Síða 1 af 1
Overclock
Sent: Sun 28. Mar 2004 11:12
af Sveinn
Sælir Vaktarar,
Í sambandi við Overclock, mér er sagt að það geti lækkað "tíðnina" ef ég man rétt, og hefur einfaldlega bara nokkra ókosti? Eru engnir ókostir við það? nema að það getur beilað eða eitthvað og allt í kaos
Sent: Sun 28. Mar 2004 12:03
af pjesi
Meinar þú að hækka tíðnina?
Sent: Sun 28. Mar 2004 13:14
af Snorrmund
hvað ertu að meina með að lækka tíðnina
hvaða tíðni?
Sent: Sun 28. Mar 2004 19:45
af Sveinn
omgomgomgomg!!! :S:S:S:S! ég sagðist ekki vera viss um hvað þetta héti! og ef þið vissuð það ekki þá áttuð þið að nefna einhverja galla.
Sent: Mán 29. Mar 2004 11:55
af wICE_man
Ertu að spyrja um galla við að yfirklukka örgjörvann?
Engir ef rétt er farið að (ábyrgðin á örranum er samt fokin út í buskan ef maður gerir það), þú þarft bara að kæla örran nógu vel og halda þig við þau mörk sem móðurborðið er gert fyrir.
Sent: Mán 29. Mar 2004 15:02
af Sveinn
já ók
þarna kom það sem mig vantaði.
En ég er hvort eð er bara að fara overclocka 200mhz þanniiig .. annars er ég með Zalman 7000A-Cu Copper (20-35dB) Sockets: 478/462/754
það ætti allavega að vera nóg sko
Sent: Mán 29. Mar 2004 19:02
af wICE_man
200MHz er mjög hóflegt yfirklukk og miðað við viftuna þá eru engin vandamál fyrirsjáanleg.
Ég er með XPinn minn (upprunalega 1467MHz) á 2GHz og hann svitnar ekki við það
Sent: Þri 30. Mar 2004 00:50
af Fat
sambandi við Overclock, mér er sagt að það geti lækkað "tíðnina" ef ég man rétt, og hefur einfaldlega bara nokkra ókosti? Eru engnir ókostir við það? nema að það getur beilað eða eitthvað og allt í kaos
Þegar menn eru með minni sem overclockast illa þarf oft að lækka tíðnina á því svo það höndli þessa nýju og hærri fsb tíðni þ.e. að breita dividernum, t.d fara í 2:3 úr 1:1 sem sökkar svaðalega. t.d ef þú ert með 400mhz minni ertu búin að NIÐUKLUKKA það í 266mhz þá virkar tölvan einfaldlega verr en með orginal styllingarnar.
En ef þú ert með ólæstan AMD geturu náttúruleg bara breitt multipliernum og þarft því ekkert að vesenast með að breyta fsb.
en best er að vera með gott minni helst yfir 400 Mhz (433. 466, 500, 550)
Sent: Þri 30. Mar 2004 14:12
af SkaveN
Nota 5:4 divider þá, eflaust vinsælast í dag
Er sjálfur að keyra 1gb af hyperX í 2-2-2-4 og á 372mhz í 5:4 divider, FSB í 233 kem honum i rúmlega 240
Sent: Þri 30. Mar 2004 15:12
af Hlynzi
Þið vitið að örgjörvar hafa minni endingartíma með því að yfirklukka þá heyrði ég (best að hleypa smá eldi í sinuna)
Það voru einhverjir rugludallar sem fannst það voðalega flott að undirklukka tölvuna sína svo mikið að það tæki allavegana klukkutíma að opna mIrc. Sem er nú rugl.
Mér finnst þægilegast að hafa mína vél á orginal stillingum, og nóga kælingu. Betur örgjörvi vinnur eitthvað hraðar, af því að það er meira viðnám sem meiri hiti er í leiðara.
Sent: Þri 30. Mar 2004 15:17
af viddi
jájá
Sent: Þri 30. Mar 2004 15:31
af gnarr
það er rugl að örgjörvar endist eitthvað styttra..
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:55
af Nemesis
Hann endist styttra ef maður hækkar strauminn, er hins vegar ekki viss hvort nokkur geti sýnt fram á að hraðaaukning án þess að breyta strauminum stytti eitthvað endingartíma örgjörvans.
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:57
af gnarr
hann endist ekkert styttra ef maður eykur strauminn. það er náttla möguleiki að auka strauminn of mikið. en þá drepst hann 1,2 og 3. hinsvegar ef þú ert mmeð gott jafnvægi á milli kælingar og overclocks, þá endist hann alveg jafn legni og vanalega.
Sent: Þri 30. Mar 2004 20:22
af Nemesis
gnarr: Ekki kasta bara fram svona staðhæfingum án nokkurra raka, ég hef lesið á fleiri en einum stað að mikil straumsaukning stytti endingartímann
mjög mikið, en ef maður eykur strauminn lítið styttir það samt sem áður endingartímann, bara það lítið að þú ert búinn að fá þér annan.
[Tekið af AnandTech.com]
... Anyway, when you overvolt your CPU, you normally should be wary of how much you overvolt. For example, running your Athlon XP CPU at 2.0V or higher is simply not a good idea by any stretch of the imagination if you plan on keeping your CPU more than a month or two. It will die at that high of a voltage; we've seen it happen before and have had countless reliable reports of such failings. However, with the right mix of overvolting (1.75V-1.80V), your CPU should last as long as you're going to keep it, which is usually 9 months or less (by the time the better overclocking chips come around, in other words). ...
Las þetta síðast í gær; þarna er sagt að mikil straumsaukning stytti endingartíma Athlon XP allsvakalega, en minni aukning stytti hann svo lítið að maður finni ekki fyrir því ef maður skiptir um örgjörva á 9 mánaða fresti (overclocker's best-buy guide). Ég túlka þetta þannig að straumsaukning stytti alltaf endingartíma eitthvað (auðvitað mismunandi eftir eintökum o.s.fr.), hins vegar þarf maður ekki að finna fyrir því ef maður eykur strauminn það lítið að maður verði búinn að skipta um þegar sá eldri ætti að hafa sungið sitt síðasta.