Síða 1 af 1
Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 18:57
af KristinnK
Veit einhver hérna hvort það fáist á Íslandi hitaleiðandi lím (e. thermal adhesive).
Dæmi um svona er
þetta hérna hjá Arctic Silver.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:05
af FuriousJoe
Held þetta fáist hjá Tölvutek, nokkuð viss um að ég hafi séð svona þar.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:06
af lukkuláki
KristinnK skrifaði:Veit einhver hérna hvort það fáist á Íslandi hitaleiðandi lím (e. thermal adhesive).
Dæmi um svona er
þetta hérna hjá Arctic Silver.
Já þetta fæst víða og er hitaleiðandi krem, ekki lím
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:10
af KristinnK
Arctic Silver skrifaði:CAUTION!
Arctic Silver Thermal Adhesive is a permanent adhesive.
Components you attach with Arctic Silver Thermal Adhesive will stay attached forever.
Orðabók.is skrifaði:adhesive
NAFNORÐ
lím h.
Ég geri mér grein fyrir að við erum vanari kreminu, en mig vanntar svona lím.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:11
af FuriousJoe
lukkuláki skrifaði:KristinnK skrifaði:Veit einhver hérna hvort það fáist á Íslandi hitaleiðandi lím (e. thermal adhesive).
Dæmi um svona er
þetta hérna hjá Arctic Silver.
Já þetta fæst víða og er hitaleiðandi krem, ekki lím
Nei held að þetta séi eitthvað annað, las aðeins meira af þessari síðu.
CAUTION!
Arctic Silver Thermal Adhesive is a permanent adhesive.
Components you attach with Arctic Silver Thermal Adhesive will stay attached forever.
Arctic Silver Thermal Adhesive should be kept cold and away from UV light (sunlight and florescent lighting).
We recommend refrigerating the unused material and allowing it to come to room temperature prior to use.
Hljómar ekki eins og kælikrem :/
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:31
af lukkuláki
Ok afsakið ég hef ekki skoðað þetta nógu vel þetta er greinilega lím ætlað á kælingar td. á kubbasett sem hefur ekki sérstakar festingar.
Ég hef ekki séð svona á klakanum en myndi halda að miðbæjarradio eða íhlutum skipholti. Ef ekki þá myndi ég tékka á Kemi.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:37
af Kristján Gerhard
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 19:46
af FuriousJoe
Kristján Gerhard skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=18776&start=0&st=0&sk=t&sd=a
Flottur
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 20:23
af KristinnK
Já, ég fer í Miðbæjarradíó, og sé hvort þeir séu ekki með þetta. Takk fyrir ábendingarnar.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 20:31
af chaplin
Farðu VARLEGA með þetta, ef þú setur þetta á örgjörva, mundu aldrei ná kælingunni af, þetta er oftast notað á skjákort/móðurborð til að festa kæliplötur sem á aldrei að taka aftur af.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 20:35
af KristinnK
Hehe, ég ætla ekki að setja þetta á örgjörva. Ég ætla að taka lítla heatsinks af gömlu móðurborði og líma á voltage regulator á skjákorti.
Re: Fæst hitaleiðandi lím á Íslandi?
Sent: Þri 03. Maí 2011 20:47
af chaplin
Gæti trúað að þú gætir tapað ábyrgðinni við að gera það.