Síða 1 af 1

AMD Mobile Athlon XP ?

Sent: Mið 17. Mar 2004 11:38
af Bendill
Sælt veri fólkið, það er allt að fara á annan endann í heimi yfirklukkunar þessi seinustu misseri. Já, dömur og herrar, það er kominn nýr fógeti í bæinn...

AMD Mobile Athlon örrarnir (2400-M, 2500-M og 2600-M) eru komnir í lausasölu og eru að gera allt vitlaust. Þetta eru örgjörvar sem eru gerðir fyrir fartölvur og er aðeins notuð bestu fáanlegu hráefni í þá. Þeir eru allir byggðir á Barton kjarnanum og eru með ólæstann margfaldara frá verksmiðju. Þar sem þessir örgjörvar eru úr bestu fáanlegu hráefnum þá halda þeir sinni tíðni á frekar lágri spennu. Þeir eru alveg eins í laginu og aðrir AMD Athlon XP örgjörvar og nota sama sökkul.

Það sem er að valda öllu þessu fjaðrafoki er það að jafnvel ódýrustu týpurnar eru að ná allt að 3.0Ghz í hressilegri yfirklukkun... Þið lásuð rétt! 1100Mhz yfirklukk, 69%... :8)
Heyrst hefur að 2.6-2.7Ghz á loftkælingu einni saman sé auðvelt! Eitthvað sem sendir alla Intel menn út í horn grátandi (nei nei, smá grín)... En ég sel það ekki dýrara en ég keypti það...

hér eru hlekkir sem sýna þetta betur...
http://www.fastlanehw.com/reviews.php?action=view&revid=102
http://www.geekextreme.com/modules.php?name=Content&pa=showpage&pid=38
http://www.neoseeker.com/Articles/Hardware/Features/XP-M/
http://www.sudhian.com/showdocs.cfm?aid=504

P.S. : Ætli hægt sé að nálgast þessa gripi hér á landi?

Sent: Mið 17. Mar 2004 11:49
af gumol
http://www.computer.is voru með einhverja mobile örgjörva, kanski far þessir að koma þangað.

Annars held ég að AMD sjálfir hefðu ekki getað skrifað meiri grein um þetta :lol:

Sent: Mið 17. Mar 2004 11:51
af Bendill
gumol skrifaði:Annars held ég að AMD sjálfir hefðu ekki getað skrifað meiri grein um þetta :lol:


:roll: Ég er ekkert hlutbundinn... allt sem segir það er lygi og ómegin! :roll:

Sent: Mið 17. Mar 2004 12:08
af Bendill
gumol skrifaði:www.computer.is voru með einhverja mobile örgjörva, kanski far þessir að koma þangað.


Þeir eru einungis með Athlon 64 örgjörva í mobile útgáfu... vonandi breytist það...

Sent: Mið 17. Mar 2004 14:41
af Arnar
haha nice, samt smá vesen að fara skipta aftur yfir í amd.. hehe

Sent: Mið 17. Mar 2004 15:39
af amma
þetta er eitthvað sem maður mun pottþétt tékka á

Sent: Fim 18. Mar 2004 13:21
af Bendill
Hmm... svo virðist sem vika 43 sé algengust. Þeir eru að ná 2.5 - 2.7 á lofti, fer samt eftir kubbum. Annars eru til einstaklingar sem hafa farið í 2.9 á vatni og eru þeir að segja að vika 50 sé betri til yfirklukkunar :P

Sent: Fim 18. Mar 2004 13:32
af Bendill
BTW: hér er góður þráður um þessa örgjörva og þeirra sveru yfirklukkun :D

Sent: Fim 18. Mar 2004 14:42
af Voffinn
Spurning um að fara oc'a laptopinn :8)