Síða 1 af 1
skjákortsviftan mín
Sent: Fim 01. Apr 2004 20:36
af xylic
mig langar að taka viftuna úr sambandi (ég er með geforce 4) því hún er byrjuð að vera svo leiðinlega hávær. er viftan alveg nauðsynleg? er mikil hætta á ofhitnun? kannski kjánaleg spurning, en það sakar ekki að spyrja engu að síður.
Sent: Fim 01. Apr 2004 20:52
af FrankC
fáðu þér zalman kæliplötur á kortið, fást hjá task og á fleiri stöðum
Sent: Fim 01. Apr 2004 20:55
af Nemesis
ég myndi bara prófa
Sent: Fim 01. Apr 2004 22:28
af Hlynzit
hehe bjössa alveg sama um þetta skjákort hvort það skemmist eða ekki
Sent: Fim 01. Apr 2004 22:30
af FrankC
getur líka prófað taka viftuna af örranum í leiðinni...
Sent: Fim 01. Apr 2004 22:31
af Hlynzit
ekki myndi ég gera það
Sent: Fim 01. Apr 2004 22:43
af FrankC
nei, það væri álíka gáfulegt og að taka viftuna af skjakortinu =) ... ekki gera það, það þarf kælingu ef hún er á því fyrir, ég mæli eindregið með zalman kæliplötunum, þær björguðu mér þegar ég var að klikkast á skjákortsviftunni
Sent: Fim 01. Apr 2004 22:48
af viddi
ég gerði nú bara það sama og einhver annar hér tók þessa vælandi viftu úr sambandi á kortinu mínu og moddaði 80mm kassaviftuna mína á kortið í staðinn
Sent: Fim 01. Apr 2004 22:57
af GuðjónR
Ég er með eitt svona gamalt gf4 mx440 kort og það er meira en hálft ár síðan ég tók viftuna úr sambandi og það svínvirkar enn.
Enda kostar svona kort ekki nema 5k ef það grillast...sé ekki að það borgi sig að kaupa Zalman sett fyrir 5k á svona ódýrt og úrelt kort.
Sent: Fim 01. Apr 2004 23:19
af muggsi
ég myndi bara klippa á vírinn!!
Sent: Fös 02. Apr 2004 01:51
af xylic
takk fyrir svörin
góð hugmynd þarna um að taka cpu viftuna úr sambandi. það er örugglega nóg að hella vatni yfir örrann á vikufresti eða svo til að kæla kvikindið!
þessi vifta er gjörsamlega að gera mig brjálaðann. fyrir nokkrum dögum byrjaði hún á þessum túrverkjum. hélt að þetta væri CPU viftann, þannig að ég keypti mér nýja zalman viftu í gær. það var nú tímabært að ég fengi mér nýja viftu (var með draslið sem fylgdi örranum áður) þannig að ég sé nátturlega allsekki eftir því.
ég mundi vilja vera öruggur á því og kaupa þessar kæliplötur sem einhverjir bentu á, en ég hef eiginlega ekki pening í það. þannig að ég held að ég fari að ráðum GuðjónsR, þarsem hann hefur prófað þetta með að taka viftuna úr sambandi. og einsog hann segir, þetta er nú það ódýrt og gamalt kort að það sakar ekki að kýla bara á það.
Sent: Fös 02. Apr 2004 07:16
af elv
Áðer en þú klippir á viftuna....ertu með MX eða Ti, Ti Kortin hitna töluvert meira svo það ER betra að vera með einhverja viftu.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=3141 þetta er ekki fallegt en virkar og með góðri viftu heyri þú ekkert en samt kælist kortið betur en með viftunni sem fylgdi.Getur notað SilenX viftu td sem kostar 1500KR...
Sent: Fös 02. Apr 2004 10:41
af viddi
elv skrifaði:Áðer en þú klippir á viftuna....ertu með MX eða Ti, Ti Kortin hitna töluvert meira svo það ER betra að vera með einhverja viftu.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=3141 þetta er ekki fallegt en virkar og með góðri viftu heyri þú ekkert en samt kælist kortið betur en með viftunni sem fylgdi.Getur notað SilenX viftu td sem kostar 1500KR...
hehe ég gerði það nákvæmlega sama við mitt kort þetta er snilld
Sent: Fös 02. Apr 2004 13:49
af enypha
Ein viðvörun:
Ég á GF4MX og viftan var einmitt að gera mig vitlausan (að öðru leyti hljóðlaus tölva) svo ég tók hana úr sambandi og TÓK VIFTUNA AF. Þessi litli heatsink sem er á kortinu fær að virka þó betur ef það er ekki plasthlussa að hindra loftflæði um hann. Einnig setti ég eina panaflo L kassaviftu á hliðina (Dragon kassi) og hún blæs beint á kortið. Setti hitamæli á þetta sem fylgdi með móbó-inu og heatsink-ið fór úr rétt um 30° í rúmlega 40° að mig minnir. Ég er reyndar ekki í einhverju leikjabulli svo ég er ekki að reyna neitt á kvikindið.