Síða 1 af 1

Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Sun 14. Ágú 2011 23:48
af KrissiK
Já, mig vantar alveg mjög mikið hjálp hjá ykkur að overclocka Q9550 E0 hjá mér.
Er of hræddur um að ég skyldi skemma eitthvað ef ég fengi ekki hjálp hjá ykkur.

Tölvan er svona:
Intel Core 2 Quad Q9550(E0) @ 2.83Ghz
MSI G41TM-P33 Móðurborð
2GB Corsair XMS2 DDR2 800Mhz, er bara með eitt þannig því að hitt skemmdist. + 1GB Corsair DDR2 667Mhz

ef það er eitthvað meira sem vantar.. spurjið mig bara :) , virkilega vantar hjálp!

MBK
Kristján

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 01:53
af KrissiK
Bump! , please help me out! :)

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 07:05
af Ulli
fer aðveldlega í 3,8 þessi örflaga ef þú er með sæmilega kjælingu.
Maxaðu multiplier og bumpaðu FSB í 450 hafðu volt auto ef hún póstar þá getur séð hvað volt hún er með á auto og byrjað að minka þaug
annars minnir mig að ég hafi verið með hann á 1,36-38 ish

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 07:07
af Ulli
sami örgjörvi. prófaðu fsb 450 og 1,32v

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 07:10
af Ulli
there you go Bro
fáðu þér svo betra minni.

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 07:36
af KrissiK
þakka þér ;) , skal reyna þetta seinna í dag.

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 21:22
af KrissiK
prufaði að setja FSB í 450 og voltage í auto.. tölvan postaði ekkert og þurfti að resetta CMOS :/

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 21:30
af Ulli
Vantar betra minni :sleezyjoesemsagt hraðvirkara.
1066 fyrir þetta borð.
Vissi ekki að þetta væri Micro atx

Re: Q9550 E0 - MSI G41TM-P33

Sent: Þri 16. Ágú 2011 21:35
af Daz
Þú lendir í vandræðum útaf minninu, þarft líklega að byrja að finna stillingu til að fastsetja það í 667 mhz. Samt ekki víst að það virki vel.

Eftir það eru skrefin einföld, hækka mhzin (fsbin, mhzin á örgjörvanum) um 2/5/10 í einu og reyna að ræsa vélina. Þegar hún ræsist ekki lengur (bootar ekki í Windows) á maður að fara í næstu stillingu fyrir neðan sem virkaði og keyra eitthvað gott stability test (Prime95 t.d.). Ef hún krassar í stability testinu eða skilar villum þá fara aftur niður um skref. Svona heldurðu áfram þangað til þú finnur í hvaða stillingu hún er stöðug.
Næsta skref fyrir ofan er svo að fikta í voltunum til að komast ofar, venjulega er þá hækkað Vcore (spennan á örgjörvanum) um eins lítið skref of hægt er og ferlið fyrir ofan framkvæmt aftur.

Þetta ætti að virka ef þú vilt fara varlega. Ef þú nennir því ekki er alveg hægt að hoppa með voltin strax upp í loft og alskonar æfingar, en ætli það auki ekki líkurnar á að skemma eitthvað.