að einhver hefði reynslu í því að kaupa af þeim?

Var að spá í að kaupa þennan kassa af þeim

http://www.quietpc.com/is-en-eur/produc ... d-definexl

En ef þið vitið um einhverjar beti síður til að gera það væru ábendingar vel þeignar er ekki mikið í því að kaupa hluti á netinu :)

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 00:15
af cure
Það var einhver hérna á vaktinni sem benti mér á þessa síðu http://www.preiscompany.de og ég pantaði þaðan móðurborð, vinnsluminni og einhverjar viftur
það var um 25 þúsund kalli ódýrara fyrir mig að panta þetta þaðan heldur en af amerísku síðunum, myndi allavega sjá hvort kassinn sé til þar og bera þetta saman.

*edit* var að reikna þetta út aftur og það munar 11.000 kalli, ég sem hélt að það væri yfir 20 þúsund :/ en það munar samt.

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 00:23
af worghal
cure82 skrifaði:Það var einhver hérna á vaktinni sem benti mér á þessa síðu http://www.preiscompany.de og ég pantaði þaðan móðurborð, vinnsluminni og einhverjar viftur
það var um 25 þúsund kalli ódýrara fyrir mig að panta þetta þaðan heldur en af amerísku síðunum, myndi allavega sjá hvort kassinn sé til þar og bera þetta saman.

þessi kassi kostar 145,80 evrur á preiscompany.de en bara 108 evrur á quietpc.com...

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 00:28
af cure
vörurnar eru aðeins dýrari ég veit það en sendingarkostnaður er nánast enginn.

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 12:49
af Bjarni44
Er ekki hægt að fá þessa síðu á ensku ? er ekki sá sterkasti í þýskunni

Þessi síða lítur allavegana vel út þeir eru meiraðsegja með usb3.0 útgáfuna af kassanum sem er bara magnað

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 12:53
af cure
google chrome þýðir sýður fyrir þig sem eru á öðrum tungumálum en ensku :)

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 13:18
af Bjarni44
jáá hann þýðir samt ekki alla síðuna bara part af henni, en hvar sér maður hvað sendingar kostnaðurinn er get ómögulega fundið þetta

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 14:23
af cure
Bjarni44 skrifaði:jáá hann þýðir samt ekki alla síðuna bara part af henni, en hvar sér maður hvað sendingar kostnaðurinn er get ómögulega fundið þetta

þú verður að í körfuna og í kasse svo í waiter þá sérðu hvað flutningsgjaldið er.

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 16:16
af Bjarni44
Passar að það myndi kosta mig 18 evrur að láta senda þetta hingað heim?

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 16:20
af cure
já svo er náturlega 25,5% vaskur
*edit* sérð það að ég borgaði ekki nema 12,71 evru fyrir flutningin þeir rukka eftir þyngd.
http://i56.tinypic.com/mtnjav.png

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 16:36
af ponzer
preiscompany.de eru fínir nema þeir senda vörurnar með DHL sjóleiðis til íslands, tekur lengri tíma en það kostar nánast ekkert að senda til íslands þannig :)

Re: Quietpc.com

Sent: Sun 16. Okt 2011 18:00
af Bjarni44
Hvað erum við þá að tala um langan biðtíma?

Edit: Hvernig í fjandanum borgar maður fyrir eitthvað á þessari síðu?