Síða 1 af 2

Downclocka?

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
hefur einhver prufað að downclocka örran sinn.
ég langar að kaupa annaðhvort Intel eða Via örgjörva og downclocka þá þangað til að ég þarf ekki viftu (er að hugsa um 100-200Mhz) á þá. haldiði að það sé hægt?
þá væri hægt að gera tölvunna virkilega hljóðláta.
(kannski að maður kaupi svona 80mm í 120mm breytistykki og skelli einni 120mm á power supplyið)

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Spirou
Ég niðurklukkaði AMDK6-2 350mhz niður í 233 og tók viftuna úr sambandi. Tölvan var í gangi stanslaust í 6 mánuði án þess að þurfa svo mikið sem restart. Ég notaði hana sem linux router/vefþjón/skráarþjón. Móðurborðið er eitthvert krapa Acorp og mér tókst ekki að fá örran til að virka í neinu öðru en 233(sem sagt ég gat ekki notað 266 eða 300).
Ef þú færð þér VIA C3 þá er niðurklukkun alveg óþarfi. Þú þarft einfaldlega ekki viftu, bara stóran og góðan hitasökkul.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af galldur
sumir gamlir P2 og Celeron voru viftulausir. upp í 300Mxxx minnir mig

sammála Spirou um að það sem þarf er gott heatsink, jafnvel setja annað við hliðina á.

ég leysti þetta hávaðavandamál með því að henda ftp servernum inn í skáp og þar svitnar hann í ró og næði.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Buddy
Samkvæmt mínum kokkabókum er betra ef þú getur lækkað spennuna líka í leiðinni. Ég keyrði 1100MHz Celeron á 733 í 6 mánuði í viftulausri tölvu og það endaði með þvi að straumbreytirinn dó (þurfti viftu). öRgjörfanum varð ekkert meint af.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
Tókstu semsagt viftuna úr power supplyinu líka? alveg hljóðlaus tölva,,,,,,,,,,næs
En hver var hitinn á örranum hjá þér?

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Buddy
Kæliplatan á örgjörfanum var svo heit í 6 mánuði að ég gat ekki snert hana án þess að brenna mig. Straumbreytirinn var aðeins heitari :) Endaði líka með því að hún dó.

Örgjörfinn stendur sig ennþá fínt en er núna í 1364MHz með viftuna í gangi. Það er ekkert að marka hitann (23°) eins og hann er gefinn upp í BIOS. Mælirinn hlýtur að vera í ólagi.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
hvað haldiði að ég geti runnað P4 2,2 Ghz hratt án þess að þurfa viftu?

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af halanegri
væri ekki bara hægt að kaupa sér eitthvað ofur-heatsink, og downclocka örlítið?

Sent: Sun 27. Okt 2002 23:19
af MezzUp
Ég er hérna með Pentium MMx 200MHz, hversu lágt þarf ég að fara með hann til þess að mega taka viftuna af?
Hvað gæti gerst? Hversu miklar líkur eru á því að ég steiki PCB plötuna ef að ég downclocka ekki nóg?

Sent: Sun 27. Okt 2002 23:44
af Spirou
MezzUp skrifaði:Ég er hérna með Pentium MMx 200MHz, hversu lágt þarf ég að fara með hann til þess að mega taka viftuna af?
Hvað gæti gerst? Hversu miklar líkur eru á því að ég steiki PCB plötuna ef að ég downclocka ekki nóg?


166Mhz með stóru hitasökkli eða jafnvel bara 200Mhz. Þessir Pentium MMX(classic + mmx) voru nú ekkert ofsalega miklir hitagjafar. Taktu bara viftuna úr sambandi og hafði tölvuna í gagni og ef hitasökkullinn verður of heitur til að hægt sé að snerta hann þá skall niðurklukka.

Sent: Mán 28. Okt 2002 13:45
af MezzUp
Thnx, geri það.
Það leiðir mig að öðru, það er grátt heatsink hliðiná örranum. Ég get alveg snert örgjörva heatsink'ið án þess að brenna mig en hinsvegar get ég enganveginn snert þetta gráa án þess að meiða mig, ég get ekki alveg áttað mig á því hvað þetta gerir vegna þess að mér sýnist að þetta sé ekki ofaná neinu sérstöku.

Sent: Mán 28. Okt 2002 15:25
af Castrate
Ég er með 266mhz Celeron sem er viftulaus....það heyrist ekkert í vélini nema þegar hdd er að hugsa :D

Sent: Mán 28. Okt 2002 17:51
af Spirou
MezzUp skrifaði:Thnx, geri það.
Það leiðir mig að öðru, það er grátt heatsink hliðiná örranum. Ég get alveg snert örgjörva heatsink'ið án þess að brenna mig en hinsvegar get ég enganveginn snert þetta gráa án þess að meiða mig, ég get ekki alveg áttað mig á því hvað þetta gerir vegna þess að mér sýnist að þetta sé ekki ofaná neinu sérstöku.


Já er svona líka á mínu gamla og án þess að hafa hugmynd ,þá myndi ég giska á að þetta væri straumbreytir.

Sent: Mán 28. Okt 2002 18:27
af halanegri
hann sagði "það er grátt HEATSINK við hliðina á örranum..."

af hverju helduru að það sé straumbreytir?

eini straumbreytirinn í tölvum er psu-ið

Sent: Mán 28. Okt 2002 21:55
af MezzUp
ég hafði tölvuna í gangi með HeavyLoad c.a. 30 mín og opnaði og kom við örgjörva hítsínkið og það var það bara aðeins heitara heldur en það er þegar það er slökkt á elskunni......

