Síða 1 af 1

Betra að hafa opinn kassa

Sent: Mið 04. Ágú 2010 15:39
af zdndz
Pæling: er ekki betra að hafa opinn kassann, kælir það ekki tölvuna meira?
Veit svo eitthver hvort tölvan hitni ekki eins mikið með windows 7 og xp?

Re: Betra að hafa opinn kassa

Sent: Mið 04. Ágú 2010 15:45
af JohnnyX
safnast meira af ryki ef kassinn er opinn og airflow-ið verður verra. Vifturnar stíflast á endanum og þá hitnar búnaðurinn þinn mikið og getur skemmst. Tölvan ætti ekki að hitna meira með öðru hvoru stýrikerfinu

Re: Betra að hafa opinn kassa

Sent: Mið 04. Ágú 2010 15:51
af AntiTrust
Alveg eeengan vegin.

Stútar öllu sem heitir loftflæði.

Re: Betra að hafa opinn kassa

Sent: Mið 04. Ágú 2010 15:52
af vesley
ef tölvan þín er með einhvern gamlan hvítann forljótann kassa þá gætiru séð smávegis mun á að hafa hann opinn en hinsvegar miklu meira ryk líka og svo er það líka ljótt.

Það er í rauninni alltaf betra að hafa hann lokaðann þar sem þá nær hann að halda réttu loftflæði um búnaðinn. þ.e.a.s. ef að hann er með einhvað loftflæði

Re: Betra að hafa opinn kassa

Sent: Mið 04. Ágú 2010 17:35
af Danni V8
Þegar ég var mað gamla Antec Sonata kassann þurfti ég að taka hliðina af til að búnaðurinn keyrði ekki á of háum hita.

Á HAF932 þarf ég að hafa hliðina á til að halda hitanum niðri..

þetta fer bara allt eftir kassanum og hversu góð kælingin í honum er.

En ef þú ætlar að hafa kassann án hliðar þá þarftu að blása rykið úr honum miklu oftar.

Re: Betra að hafa opinn kassa

Sent: Mið 04. Ágú 2010 19:19
af Sphinx
ég hef alltaf opin kassan þvi eg er ekki með neinar kassaviftur og kassin minn er svartur inni og þegar það kemur ryk þá sést það svo mikið eg þoli það ekki þannig tölvan min er alltaf 100% clean :D