Síða 1 af 3

Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #8

Sent: Þri 23. Feb 2010 21:51
af ZoRzEr
Sælir vaktarar!

Ég keypti eitt stykki CoolerMaster HAf 932 af http://www.tolvutaekni.is í dag og ætla mér að spreyja kassann svartann að innan. Ég mun lýsa þessu í þessum Worklog og skella inn nokkrum myndum og sýna nokkurn veginn hvernig ég fór að þessu. Vonandi hafi þið bara gaman af þessu og kannski hjálpar þetta ykkur eitthvað í framtíðinni.

Mynd

Kassinn er silfraður að innann eins og sést hér:

Mynd

Markmiðið er eitthvað í þessa áttina

http://www.overclock.net/attachments/in ... loseup.jpg

Dagur 1
Keypti kassann og fór með hann heim kl 16 í dag. Stoppaði í Byko og keypti 3.5mm bor og 2 spreybrúsa af gráum ryðvarnar grunni og 3 brúsa af svörtum möttum lit.
Vinnusvæðið er í kjallaranum hjá mér og ég ætla að spreyja kassann sjálfann í bílageymslunni.

1. Skellti mér í latex hanska og byrjaði að að skrúfa allt af kassanum, vifturnar og framhliðina. Tók rúmlega 40 mínutur.
2. Byrjaði að bora út hnoðboltana (rivets), sem voru rúmlega 40 talsins. Það tók 30 mínutur og ég varð að passa mig með síðustu bitina að beygja ekki litlu hillurnar og festingarnar á þeim.
3. Notaði málningatape yfir botninn, topinn og hliðarnar til að fela það sem er núþegar svart.
4. Gerði eina prufu umferð af grunni á hægri hliðina (þá sem felur snúrurnar) til að sjá hvernig það haldist á. Var að pæla hvort ég ætti að sandpappíra kassan á undan.

Svo byrjar þetta fyrir alvöru á morgun, ef að veður leyfir. Tók bara nokkrar myndir á símann fyrsta daginn, hendi þeim inn á morgun þegar ég finn helvítis snúruna fyrir data transfer fyrir símann. Tek myndavélina mína með þegar ég byrja að mála.

End of day 1!

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Þri 23. Feb 2010 21:59
af DeAtHzOnE
Djöfull er þetta nett.
En samt 30k fyrir kassa er doldið mikið. 8-[

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Þri 23. Feb 2010 22:05
af ZoRzEr
DeAtHzOnE skrifaði:Djöfull er þetta nett.
En samt 30k fyrir kassa er doldið mikið. 8-[


Var aldrei nógu ánægður með Antec P182 kassann sem ég er með núna. Vildi bara uppfæra. Maður gerir ýmislegt til að vera svalur ;)

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Þri 23. Feb 2010 22:32
af urban
ZoRzEr skrifaði:
DeAtHzOnE skrifaði:Djöfull er þetta nett.
En samt 30k fyrir kassa er doldið mikið. 8-[


Var aldrei nógu ánægður með Antec P182 kassann sem ég er með núna. Vildi bara uppfæra. Maður gerir ýmislegt til að vera svalur ;)

hvað varstu ekki nóg sáttur með hann ?

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Mið 24. Feb 2010 07:52
af ZoRzEr
urban skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:
DeAtHzOnE skrifaði:Djöfull er þetta nett.
En samt 30k fyrir kassa er doldið mikið. 8-[


Var aldrei nógu ánægður með Antec P182 kassann sem ég er með núna. Vildi bara uppfæra. Maður gerir ýmislegt til að vera svalur ;)

hvað varstu ekki nóg sáttur með hann ?


Ég er með Tagan BZ 900w aflgjafa og þurfti að taka út viftuna á neðri hæðinni svo að modular tengin kæmust fyrir. Svo er ég með GTX285 kort sem er 11" langt og þá þarf ég líka að taka hard drive bakkann á efri hæðinni í sundur svo að kortið komist fyrir (Það eru 2 pláss fyrir diska þar). Þetta veldur því að ég þarf að hafa 4 hörðu diskana mína á neðri hæðinni, beint fyrir framan aflgjafann. Það er bæði rosalega erfitt að tengja diskana og renna inn HDD rakkanum. Svo myndast líka svo mikill hiti á neðri hæðinni þar sem engin vifta er þar.

Þannig hann hentaði mér bara ekki nógu vel. Hann er samt með marga rosalega þægilega fídusa sem ég væri alveg til í að væru í HAF 932 kassanum. Dust filterar og hurð væri geðveikt á HAF-num.

Er búinn að vera pæla að búa til mína eigin filtera og skella þeim að framan og undir kassann, þar sem loft inntökin eru.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Mið 24. Feb 2010 21:10
af ZoRzEr
UPDATE #1

Jæja fyrsta update eftir dag 2.

Eftir að hafa tekið allt í sundur og sett málningatape yfir allt svarta fór ég að gera þetta ready fyrir spreyjun. Setti band milli tveggja súlna og hengdi partana á með bréfaklemmum.

Svo var byrjað!

Dótið sem ég skrúfaði af og brúsarnir
Mynd

Grái grunnurinn
Mynd

Byrjaður
Mynd

1
Mynd

Snúran góða
Mynd

Tape fyrir gluggan að innan
Mynd

2
Mynd

Þurkunarstöðin
Mynd

3
Mynd

PSU coverið og PSU haldarinn tilbúnir
Mynd

Og svo settið, allt spreyjað
Mynd


Næsta update verður á morgun. Þá byrjar fjörið!

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Mið 24. Feb 2010 21:21
af Enginn
Djöfull er þetta flott hjá þér! Ég er einmitt með sama kassa, hann er alveg frábær.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Mið 24. Feb 2010 22:05
af Gunnar
helviti flott hjá þér.
en varðandi filterinn þá getur keypt þér nilon sokka í hagkaup og notað hitalímbyssu til að líma það við. virkar vel i sjónvarpstölvunni minni.
og ertu með hnoðbyssu eða hvernig ætlaru að setja þetta svo saman?

Re: Worklog - HAF 932 Paint job

Sent: Mið 24. Feb 2010 22:15
af ZoRzEr
Gunnar skrifaði:helviti flott hjá þér.
en varðandi filterinn þá getur keypt þér nilon sokka í hagkaup og notað hitalímbyssu til að líma það við. virkar vel i sjónvarpstölvunni minni.
og ertu með hnoðbyssu eða hvernig ætlaru að setja þetta svo saman?


Þakka fyrir ráðið með nylon sokkana :P

Ég er með þetta allt á myndum hvernig ég tók þetta í sundur og svo eru nokkur myndbönd á youtube sem sýna þetta ágætlega. Annars hef ég ekki miklar áhyggjur af því. Byrja bara rólega, og um leið og 2 hlutir eru fastir saman vindur þetta bara uppá sig.

Rivet byssuna ætla ég að leigja hjá Byko. Þeir eru með rafmagns hnoðbyssu sem ætti að koma sér mjög vel, engin atök. Það kostar 3.400kr á leigja í 24 tíma, 1.200kr per auka dag. Þarf hana ekki nema í einn dag hvort eð er. Hnoðin keypti ég í Sindra verslun, uppa höfða. Þau voru 3.5mm á stærð, eða 1/8 úr tommu.

Næsta update verður þegar svarti liturinn kemur á.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 22:38
af chaplin
Gæti þurft miklar uppls. frá þér á næstunni, er sjálfur að fara fá mér HAF932 og ætla spreyja hann matt-svartan að innan!

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 22:43
af ZoRzEr
daanielin skrifaði:Gæti þurft miklar uppls. frá þér á næstunni, er sjálfur að fara fá mér HAF932 og ætla spreyja hann matt-svartan að innan!


Lítið mál gamli. Þú fylgist bara með næstu daga og sérð þetta gerast. Ég mun mynda þetta bak og fyrir með hjálp aðstoðarmanns míns.

Ég hef persónulega mestan áhuga að sjá hvernig þetta kemur út a morgun. Það voru smá för á hliðinni ekki með glugganum, eftir fingraför og fitu af fingrum. Hleypur aðeins upp ef það er spreyjað beint yfir. Annars stóð ég í þeirri meiningu að ég hefði þrifið þá vel.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 23:05
af Danni V8
Ég væri til í að minn HAF932 væri svartur að innan en ég nenni engan vegin að strípa kassann og vera tölvulaus á meðan. Eftir að hafa keypt nýjan kassa er ég búinn að kaupa nýtt skjákort og psu og fleyri harða diska og það er ekki séns að ég gæti troðið öllu draslinu í gamla kassann á meðan. En endilega haltu áfram að uppfæra þennan þráð svo við getum fylgst með, finnst bara synd að þessir kassar séu ekki svartir að innan frá Cooler Master.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 23:09
af chaplin
Ég mun fylgjast með og Danni, ég er búinn að vera kassalaus núna í mánuð, móðurborðið og allt draslið situr bara á skrifborðinu mínu og þarf ég að kveikja á tölvunni með skrúfjárni.. :lol: Mjög messi, en ég var að skipta um og prufa nýja kjarna, kælingar og minni á 2 daga fresti, sleppti þá að nota kassann, algjörlega þess virði.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 23:10
af SolidFeather
Danni V8 skrifaði:Ég væri til í að minn HAF932 væri svartur að innan en ég nenni engan vegin að strípa kassann og vera tölvulaus á meðan. Eftir að hafa keypt nýjan kassa er ég búinn að kaupa nýtt skjákort og psu og fleyri harða diska og það er ekki séns að ég gæti troðið öllu draslinu í gamla kassann á meðan. En endilega haltu áfram að uppfæra þennan þráð svo við getum fylgst með, finnst bara synd að þessir kassar séu ekki svartir að innan frá Cooler Master.


