Jæja gott fólk og moddarar.
Nú fer senn að líða að Skjálfta 2 - 2oo4 (líklegast í byrjun Júní) og þá verður heljareinar fjör á bæ.
Það verður nýjung núna á þessu móti sem felst í því að ég mun standa fyrir Mod keppni ... já. Mod keppni á því hver verður með flottasta kassann.
þetta verður bara svona í léttu fjöri gert þar sem að margir eru farnir að leggja gífurlegan metnað í að breyta kössunum sínum og margir hverjir á rosalega flottann hátt. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um verðlaun að svo stöddu en það verður nú að öllum líkindum eitthvað handa sigurvegaranum.. Eitthvað sniðugt frá Opnum Kerfum.
Athugið !! að þetta er ekki 100% staðfest en er allt saman í undirbúningi og hvetjum við því alla sem áhuga hafa og eruð iðnir við breytingar um að fara að drífa gamla kassann í ný nærföt og taka þátt..
Sjáumst hressir á S2 - 2oo4
Skjálfti 2 - 2004
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 297
- Skráði sig: Mið 29. Okt 2003 01:46
- Reputation: 1
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Góð hugmynd, þetta myndi örugglega efla "modding-áhuga" Íslendinga til muna ef vel væri að verki staðið. Til að þessi hugmynd virki þó, þyrfti að hafa þetta áhorfsvænt, til dæmis væri mögulegt að láta keppendur stíga á svið með tölvurnar sínar og sýna þér áhorfendum og dómnefnd. Svo gefur dómnefndin keppendum einkunn annaðhvort strax eða öllum í einu þegar keppendur hafa lokið sýningu. Svo yrðu veitt verðlaun strax. Mestu skiptir bara að hafa engar tafir, láta þetta ganga vel fyrir sig.
Önnur spurning varðar dómgæslu. Ef skipa á dómnefnd, passaðu þá að óháðir aðilar skipi hana og þeir hafi einhvert vit á þessu
Sniðugt væri að gefa fyrir hina ýmsu þætti, til dæmis útlit, vinnu, uppbyggingu, notagildi, frumleika og svo heildareinkunn af því. Ég nefni þessa þætti þó einungis sem dæmi, ekki taka einkunnarþættina of hátíðlega

- spjallið.is
- Póstar: 419
- Skráði sig: Mið 04. Des 2002 22:30
- Reputation: 0
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
-
Höfundur - Staða: Ótengdur
Verðlaun. Eins og áður kom fram í greininni sem ég skrifaði þá er þetta ennþá bara á "beta" stigi og hefur ekki verið tekin endanleg ákvöðrun um hvort þetta yfir höfuð verði en ég veit að áhuginn er svo sannarlega til staðar og ég hef ráðfært mig við þá er sjá um þetta mót( samstarfsmenn mína ) og leist þeim mjög vel á þessa hugmynd.
Verðlaun er ekkert vitað um ennþá en okkur fannst nú samt svona skemmtilegra að reyna að hafa eitthvað í verðlaun en það yrði þá að öllum líkindum eitthvað frá Opnum Kerfum þar sem að þeir eru aðalstyrktaraðilli mótsins. en þetta verður bara að koma í ljós. Persónulega væri mér alveg sama hvort ég fengi eitthvað eða ekki.. þetta er meira svona .."more than meets the eye" gaman að sjá flotta turna með ljósum og kælingum og tilheyrandi. Gaman að vita það líka að maður á Officially flottasta búnaðinn á klakanum í dag er það ekki..
allavega ef þið hafið einhverjar frekari spurningar þá póstið því bara hérna og ég skal reyna að svara eins og mögulegt er