Síða 1 af 1

Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 21:06
af FriðrikH
Hvernig er það með að uppfæra BIOS af minnislykli, er það bölvað vesen? Náði mér í BIOS uppfærslu vegna vandræða með að ný minni sem ég var að fá mér eru eitthvað óstöðug. Ég hef aldrei uppfært BIOS áður en mér skilst að þetta sé almennt gert af floppy diskum, vandinn er að ég er ekki með floppy drif. Væri annars hægt að uppfæra með utanáliggjandi usb tengdu floppy drifi?

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 21:10
af Klemmi
Hvers konar móðurborð er þetta? Framleiðandi og týpa :)

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 21:18
af FriðrikH
gigabyte ga-p35-dq6, keypt af þér ;)

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 21:44
af Klemmi
fridrih skrifaði:gigabyte ga-p35-dq6, keypt af þér ;)


Sækir nýjasta BIOS, setur hann á minniskubbinn, restartar tölvunni og ýtir á END í postinu, ferð í update BIOS, velur fælinn og voila, þú ert góður :)

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 21:46
af FriðrikH
töff, takk takk.

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:01
af FriðrikH
:( virkar ekki, fæ bara upp möguleikann á að boota from A: floppy

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:02
af CendenZ
fridrih skrifaði::( virkar ekki, fæ bara upp möguleikann á að boota from A: floppy



Nei, ferð í Biosinn sjálfan, og þar veluru að uppfæra hann og finnur kubbinn.

Kemst í Bios í postinu, með að ýta á f6 eða Delete, jafnvel End ... :lol:

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:11
af FriðrikH
:? hvar í biosnum gerir maður það?

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:12
af mercury
er öruglega q-flash á þessu borði. þá er þetta ekkert mál ferð í bios velur q-flash og hann á að finna minnislykilinn. hef gert þetta á nokkrum borðum. passaðu bara að þessi bios sé fyrir rétta týpu af borðinu
geta verið nokkrar gerðir rev 1.0 1.1 1.2 eða jafnvel 1.6.. vertu viss um það.

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:14
af GuðjónR
fridrih skrifaði::? hvar í biosnum gerir maður það?

Ertu viss um að það sé góð hugmynd fyrir þig að uppfæra BIOS ?

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:17
af FriðrikH
það eru nú farnar að renna á mig tvær grímur :|

En í bæklinginum er borðið merkt rev. 1002 En á heimasíðu gigabyte virðast bara vera 2 útgáfur af borðinu 1.0 og 1.1
Er ekki einhver góð leið til að finna hvora týpuna ég er með?

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:26
af FriðrikH
OK, fann þetta í bæklingnum, það er víst merkt á borðið sjálft, athuga það.

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:40
af mercury
ég er ekki alveg grænn í þessu en ég færi varla að þora þessu nema að ég myndi googla þetta fram og til baka og jafnvel reyna að finna youtube video. en q-flash á víst að vera frekar safe.

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:49
af Tóti
http://www.giga-byte.co.uk/FileList/NewTech/old_motherboard_newtech/tech_a_bios.htm
Þetta forrit frá Gigabyte er mjög gott til að uppfæra BIOS. Linkur að ofan :)
Hef notað fyrir mín Gigabyte móðurborð

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 22:50
af GuðjónR
If it aint broken DONT FIX IT!

Sérstaklega ef þú ert ekki 110% viss um það sem þú ert að gera.
Mistök og móbóið er ónýtt!

Virkar tölvan ekki? Þarftu að uppfæra BIOS?

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Lau 17. Apr 2010 23:54
af Tiger
Tóti skrifaði:http://www.giga-byte.co.uk/FileList/NewTech/old_motherboard_newtech/tech_a_bios.htm
Þetta forrit frá Gigabyte er mjög gott til að uppfæra BIOS. Linkur að ofan :)
Hef notað fyrir mín Gigabyte móðurborð


Ef þú lest forum um Gigabyte móðurborð sem eru skrifuð af alvöru nördum þá sérðu að allstaðar er mælt á móti því að nota @bios og alveg undirstrikað alls ekki nota @bios til að uppfæra bios, heldur bara q-flash. Las líka að það væri mjög hátt hlutfall af móðurborðum sem er skilað vegna "galla" sé útaf @bios. Þetta er hlutur sem maður á að gera í gegnum q-flash og hvergi annarstaðar.



Mjög fín lesning hérna áður en maður flashar BIOS-num sínum
http://forums.tweaktown.com/f69/bios-flashing-how-qflash-guide-27576/

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Sun 18. Apr 2010 08:55
af FriðrikH
þakka ykkur fyrir ráðleggingarnar, ég ætla að finna hvaða rev. móðurborðið er og skoða þetta svo með q-flash.
Annars virkar tölvan, en ekki 100%, eftir að ég uppfærði minnið þá frýs hún talsvert. Ég er búinn að stilla rétt voltage á minnin, 2,1V, prófaði reyndar líka með 1,8 og 2,2 en það virtist ekki skipta máli. Ég gerði líka memtest og fékk ekki neinar villur. Las einhversstaðar að þetta móðurborð hafi þurft uppfærslu á BIOS vegna einhverra minnisuppfærslna.

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Sun 18. Apr 2010 09:29
af Tiger
Kannski er ég nývaknaður og í ruglinu en 2,2V fyrir minnið hjómar far out! Ég hef hingað til staðið í þeirri trú að þau séu öll frá 1,5-1,65V.

Hvaða útgáfu af BIOS ertu með? Ef þú ert með F4 eða hærra þá er ekkert nefnt um að það bæti minnið á nokkurn hátt, það var stíðast í F4 fyrir 3 árum síðan sem minni uppfærsla var á BIOS í þetta móðurborð

Mynd

Re: Uppfæra BIOS

Sent: Sun 18. Apr 2010 13:37
af Klemmi
Snuddi skrifaði:Kannski er ég nývaknaður og í ruglinu en 2,2V fyrir minnið hjómar far out! Ég hef hingað til staðið í þeirri trú að þau séu öll frá 1,5-1,65V.

Hvaða útgáfu af BIOS ertu með? Ef þú ert með F4 eða hærra þá er ekkert nefnt um að það bæti minnið á nokkurn hátt, það var stíðast í F4 fyrir 3 árum síðan sem minni uppfærsla var á BIOS í þetta móðurborð

Mynd


Standard voltin á DDR2 eru 1.8, en öflugri minni s.s. 1066MHz minni og þess háttar notast oft við 2.1-2.2V :)
Standard voltin fyrir DDR3 er hins vegar 1.5, en öflugri minni geta verið ca. 1.6-1.9 :wink: