Síða 1 af 1
OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 01:05
af MrIce
Hvað er svona, mögulegt að OC'a 930 upp í áður en maður er kominn í vandræði ?
ég er að keyra atm á 3ghz (+0.20 ghz er eikkað.. fyrsta sinn sem ég er að OC'a og vill ekki brenna neitt yfir)
Tips og hints vel þegið ^^
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 01:31
af SolidFeather
0.2Ghz ertu klikk?
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 01:34
af MrIce
i know
scared me too (smá update : er kominn í 3,6ghz og er ennþá að ná að ræsa, so far so good... any tips eða bara halda áfram þangað til ég get ekki komist í windows?)
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 02:41
af dragonis
Veit ekki hvað fólk er að ná á þessum örgjörva,en mín reynsla er að hækka Vcore eftir 400 - 500 Mhz um 0.2 og xetra.
Bara að fikta sig áfram
mæli méð að taka Prime test í min 2 tíma eftir hvert stökk eftir 500 Mhz múrinn.
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 06:31
af mercury
lestu þér til á google og horfðu á video á youtube. þá verður þú sennilega fljótur að ná þessu
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 06:39
af atlif
mercury skrifaði:lestu þér til á google og horfðu á video á youtube. þá verður þú sennilega fljótur að ná þessu
sammála mercury þar að segja ef þú ert með góða kælingu og móðurborð sem er að fíla OC
en passaðu þig samt á því að verða ekki of graður, en ef þú ert kominn með örrann á þann hraða sem þú ert að leita eftir þá mæli ég með að prófa hann ég nota "ortho" og á meðan fylgjast með hitanum og vinslunni og svona =)
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 10:04
af MrIce
ég er að keyra á 4ghz atm.... ég var með prime 95 í stress prófi í 5 klst og hitinn er frekar hár.. held ég þurfi að lækka OC'ið aðeins..... hitinn var að slá í 100°c á örranum ( prófaði samt að snerta kælinguna og hún var bara aðeins volg og fín..:S )
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 10:24
af Eiiki
Ekki ofhita örgjörvann þá skemmiru hann! Algjört hámarks hitastig á örgjörva eru 60-65°C til lengdar. Keyptu þér betri kælingu ef þú ætlar í overclock. Keyptu þér NH-D14 eða einhverja vatnskælingu. Þú verður að fara varlega í þetta ef þú vilt ekki steikja örrann og skemma jafnvel móðurborðið með.
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 13:26
af vesley
Eiiki skrifaði:Ekki ofhita örgjörvann þá skemmiru hann! Algjört hámarks hitastig á örgjörva eru 60-65°C til lengdar. Keyptu þér betri kælingu ef þú ætlar í overclock. Keyptu þér NH-D14 eða einhverja vatnskælingu. Þú verður að fara varlega í þetta ef þú vilt ekki steikja örrann og skemma jafnvel móðurborðið með.
Hámarkið er mjööög mismunandi eftir módeli. Intel lga1366 örgjörvar geta þolað uppí 90°C og jafnvel aðeins meira án þess að grillast , en ekki til lengdar. 60-65° er yfirleitt viðmiðunarhitastig hjá lga1366. Ef hitinn fer eitthvað yfir það þá er yfirklukkunin ekki nógu góð.
Re: OC'ing i7 930
Sent: Fös 08. Apr 2011 14:31
af MrIce
Orrite, útafþví að fjárhagurinn leyfir ekki nýjann örgjörva eða móðurborð næstu áratugi eða svo þá er ég búinn að setja allt í norm aftur..... 'twas fun but no.....