Síða 1 af 1

viftufilters

Sent: Fös 30. Apr 2004 23:05
af Stebbi_Johannsson
Hvað græðir maður á að hafa viftufiltera? minni hávaði? og minna ryk? eða er þetta tilgangslaust drasl? :8)

Sent: Fös 30. Apr 2004 23:19
af elv
Minna ryk

Sent: Fös 30. Apr 2004 23:23
af Stebbi_Johannsson
ekkert meir en það?

Sent: Fös 30. Apr 2004 23:28
af axyne
Stebbi_Johannsson skrifaði:ekkert meir en það?

meina þetta er viftufilter og hann á að hindra ryk komi inní kassann..

Sent: Lau 01. Maí 2004 02:22
af RadoN
ég sá einhverntíman á task.is að þeir töluðu um minni hávaða frá viftum og auðvitað að þetta filteraði ryk
ég hef samt ekki hugmynd um hvort þetta minnkar eitthvað viftusuðið, held allavega að þetta sé ekki heyranlegur munur

Sent: Lau 01. Maí 2004 02:33
af Spirou
RadoN skrifaði:ég sá einhverntíman á task.is að þeir töluðu um minni hávaða frá viftum og auðvitað að þetta filteraði ryk
ég hef samt ekki hugmynd um hvort þetta minnkar eitthvað viftusuðið, held allavega að þetta sé ekki heyranlegur munur

Ók, ég er mikill stuðningsmaður Task.is og beini mínum viðskiptum þangað og öllum sem spyrja mig hvar sé best að versla tölvuvörur. EN þeir hjá Task.is hafa ótrúlega lélega heyrn. Þeir hafa marg oft mælt með vöru ,við mig eða aðra sem ég þekki , og sagt að hún sé rosalega hljóðlát eða eitthvað í þann dúr.
Pointið er að: "ekki trúa því sem sölumenn segja um hávaða í hlutum, þeir hafa lélega heyrn".

Sent: Lau 01. Maí 2004 21:50
af Stebbi_Johannsson
en hvað með þessa gúmmíslikka eru þeir að gera eitthvað gagn?

Sent: Sun 02. Maí 2004 00:42
af Bendill
Spirou skrifaði:Ók, ég er mikill stuðningsmaður Task.is og beini mínum viðskiptum þangað og öllum sem spyrja mig hvar sé best að versla tölvuvörur. EN þeir hjá Task.is hafa ótrúlega lélega heyrn. Þeir hafa marg oft mælt með vöru ,við mig eða aðra sem ég þekki , og sagt að hún sé rosalega hljóðlát eða eitthvað í þann dúr.
Pointið er að: "ekki trúa því sem sölumenn segja um hávaða í hlutum, þeir hafa lélega heyrn".

Þetta er náttúrulega alhæfing sem á ekki við rök að styðjast. Ég skil samt hvað þú meinar, það eru fáir sölumenn sem ýkja ekki þegar þeir eru að reyna selja þér eitthvað. En allir sölumennirnir í Task.is eru með fína heyrn, ég hef allavega ekki þurft að hækka róminn til að þeir heyri það sem ég er að segja. :lol:
Ég myndi mæla með að leita fyrst á netinu að dómum um vélbúnað eða aukahluti, þar er oftast farið nánar í hlutina en það sem sölumaðurinn getur gefið þér...

Sent: Sun 02. Maí 2004 02:01
af skipio
Mér finnst þeir hjá Task vera pínu ponsu braskarar. Ég trúi þeim því varlega, sérstaklega ef þeir eru að reyna að pranga einhverju inná mig.

Það kemur hinsvegar á móti að þeir eru með góða þjónustu og ef maður er með gallaða eða bilaða vöru í höndunum má maður miklu frekar búast við að þeir komi hlutunum í gott lag en margar aðrar tölvuverslanir svo engin nöfn séu nefnd.

Persónulega kann ég best við Tölvuvirkni.

En það er mjög mikið gagn í viftufílterum. Það safnast allavega allsvakalega mikið ryk í mínum fílter - betra að hafa rykið þar sem ég get losað það heldur en inni í kassanum mínum. Ég efast stórlega, nei ég fullyrði, að viftufílter minnkar ekkert hávaða í tölvum.
Gúmmíslikkar eru ágætlega sniðugir því þá leiðir titringurinn frá viftunni síður í kassann en það hlýtur að vera hægt að fá sambærilega slikka í Byko fyrir 10 sinnum minna en í Task.

Sent: Mán 03. Maí 2004 00:31
af Guffi
sko að mínu mati við mínar aðsætður þá er bara pain að vera með filters á viku fresti þarf ég að taka tannbusta og skrúbba rykið af :x.

Sent: Mán 03. Maí 2004 00:34
af KinD^
viftufilters eru langbestir með svona "svamp" getur tekið þá úr bara og skolað í vatni og látið þá standa á borðinu í svona 10 min og skellt aftur í :P

Sent: Mið 05. Maí 2004 00:18
af Spirou
Bendill skrifaði:

true true