Síða 1 af 1

Sprauta inní turninum

Sent: Mán 08. Mar 2004 14:34
af BFreak
Hvernig geri ég það? (dumb question)
Meina sko hvaða leið er best?
eða á marr að mála með pensli? :oops:

Sent: Mán 08. Mar 2004 19:59
af Icarus
ég hef nú aldrei gert þetta en ég myndi giska á að það væri sniðugt að byrja að taka allt úr honum, harða disk rekkana og bara allt saman, spreyja þá s.s. sér.

Sent: Mán 08. Mar 2004 20:09
af BFreak
Ég var ekkert að fara gera þetta með allt inní... lol

Sent: Mán 08. Mar 2004 22:33
af Icarus
var nú meira að tala um harðadisk rekkana og allt það, veit alveg að þú áttar þig á því sjálfur að taka móðurborðið og það úr :D

Sent: Mán 08. Mar 2004 23:03
af axyne
ég myndi skrúfa allt út sem skrúfast getur úr kassanum. hdd rekka og svoleiðis dóterí.

síðan kaupa mér spreyprprúsa fara með kassann útí ímyndaða bílskúrinn minn og sprauta.

væri ekkert að spara límbandið og plastið.

og svo muna að spreyja lítið í einu og fara margar umferðir. leyfa að þorna vel á milli.