Síða 1 af 1

Kassi fyrir alvöru karlmenn :)

Sent: Þri 23. Mar 2004 15:21
af sjarmi
Hvernig finnst ykkur þessi kassi??? Móðurborðið haft á hvolfi, aflgjafinn neðst og pláss fyrir 12 x 3,5" internal og 7 x 5.25".
Það eru líka til minni kassar.

http://www.lian-li.com/products/pcv2000.htm

Sent: Þri 23. Mar 2004 15:33
af fallen
töff

Sent: Þri 23. Mar 2004 15:33
af Bendill
Mac G5 Ripoff, en samt kúl... Me wants...

Sent: Þri 23. Mar 2004 18:18
af Cras Override
já já ok......

Sent: Mið 24. Mar 2004 01:39
af amma
Mér finnst hann foxljótur

Sent: Mið 24. Mar 2004 01:53
af gnarr
og fox var sko ljótur! :lol:

Sent: Mið 24. Mar 2004 02:01
af amma
Plús það að það er fáránleg hugmynd að hafa móðurborðið á hvolfi. Hiti leitar alltaf upp þannig að móbóið yrði allaf heitara svona.
Ég mundi dömpa þessu ógeði í höfnina.

Sent: Mið 24. Mar 2004 02:57
af axyne
amma skrifaði:Plús það að það er fáránleg hugmynd að hafa móðurborðið á hvolfi. Hiti leitar alltaf upp þannig að móbóið yrði allaf heitara svona.
Ég mundi dömpa þessu ógeði í höfnina.



hvernig færðu það út að móðurborðið sé á hvolfi ?

ef þú skoðar myndirnar þá er þetta þá er móðurborðið fyrir ofan 12; 3.5" bay og aflgjafan.

mér finnst þetta ekkert svo galin hönnun sko.

Sent: Mið 24. Mar 2004 04:59
af Voffinn
Held ég verði bara sammála axyne og segi að ég væri alveg til í að eiga svona kassa.

Sent: Mið 24. Mar 2004 20:40
af Cary
Virkilega ljótur...

Re: Kassi fyrir alvöru karlmenn :)

Sent: Fim 25. Mar 2004 15:45
af Demon
Er ekki að skilja hvað maður græðir á því að hafa psu-ið neðst og móbóið ofar...:roll:
En annars ekkert það ljótur kassi :)

Sent: Fim 25. Mar 2004 16:04
af gnarr
Cary skrifaði:Virkilega ljótur...


enda sagði hann að þetta væri kassi fyrir alvöru KARLMENN ;)

Sent: Fim 25. Mar 2004 16:10
af Cary
Ahh.. ekki fake..

Nei nei.. þetta sýnir að alvöru karlmenn eru ósmekklegir.. eða elska gömlu makkana, þetta minnir mig nefninlega á einn

Sent: Fim 25. Mar 2004 16:12
af skipio
Tek undir með Cary; mér finnst hann ekkert spes.

Svo finnst mér ekki vera rökrétt að hafa vifturnar aftan á neðst í kassanum því við viljum auðvitað blása út heita loftinu og það leitar ávallt upp á við. Það er ástæða fyrir því að aflgjafar og viftur aftan á eru alltaf ofarlega í tölvukössum en inntaksviftan er höfð að neðanverðu.

PS: Kvenfólk hefur venjulega miklu meira vit á fagurfræði en karlmenn. Þessvegna er alltaf best að ráðfæra sig við konur ef verið er að festa kaup á dýrum fatnaði eða þá að velja bindi við skyrtu og jakkaföt (e-ð sem því miður alltof margir klikka á!)
Ennfremur skal varast að kaupa nýjan tölvukassa án þess að ráðfæra sig við fulltrúa "veikara" kynsins. Þær geta nefnilega stundum verið blessunarlega nytsamar, þessar elskur. :)

Sent: Fim 25. Mar 2004 16:29
af gnarr
ég er reyndar alveg sammála ykkur um að þessi kassi sé ljótur.. og það virðist ekki hafa veirð mikið spáð í loftflæði kringum móðurborðið. samt sniðugt að hafa hörðudiskana í sér hólfi, en það hefði þó verið sniðugra að hafa þá efst í kassanum, þar sem að ég er alveg pottþéttur að hitinn frá þeim hitar móðurborð hlutann af kassanum vel upp.

Sent: Fim 25. Mar 2004 21:03
af Icarus
persónulega finnst mér þessi kassi frekar ljótur

Sent: Fim 25. Mar 2004 23:39
af Fat
Ljótur....

Sent: Fös 26. Mar 2004 00:25
af valur
I want it to have my children

Sent: Fös 26. Mar 2004 20:00
af OverClocker
Er virkilega enginn að selja LianLi kassa á landinu??

Sent: Fös 02. Apr 2004 00:04
af Cary
"Ennfremur skal varast að kaupa nýjan tölvukassa án þess að ráðfæra sig við fulltrúa "veikara" kynsins. Þær geta nefnilega stundum verið blessunarlega nytsamar, þessar elskur. "

Heyr, heyr..
en ég vil minna á að ég er ekkert veik..

Sent: Fös 02. Apr 2004 00:07
af Demon
Cary skrifaði:"Ennfremur skal varast að kaupa nýjan tölvukassa án þess að ráðfæra sig við fulltrúa "veikara" kynsins. Þær geta nefnilega stundum verið blessunarlega nytsamar, þessar elskur. "

Heyr, heyr..
en ég vil minna á að ég er ekkert veik..


hehe, til í sjómann? :D

Sent: Fös 02. Apr 2004 00:17
af muggsi
Það sést kannski ekki nógu vel á þessum myndum en neðri hlutinn er alveg lokaður og snúrurnar fyrir psu og ide fara í gegnum gat og það væri hægt að loka alveg fyrir það þannig að heit loft ætti ekki að geta farið í efra plássið. sérstaklega ekki þegar þú ert með þrjár viftur í neðra hólfinu!
þetta er góð hugmynd en rétt mun það vera að kassin er forljótur, sérstaklega að framan! (minnir mig á kanínubúr sem ég átti þegar ég var lítill :lol: )

Sent: Lau 03. Apr 2004 18:56
af Hlynzi
Þessi hita logík bakvið loftflæðið í þessu er fáránleg. Einhver náungi með hitafóbíu, að skipta þessu niður í hólf gerir nú ekki mikið meira en að fjölga viftum.

Sent: Lau 03. Apr 2004 19:15
af Floppy
Kannski ekki mega-flottur í útliti en það sem er samt flott við hann er að í mínu tilfelli þá kæmi ég öllum hörðudiskum mínum fyrir í 1 kassa í stað tveggja :]

er sko með þennan http://www.casemodworld.com/modules/cop ... /case0.JPG (12 diskar) og svo annann (10 diskar)

Sent: Lau 03. Apr 2004 22:13
af Snorrmund
já ert þú gaurinn á valhöll með tbið?