Síða 1 af 1

Zalman CNPS7000A-Cu örgjörvavifta

Sent: Fös 23. Apr 2004 16:39
af Hlynzit
Sælir kæru vaktmenn.
Ég er að hugsa um að fá mér betri kælingu á örgjörvann minn, er með retail kælingu. EN allaveganna þá er ég að hugsa um að kaupa mér Zalman CNPS7000A-Cu örgjörvavifta (betur þekkt sem "Blómið") http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=359 En allaveganna þá hef ég heyrt að viftan kæli ekki nógu vel. Er það satt? og ef svo er vitiði hvort það séi hægt að skipta um viftu og hvaða viftu mæliði þá með?

Sent: Fös 23. Apr 2004 17:23
af arnarj
kallast reyndar "bollinn" ekki blómið. Skv. þeim sem ég þekki þá þrælvirkar hún.

Sent: Fös 23. Apr 2004 17:34
af elv
Já hún er fín

Sent: Fös 23. Apr 2004 18:34
af Hlynzit
arnarj skrifaði:kallast reyndar "bollinn" ekki blómið. Skv. þeim sem ég þekki þá þrælvirkar hún.


Las á netinu einhversstaðar; Zalman Flower og var mynd afþessu og var í task.is að versla fyrir félaga minn og þá kallaði afgreiðslu maðurinn þetta Blómið :)

Sent: Fös 23. Apr 2004 20:33
af elv
Þetta er fínt HS...viftan er kannski ekki sú besta en alveg nóg...síðan er soldið mod að setja aðra viftu á

Sent: Fös 23. Apr 2004 23:22
af MJJ
CNP 5700 CU er líklegri til að vera kölluð bollinn meðað við útlit, ég er með þannig og hún er að virka eins böllur í feiti.

Sent: Lau 24. Apr 2004 00:10
af Spirou
Sko málið er að týpan sem var vinsæl á undan "böllinum" var kallað blómið "flower".
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=21

Böllurinn er í sama lit og með svipað útlit(þunnar koparskífur) en heitir í raun ekki flower.

Sent: Sun 25. Apr 2004 16:04
af Runar
Ég er með þessa viftu og með 3.2GHZ örgjörvan og er með hana stillta á silent mode og þetta kælir alveg nógu vel.. betri en retail viftan allavegana..

Sent: Sun 25. Apr 2004 16:22
af Hlynzit
Runar skrifaði:Ég er með þessa viftu og með 3.2GHZ örgjörvan og er með hana stillta á silent mode og þetta kælir alveg nógu vel.. betri en retail viftan allavegana..


Hver er hitinn?


Ví 500 svarið mitt