Sent: Mán 28. Okt 2002 22:57
af Spirou
halanegri skrifaði:hann sagði "það er grátt HEATSINK við hliðina á örranum..."

af hverju helduru að það sé straumbreytir?

eini straumbreytirinn í tölvum er psu-ið


Af því að straumbreytar hitna!

Sent: Mán 28. Okt 2002 22:57
af Spirou
MezzUp skrifaði:ég hafði tölvuna í gangi með HeavyLoad c.a. 30 mín og opnaði og kom við örgjörva hítsínkið og það var það bara aðeins heitara heldur en það er þegar það er slökkt á elskunni......


Mér sýnist þú bara vera kominn með fínasta "silent router" :lol:

Sent: Mán 28. Okt 2002 23:49
af MezzUp
True, samt langaði mig að spyrja ykkur að þrennu.
Er einhver leið til þess að lækka soundið í HD án þess að kæfa hann. Ég veit að það er til forrit fyrir Linux sem að tunar-niður hraðann í Cd drævinu (og í leiðinni hljóðlátari), er til eitthvað sambærilegt fyrir HD (ég veit hvernig HD vinnur þannig að ég efast um það en það sakar eigi að spyrja)
Annað, er viftan í PSU til þess að hafa loftflæði í kassanum eða er hún að kæla PSU'ið?
Þriðja, er hægt að búa til/kaupa einfalt stykki sem að lækka hraðann á viftunni um helming, engar stillingar eða neitt solleis.

ps. seinasti pósturinn minn gæti hafa misskilist þar sem að ég var með viftuna á áður en að ég tjekkaði hitann.....

Sent: Þri 29. Okt 2002 01:26
af PeZiK
Fá sér bara eyrnatappa ! ...grín :sjd

-PeZiK-

Sent: Þri 29. Okt 2002 03:41
af Dári
Mezzup: þú getur verslað þér sona júnit: http://www.siliconacoustics.com/smartdrive.html sem á að hafa einhver áhrif á hávaðan.

Sent: Þri 29. Okt 2002 08:07
af Spirou
MezzUp skrifaði:True, samt langaði mig að spyrja ykkur að þrennu.
Er einhver leið til þess að lækka soundið í HD án þess að kæfa hann. Ég veit að það er til forrit fyrir Linux sem að tunar-niður hraðann í Cd drævinu (og í leiðinni hljóðlátari), er til eitthvað sambærilegt fyrir HD (ég veit hvernig HD vinnur þannig að ég efast um það en það sakar eigi að spyrja)
Annað, er viftan í PSU til þess að hafa loftflæði í kassanum eða er hún að kæla PSU'ið?
Þriðja, er hægt að búa til/kaupa einfalt stykki sem að lækka hraðann á viftunni um helming, engar stillingar eða neitt solleis.

ps. seinasti pósturinn minn gæti hafa misskilist þar sem að ég var með viftuna á áður en að ég tjekkaði hitann.....

Besta leiðin til að losna við hávaða í hörðum diskum er að kaupa hljóðláta disk :wink: ,ég hef enga trú á neinu öðru. Sjálfur keypti ég Seagate Barracuda IV því þeir fengu mjög góða dóma í "accustic" geiranum á http://www.storagereview.com. Nokkrum mánuðum keypti ég svo annan, því ég var svo ánægður með hinn, og ekki var verra að hann var orðinn 4þús krónum ódýrari :lol:

Megin tilgangur viftunar á PSU-inu er að kæla sjálft PSU. En það kælir auðvitað allan kassann í leiðinni með því að draga heitt loft út úr honum. Málið er að það dregur bara ekkert mikið loft út úr honum(fer auðvitað eftir viftunni í PSU-inu og því hversu loft getur auðveldlega streymt í gegn um það.

Hmm ég man ekki lengur hver spurningin var, jæja vona þetta hjálpi.

Sent: Þri 29. Okt 2002 11:27
af MezzUp
pezik: amms, ætli það sé ekki einfaldast :)
Spirou: Ég var að skoða svona diska um daginn en þegar ég skoðaði benchmark þá gekk honum ekkert alltof vel miðað við aðra.
Hvar keyptirðu þá? Hvað kostuðu þeir? Hvað eru þeir stórir? Eru þeir hljóðlátir? Eru þeir að performa verr en aðrir?

Hmm...

Sent: Þri 29. Okt 2002 15:08
af Saber
Það væri gaman að eignast eina ca. 200 mhz með góðu móbói, 128mb ram og voodoo korti fyrir alla klassísku leikina. Rífa svo allar viftur úr og setja bara góð heatsink í staðinn. :8)

Ætli það sé til tveggja viftu silent 200-250W power supply? :lol:

Sent: Þri 29. Okt 2002 18:59
af MezzUp
Ég á 200Mhz, eitthvað Acorp móðurborð sem að virðist ekki vera til, 32MB EDO ram og svo VooDoo í annarri tölvu :)

Sent: Þri 29. Okt 2002 20:23
af halanegri
ég á 3d kort sem ég notaði fyrir nokktum mánuðum. það er Creative 3D Blaster Banshee 16MB(3DFx Banshee) og það virkar með öllum gömlu leikjum sem höfðu bara 3d support fyrir 3dfx eins og NFS2SE sem er snilldin ein.