Síða 1 af 1
hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Lau 06. Ágú 2011 03:52
af Halldór
Nú er ég að fara að kaupa mér Corsair H80
en hef ég heyrt að stock vifturnar séu mjög háværar og langar mig þá að skipta þeim út en ég veit ekki hvaða viftur ég ætti að fá mér :/ hvaða viftur mælið þið með að ég fái mér? (þetta verður push pull system)
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Lau 06. Ágú 2011 03:57
af mercury
tjahh er með sömu kælingu ákvað að fara í cm blademaster og þær eru engu skárri hvað hávaða varðar. getur kanski prufað einhvað annað.
mín skoðun er sú að miða við það sem cm og corsair gefa upp þá eru corsair vifturnar með mun hærra static pressure en cm.
held þú verðir að redda þér einhverju sem fæst ekki á íslandi ef þú ætlar að halda svipaðri kælingu en lækka db.
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Lau 06. Ágú 2011 09:48
af MatroX
Gentle Typhoon AP-15 1850RPM eru bestu vifturnar sem þú færð fyrir H80
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Lau 06. Ágú 2011 16:19
af littli-Jake
Afhverju í andskotanum þurfa menn að vera með agalega vatnskælingu og troða svo iðnaðarblásurum á þær?
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 02:23
af Halldór
MatroX skrifaði:Gentle Typhoon AP-15 1850RPM eru bestu vifturnar sem þú færð fyrir H80
hvar er hægt að kaupa þær? hvað kosta þær? og hvað eru þær háværar? hvað er statick pressure á þeim?
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 03:12
af mercury
þær hafa ekki hærra static pressure en orginal vifturnar en hugsanlega betra static pressure vs db
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 09:40
af Kristján
eru ekki noctua vifturnar ekki rosalega í þessu lægra db dæmi, ekki klár á því sjálfur enn bara henda því framm, vantar að vita þetta líka.
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 10:20
af mundivalur
Það verður alltaf suð í þessu,vifturnar eru svo nálægt vatnskassanum !
En á að vera í lagi ef maður lækkar rpm í 1200-1300rpm
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 12:28
af MatroX
mercury skrifaði:þær hafa ekki hærra static pressure en orginal vifturnar en hugsanlega betra static pressure vs db
Haaha þessar gebtle Ap-15 eru best viftur sem þú færð fyrir vatnskælingu. Með svakalega hátt static pressure og það heyrist ekki í þeim á 1850rpm en þær kosta líka sitt 4500 til 6500kr stk og það er rosalega erfitt að fá þær. Eftir spurn er meiri en framleiðslan
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 13:07
af Halldór
MatroX skrifaði:mercury skrifaði:þær hafa ekki hærra static pressure en orginal vifturnar en hugsanlega betra static pressure vs db
Haaha þessar gebtle Ap-15 eru best viftur sem þú færð fyri IOr vatnskælingu. Með svakalega hátt static pressure og það heyrist ekki í þeim á 1850rpm en þær kosta líka sitt 4500 til 6500kr stk og það er rosalega erfitt að fá þær. Eftir spurn er meiri en framleiðslan
En veistu um einhvern stað sem selur þær?
Re: hvaða viftur fyrir Corsair H80?
Sent: Sun 07. Ágú 2011 15:14
af mercury
frozencpu.com en þær eru uppseldar þar.