Síða 1 af 1

hvaða psu?

Sent: Mið 19. Maí 2004 20:32
af Mysingur
hvaða powersupply-um mæliði með, frekar hljóðlátt og þarf að duga fyrir alveg 5-6 diska

Sent: Mið 19. Maí 2004 20:36
af Arnar
Antec TrueControl
PC Power & Cooling 510W ATX-Deluxe

Þau eru fín

Sent: Mið 19. Maí 2004 21:17
af Axel
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=755 félagi minn er með svona virkar mjög vel kannski smá dýrt :8)

Sent: Mið 19. Maí 2004 22:53
af GuðjónR
Ég er með Zalman og mæli hiklaust með honum!

Sent: Mið 19. Maí 2004 22:56
af Mysingur
Takk fyrir svörin

en hvernig eru fortron/silenX ?

Sent: Mið 19. Maí 2004 23:06
af Axel
Mysingur skrifaði:Takk fyrir svörin

en hvernig eru fortron/silenX ?


Fortron eru mjög góðir

Sent: Mið 19. Maí 2004 23:18
af Steini
Ég er með 350w fortron og bara silent og gott og frekar ódýrt líka

Sent: Mið 19. Maí 2004 23:30
af Mysingur
held ég fái mér bara fortron en þarf ég meira en 400w fyrir:

P4 3.0 GHZ
Abit AI7 móðurborð
powercolor radeon 9600XT
2x 512/3200 HyperX
svona 5-6 hdd og nokkrar viftur

Sent: Fim 20. Maí 2004 00:10
af Rednex
Það er spurning. Það ætti alveg að ganga en vil ekki ábyrgja neitt

Bigger is better :lol:

Hvað ertu annars með stórt psu núna?

Sent: Fim 20. Maí 2004 00:20
af Mysingur
er að setja saman þessa vél núna en á eftir að fá psu, hef bara verið að nota fjölskyldtölvuna hingað til :oops:

Sent: Fim 20. Maí 2004 17:27
af BlitZ3r^
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=755
þetta er mjög gott silent og dugar fyrir hvað sem er . en kanski svoldið dýrt

Sent: Fim 20. Maí 2004 19:46
af Mysingur
BlitZ3r^ skrifaði:http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=755
þetta er mjög gott silent og dugar fyrir hvað sem er . en kanski svoldið dýrt


Mér finnst þetta ekki dýrt fyrir 550w er þetta ekki bara eitthvað noname drasl :?

Sent: Fim 20. Maí 2004 20:12
af Stebbi_Johannsson
ég mæli með SilenX PSU 520w og 14dB s.s. hljóðlaust. :wink: