Síða 1 af 1

Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 02:11
af DK404
Hallo ég er að reyna tengja 2 led viftur saman í eina svo það væri bara eitt 3 pin tengi, er búinn að googla þetta er er ekki að skilja neit því maður þarf eithvermegin að skera pinnana ? vona að eithver hefur gert þetta og gæti aðstoðað mig, hérna er mynd af viftum.


Mynd

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 02:22
af Klaufi
](*,)

Keyptu þér svona:
Mynd

Með fullri virðinug þá held ég að þú hafir alls ekki þolinmæði í að klippa vírana og lóða þá saman..

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 10:10
af DK404
ok. smá spuning hvað kallast þetta og ef þú getur hvar er hægt að kaupa svona snúru.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 10:21
af Klaufi
T.d. 3-pin Y-fan connector, þriggja víra Y-skott, og margt fleira..

Fæst á newegg og líklega í einhverjum tölvuverslunum hérna heima.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 10:31
af biturk
skohh, ég var búnn að útskýra þetta býsna vel í pm, nema bara þú vildir hafa takka á þessu þá.


afeinangraðu svon 1 cm af hverju vír rétt aftan við tengið á annari viftunni án þess að klippa þá í sundur


klipptu tengið af hinni viftunni, afeinangraðu endana og snúðu hverjum vír fyrir sig utan um óeinangraðahlutan á hinum, passa sig að gera það nokkuð þétt. (rauður í rauðann, svartur í svartann og gulan í gulan)

fáðu þér síðann lóðbolta og lóðaðu vírana saman, gera það bara vel og fallega.

síðan geturu annaðhvort sett herpihólk á vírana, hver fyrir sig eða teipað, gerðu það þá samt með gulu, rauðu og svörtu teipi.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 18:42
af DK404
biturk, út af eithverji ástæðu eydust allir póstar minn og ég reyndi að senda þér póst svo þú gætir sagt mér þetta aftur.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 18:43
af DK404
Ups double post sorry.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 18:57
af B.Ingimarsson
til að tengja þá saman, er einfaldast að nota krónutengi (til að skrúfa vírana saman) ,dragðu svona 1cm af vírunum og skrúfaðu saman (gulur er fyrir hraðamæli þannig að þú sleppir honum bara held ég): ertu ekki annars að tala um þetta :?:

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 19:11
af DK404
jú svo ég gæti tengt 2 viftur í eitt tengi.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 21:31
af Dazy crazy
Er nógur straumur í einu tengi fyrir 2 viftur? þær eru rosalega misjafnar, sumar 90cm viftur taka 0,10 A á 12 voltum á meðan aðrar eins og tacens taka 0,25A á tólf voltum.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 22:49
af DK404
Þetta eru 2 nákvæmlega eins viftur sama tegund sama stærð.

Re: Viftur [MOD][BÚINN AÐ GOOGLA !]

Sent: Sun 13. Feb 2011 23:09
af Hvati
Gætiru ekki bara reynt að finna 3-pin í 4-pinna molex tengi? Fylgir nú með mörgum viftum, held ég eigi eitt svona sem fylgdi með Tacens viftunni minni.