Síða 1 af 1

0db PSU

Sent: Lau 08. Okt 2011 18:51
af Siquay
Mig vantar hljóðæátan aflgjafa, þarf svosem ekkert að vera öflugur bara fyrir P4 en væri alltílagi að geta uppfært seinna, fer í Antec fusion media center kassa.
hver er bestur og hvar get ég keipt það?

Re: 0db PSU

Sent: Lau 08. Okt 2011 20:17
af FriðrikH
Mátt fá þennan fyrir 500 kall, http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=41926 athugaðu bara fyrst hvort að tengin henti, þarft sennilega einhver breytistykki.

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 09:55
af Siquay
var nú að spá í eitthvað nýtt og sem mun endast, svo <500W held ég sé eina vitið

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 10:14
af beatmaster
splæsir í þennann

Ég var að láta frá mér 850W týpuna, þessir aflgjafar eru æðislegir :happy

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 10:41
af Daz
0dB og 500w + er ekki góð blanda, þ.e.a.s. ef 0dB þýðir viftulaus. Ef þú meinar 0dB sem hljóðlátur, þá er það allt annað mál.

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 11:55
af Siquay
beatmaster skrifaði:splæsir í þennann

Ég var að láta frá mér 850W týpuna, þessir aflgjafar eru æðislegir :happy


Hversu hljóðlátur er þessi? væri hann fínn í mediacenter tölvu sem væri í gangi 24/7 og aldrei heyrist neitt?

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 13:04
af Glazier
Tacens aflgjafar eru snilld.. dead silent og nóg power :)
http://kisildalur.is/?p=1&id=21

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 15:46
af Vaski
Ef þú ætlar að fá þér hljóðlausan afgjafa er bara um eitt merki að ræða, Seasonic, og þeir eru til í 400 og 460, sem er örugglega meira en nóg fyrir media center. Þessir afgjafar fást á budin.is
http://budin.is/aflgjafar/5100656-xxd00 ... 70821.html

Re: 0db PSU

Sent: Sun 09. Okt 2011 16:08
af FriðrikH
Glazier skrifaði:Tacens aflgjafar eru snilld.. dead silent og nóg power :)
http://kisildalur.is/?p=1&id=21


Ég er ekki sammála þessu, ætlaði að skipta Tacens aflgjafa út fyrir Thermaltake aflgjafa sem ég er með og endaði á því að skipta til baka aftur vegna hávaða. Kannski var þetta eitthvað mánudagseintak sem ég fékk.

Re: 0db PSU

Sent: Mán 10. Okt 2011 00:14
af Siquay
Vaski skrifaði:Ef þú ætlar að fá þér hljóðlausan afgjafa er bara um eitt merki að ræða, Seasonic, og þeir eru til í 400 og 460, sem er örugglega meira en nóg fyrir media center. Þessir afgjafar fást á budin.is
http://budin.is/aflgjafar/5100656-xxd00 ... 70821.html



wow.... 30þúsund...

hugsa að ég verði að sætta mig við smá hávaða þá....

eru vifturnar á Tacens hitastýrðar?... þarmeð græði ég eitthvað á að fá mér 700W og nota bara 2-300W og hann hitnar þá ekkert og kveikir ekki á viftunni? \:D/

Re: 0db PSU

Sent: Mán 10. Okt 2011 00:16
af Siquay
Daz skrifaði:0dB og 500w + er ekki góð blanda, þ.e.a.s. ef 0dB þýðir viftulaus. Ef þú meinar 0dB sem hljóðlátur, þá er það allt annað mál.



já, held ég meini hljóðlátur... eins nærri 0db og hægt er þá :roll: