Síða 1 af 1
Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 09:47
af Harkee
Daginn, ég er aðalega að pæla í hljóðlátum kassa sem ég gæti notað sem kodda. Ég er mjög hrifinn af antec lookinu en sýnist fleiri hérna vera nota 932 kassann, ég er til í að eyða 30-35þúsund
draslið sem fer í kassann er:
Msi k9a2 neo2 770 am2 5200 Ht
Amd Phenom Quadcore 9650 2,3GHz
Corsair 4gb 2x2 Gb DDR2 800MHz Cl5
Msi ATI Radeon HD4870
WD Black 640 gb Sata 2 7200 rpm 32M 15k
Aflgjafi - 650W - Tagan BZ PipeRock Series Modular
ef þið vitið um jafnvel ennþá betri kassa þá endilega commenta á þetta, öll skítköst vel þegin líka
kv, Harkee
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 10:39
af ZoRzEr
Fyrir hljóðlátan kassa væri P183 fullkominn fyrir þig. Skjákortið passar vel og rúmlega það. Sílíkon púðar allstaðar, enginn víbringur af diskum og einangraður.
Tagan BZ aflgjafarnir passa (af eigin reynslu).
HAF932 er meira airflow og style, en eru hávaðasamari. Minn t.d. víbrar alveg helling útaf hörðu diskunum.
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 10:57
af Klemmi
Sammála fyrri ræðumanni, ef þú ert að leita þér að hljóðlátum kassa þá er það P183, engin spurning
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 11:02
af ZoRzEr
Klemmi skrifaði:Sammála fyrri ræðumanni, ef þú ert að leita þér að hljóðlátum kassa þá er það P183, engin spurning
Líka ýmislegt sem þeir gerðu mun betur með P183 miðað við P182 sem ég átti. Löguðu nokkurn veginn allt sem truflaði mig.
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 12:48
af g0tlife
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 13:08
af Halli25
ég myndi einnig skoða CoolerMaster Sileo sjá review á
http://tech.is/?id=1031
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 17:24
af Harkee
Þakka svörin, antec it is!
farið nú að passa ykkur í tölvuleikja heiminum, ég er að mæta
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 20:14
af SolidFeather
Antec P183 og skipta viftunum sem koma með út fyrir einhverjar hljóðlátari
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 20:33
af chaplin
Scythe Slipstream hafa reynst mér úber vel, heyrist ekkert í þeim (nánast) og fínn blástur. Er einmitt að fara skipta stock viftunum úr P183 mínum fyrir þær.
Re: Antec P183 vs Cooler Master HAF932
Sent: Mið 02. Jún 2010 21:57
af Harkee
Já, ég stefni á það líka, ætla byrja á því að prófa hann eins og hann kemur
panntaði hann kl. half 6 í dag frá buy.is, bíð spenntur