Nú skal modda
Sent: Sun 25. Apr 2004 14:03
Núna er ég að fara í það að modda Dragoninn minn aðeins. Ég lennti nefnilega í því skemmtilega atviki að móðurborðið mitt bilaði og þurfti ég að senda það suður í tjekk og liggur því kassinn minn tómur útí horni og á þessari viku sem viðgerðin tekur ætla ég að ganga vel frá honum. Hér ætla ég að senda inn myndir til að sýna ykkur og hvernig ég framkvæmdi. Í fyrsta lagi ætla ég að ganga frá öllum köplum og vírum og drasli svo skal ganga frá viftu og ljósamálum. Ég ætla að reyna að gera glugga á toppinn með dremel og setja gamla hddinn þar og seta ljós og þvíumlíkt. Svo ætla ég að stækka gluggann á hliðinni og fínísera ýmislegt. Myndirnar koma hingað jafn óðum og þær fæðast.[/i]