Setur móbóið bara á frauðblast og tengir allt við það.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 23:12
af Danni V8
daanielin skrifaði:Ég mun fylgjast með og Danni, ég er búinn að vera kassalaus núna í mánuð, móðurborðið og allt draslið situr bara á skrifborðinu mínu og þarf ég að kveikja á tölvunni með skrúfjárni.. :lol: Mjög messi, en ég var að skipta um og prufa nýja kjarna, kælingar og minni á 2 daga fresti, sleppti þá að nota kassann, algjörlega þess virði.


Ég gerði einmitt það sama þegar ég var í veseni með bilaðan örgjörva um daginn, var alltaf að skipta um, nema þá var ég takka úr eld gömlum tölvukassa úr vinnunni sem ég spaðaði og tengdi hann bara beint í móðurborðið. Var reyndar doldið stórt stykki af framhliðinni sem ég þurfti að taka með en það skipti ekki, kassinn var að fara í ruslið hvort sem er :P

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Mið 24. Feb 2010 23:12
af ZoRzEr
Danni V8 skrifaði:Ég væri til í að minn HAF932 væri svartur að innan en ég nenni engan vegin að strípa kassann og vera tölvulaus á meðan. Eftir að hafa keypt nýjan kassa er ég búinn að kaupa nýtt skjákort og psu og fleyri harða diska og það er ekki séns að ég gæti troðið öllu draslinu í gamla kassann á meðan. En endilega haltu áfram að uppfæra þennan þráð svo við getum fylgst með, finnst bara synd að þessir kassar séu ekki svartir að innan frá Cooler Master.


Bölvað bögg að þeir komi ekki svartir.

Notaði bara tækifærið þegar ég er gömlu vélina í P182 kassanum og spreyja HAF kassann.

Næsta update er á morgun! :8)

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #1

Sent: Fim 25. Feb 2010 20:37
af ZoRzEr
UPDATE #2

Jæja drengir. Núna byrjar ballið. Dagur 3.

Sama taktík og áður, hengi hlutina upp og spreyja.

Svarti liturinn
Mynd


Mynd


Mynd


Mynd


Mynd

Móðurborðsveggurinn
Mynd

Fyrsta umferð kláruð
Mynd

Tók samtals 45 mínutur. Ég fer aftur niður kl 10 og gerir aðra umferð. Svo er sett saman eftir helgi.

Annað update kl 12.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #2

Sent: Fim 25. Feb 2010 21:53
af gardar
Virkilega fagmannlega að þessu staðið hjá þér!

Ég var einmitt að spá í að henda svörtum lit inn í minn haf 932, en hafði nú ekki ætlað mér að rífa allt í tætlur :oops:

Ætli ég neyðist ekki til þess núna, ekki vill maður vera minni maður :lol:

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #2

Sent: Fim 25. Feb 2010 23:20
af ZoRzEr
UPDATE #3

Jæja. Þá er seinni umferðin af svörtu komin á. Set inn samanburðarmyndir hvernig þetta var before and after.

Með eina umferð af grunni
Mynd

Með 2 umferðir af svörtu
Mynd

Samanburður á front coverinu sem kom svart
Mynd

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #3

Sent: Fim 25. Feb 2010 23:29
af Sydney
Epic....fucking....win

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #3

Sent: Fös 26. Feb 2010 08:19
af Jimmy
Hriiikalega nett.

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #3

Sent: Fös 26. Feb 2010 09:26
af ZoRzEr
Eftir 3 umferðir af svörtu er þetta tilbúið. Núna þarf þetta að sitja í nokkra sólahringa. Áætlað er að samsetning hefjist á mánudaginn. Fer og leigji þessa bölvuðu hnoðboltabyssu og skutla þessum saman.

Næstu myndir á mánudag 1. mars!

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #3

Sent: Fös 26. Feb 2010 12:25
af Black
Alltaf gaman þegar fólk lætur hlutina verða að veruleika ekki bara hugsa þá :) snilld hja þer

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #3

Sent: Lau 27. Feb 2010 09:44
af BjarkiB
Vel gert, endilega skelltu inn myndum á mánudaginn :)

Re: Worklog - HAF 932 Paint job UPDATE #3

Sent: Lau 27. Feb 2010 10:30
af valdij
Epic thread, skemmtilegt mynda-update :)