Síða 1 af 1

oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 22:53
af atlih
Er að yfirklukka þennan smá, en ég er skíthræddur við að breyta voltunum. Er enhver hér sem hefur yfirklukkað svona gaur . lvar að pæla í að hafa þetta svona 8x400mz(3,2ghz). Er með kælingu sem er nú ekkert mikið betri en stock ,OCz vindicator.
svo þetta eru 2 spurningar
hvað ætti ég að stilla volt á , án þess að grilla kvikindið?
ætti ég að fara eitthvað hærra?
fyrirframm þakkir gömlu.

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:03
af dori
Ertu búinn að reyna að keyra hann svona á óbreyttum voltum? Prufaðu það og sjáðu hvort tölvan ræsi sig og hvort hann sé stabíll. Þú þarft ekkert að hækka voltin strax.

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:07
af atlih
hún restartaði sér bara og for aftur í stock stillingu. er með hann nuna á 3ghz. það er ekkert mál. Veit að ég þarf að hækka voltin , það er bara svo vandasamt ef maður failar eitthvað. draumurinn væri 3,6 svo ég myndi sjá mun.

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:09
af dori
Er hann alveg stabíll á 3Ghz? Á hvaða hita keyrir hann á 100% load í smá tíma?

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:13
af atlih
er ekki til eitthvað sniðugt forrit til þessa að láta örgjörfan vinna á fullum afköstum , svo ég sjái hverning hann er á load

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:14
af mercury
ef þú ert óvanur í þessu þá mæli ég með því að þú lesir þér vel til áður en þú lendir í einhverju tómu tjóni.

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:24
af atlih
hann er á 40-45 gráðum

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:24
af Frost
Náði mínum gamla uppí 3,4Ghz

Re: oC e6750

Sent: Mið 04. Maí 2011 23:28
af atlih
varla á stock volt er það ?

Re: oC e6750

Sent: Fim 05. Maí 2011 00:54
af k0fuz
Sammála mercury, sýnist þú vera ólesinn varðandi þetta, ef þú vilt virkilega gera þetta og án þess að skemma neitt þá lestu þig til um þetta. Finnur góða linka efst í Overclocking dálkinum sem eru stickys.

Re: oC e6750

Sent: Fim 05. Maí 2011 01:01
af Frost
atlih skrifaði:varla á stock volt er það ?


nei voltin voru í c.a. 1,4 minnir mig.

Re: oC e6750

Sent: Fim 05. Maí 2011 01:16
af atlih
k k takk ,. er alveg búinn að lesa mig til , vildi bara hafa þetta enþá meira á hreynu með hjálp íslenskra tölvunörda

Re: oC e6750

Sent: Fim 05. Maí 2011 07:25
af audiophile
Ég er búinn að keyra minn á 3.2ghz í 3-4 ár án nokkurra vandræða. Ég er með einhverja Coolermaster álturnkælingu, heitir 202 eða eitthvað þannig.

Mynd

Re: oC e6750

Sent: Fim 05. Maí 2011 08:47
af Daz
Ég kom mínum í 3,6 ghz óstabílt. Hitinn líka kominn ansi hátt þá. Ég lenti aftur á móti í vandræðum með sum mhz bil, t.d. FSB frá 380 - 415 var annaðhvort gríðarlega óstabílt eða hreinlega bootaði ekki. 420+ var svo skárra en þá var hita og voltamálin farin að flækjast fyrir mér.

Re: oC e6750

Sent: Fim 05. Maí 2011 10:25
af chaplin
Daz skrifaði:Ég kom mínum í 3,6 ghz óstabílt. Hitinn líka kominn ansi hátt þá. Ég lenti aftur á móti í vandræðum með sum mhz bil, t.d. FSB frá 380 - 415 var annaðhvort gríðarlega óstabílt eða hreinlega bootaði ekki. 420+ var svo skárra en þá var hita og voltamálin farin að flækjast fyrir mér.

Ég náði mínum E6420 í 3.4 GHz í den, allt milli 3.4-3.55 GHz var óstabílt(komst ekki í Windows) en 3.55-3.65 GHz virkaði fínt í alla leiki og forrit, fékk aldrei BSOD né vesen en gat þó ekki keyrt LinPack né Prime95 í meira en 2 sekúndur nema forritin myndu stoppa.

Þú ert held ég nokkuð öruggur með að ná ca. 3.4 GHz ± 0.1 Ghz ef þú færð þér örlítið öflugir kælingu og lest þig vel um þetta mál. ;)

Re: oC e6750

Sent: Sun 08. Maí 2011 01:18
af gunni91
Af tölvan er ekki ad kveikja a ser eda er óstabíl, prufaðu ad hækka aðeins voltin i northbridge , ætti ad gefa þer sma svigrum, annars attu ekki ad þurfa neitt hærra en 1,4 v i v-core