Síða 1 af 1
Minimal vél en hljóðlát og nett
Sent: Þri 13. Jan 2004 00:23
af dabbi2000
var reyndar búinn að spyrja um svipað á öðrum þræði en fannst þessi passa betur...
Ég á fyrir fínann turn en langar að setja saman eina litla til að setja inn í stofuna og tengja við sjónvarpið + græjurnar. Þar er ég með utanáliggjandi 7.1 hljóðkort og svo tengi ég hana við móðurtölvuna yfir þráðlausa netið í húsinu. Auk þess smá afruglun í sjónvarpskorti. Þannig þarf ég í raun mjög litla specca, sennilega það mesta er afruglunin.
Hins vegar algjört atriði að hún sé ekki of hávær. Svo þarf hún að liggja undir sjónvarpinu og ef það er ekki til dvd/cd drif sem leyfir manni að mata diskana á hlið þá verð ég að halda mig við desktop kassa.
Ég er ekki eins klár og ég var í hardware-inu fyrir nokkrum árum og langar því að spyrja ykkur hvaða setup þið mælið með (móðurborð, örgjafi, kæling)? Munið bara; þarf ekki mikinn cpu power en vera hljóðlát!
thx
Sent: Þri 13. Jan 2004 00:39
af dabbi2000
eitt hérna sem ég fór allt í einu að spá og skiptir miklu máli...
eru dvd/cd drifin í dag þannig að hægt er að mata diska í þau á hlið?? Því annars er turn (sem ég myndi leggja á hlið) augljóslega ekki til umræðu!!
Sent: Þri 13. Jan 2004 01:14
af gumol
Nei, það er í lang flestum tilfellum ekki hægt, en það ætti ekki að vera mikið mál að moda kassann þannig að þú getir komið því fyrir í venjulegri stöðu.
Hérna er smá hugmynd [bara hugmynd], það eiga auðvita eftir að koma menn og segja þér að fá þér AMD í stað Intel, ég mæli allavega með Intel.
Intel P4 2,4 GHz 19.900 Kr. (lægsti P4 örrinn á vaktinni, nennti ekki að leita að minni Pentium örgjörva)
Chaintech 9PJL3 13.900 Kr. (Ódýrt móðurborð með LAN tengi og stuðningi við örrann, 400 MHz minni, 8x skjákort, USB og ethernet LAN)
Zalman hljóðlát örgjörfavifta 5.990 Kr. (kanski of öflug kæling fyrir þennann örgjörva, hún er allavega hljóðlát
)
Samsung ATA-133 160GB 7200rpm 8MB buffer 12.900 Kr.
Svo nátturlega Minni, DVD lesara, skjákort og sjónvarpskort
Varðandi skjákortið (tv-out), sjónvarpsskortið og afruglun skaltu skoða þræði í "Skjákort/skjáir" hlutanum, umræða um það þar núna.
Sent: Þri 13. Jan 2004 13:13
af MezzUp
kíktu á
http://www.silentpcreview.com
annars líst mér vel á eitthvað system með via c3 viftulausum örgjörva og Seagate Barracuda HD
Sent: Þri 13. Jan 2004 19:18
af odinnn
ef ég væri að fá mér tölvu til að hafa í stofunni þá yrði mini-atx tölva fyrir valinu
hérna og
hérna eru Mini-atx pakki og mini-atx móðurborð með innbyggðum örgjörva.
Sent: Lau 17. Jan 2004 16:39
af dabbi2000
Eftir mikla íhugun endaði ég á Shuttle SN45g vél
Bætti við AMD Athlon 2500, 256mb ddr minni og Seagate 10gb disk (úr Xbox, einstaklega hljóðlátur). Keypti svo ATI Radeon 7200 kort, viftulaust en kröftugt. Shuttle vélarnar eru með bæði vatns- og viftukælingu og heyrist ekki bofs í þessu nema ég sé með örgjafann á 100%
Galli var 1x PCI slot sem ég notaði strax undir sjónvarpskortið, ekkert pláss eftir fyrir annað t.d. þráðlaust PCI kort. Leysti það með þráðlausu USB korti en nú er ég að komast að því að þráðlausa kerfið einfaldlega ræður ekki við sumt video sem er með mikilli bandvídd (t.d. heimavídeoin, þjöppuð með 1500mbs). Reyndar er tengistyrkurinn ekki nema 70% en ég held ég verði samt að leggja ethernetkabal yfir í staðinn.
Það er reyndar innbyggt mjög gott 5.1 hljóðkerfi í móðurborðið (frá nVidia) og m.a.s. optical út tengi. Ég hins vegar var fyrir með Creative Audigy 2 á USB og það er 7.1, 24bita og kostaði ekki nema 10þ svo ég ætla að halda því. Það sem er mest svekkjandi er að ég fékk mér 20þ Creative Inspire 7700 7.1 hátalara í Tölvulistanum en gerði þau mistök að kynna mér þá ekki aðeins fyrst. Þeir eru svo sem fínir en alveg í það tæpasta að geta verið alvöru stofuhátalarar. Þeir eru með 92w total RMS á meðan t.d. Megaworks 6.1 eru 575RMS og ekki nema 2x dýrari. Geðveikt hljóð, optical inn, THX samþykkt... slagar vel upp í alvöru heimabíókerfi. Ég hugsa ég haldi þessu config en byrji að safna mér fyrir Megaworks, vandamál bara að það selur þá enginn hérna heima, ég þarf að fá e-n í USA til að koma með þá fyrir mig.
Ég myndi aldrei geta hugsað mér að nota KISS og þess háttar spilara. Bara tilhugsunin um að einhver sé búinn að gera allt fyrir mig og að ég geti engu breytt inn í boxinu vekur hjá mér kuldahroll! Ágæt hugmynd eflaust fyrir þá sem ekki nenna að stúdera þetta mikið en ég held að það komi langbest út fyrir tækjaspekulanta að byggja sína eigin PC vél.
Sent: Lau 17. Jan 2004 16:46
af dabbi2000
gleymdi...
nú vantar mig hins vegar ráðleggingar um góða "fjartstýringu" - er til e-s konar kombination af mús og mini-lyklaborði (þráðlaust!!) E-n tíma var til MS Strategic commander sem var hægt að forrita til að gera allt en mér skilst að hann hafi verið tekinn úr framleiðslu...
Sent: Lau 17. Jan 2004 19:03
af Sultukrukka
Átt að geta pantað að utan lyklaborð með innbyggðri mús
Ég persónulega hef leitað hér á landi en aldrei fundið
Sent: Lau 17. Jan 2004 19:20
af Snorrmund
ég sá á netinu þráðlaust lyklaborð með innbyggðri mús man ekki linkinn skal reyna að finna samt.. þetta var eins og venjulegt bara engir örvatakkar í staðinn var kúla.
Sent: Mið 04. Feb 2004 20:09
af dabbi2000
fann loksins það sem gæti hentað. hissa að enginn hérna hafi bent mér á þetta, veit enginn af þessu? þetta eru reyndar 2 tæki, þarf að gera upp á milli þeirra:
http://www.gyration.com/mcr.htm
og
http://www.gyration.com/ultragt.htm
Sent: Mið 04. Feb 2004 22:56
af Tesli
Snilld, ég verð að fá mér svona fjarstýringu
Sent: Mið 04. Feb 2004 23:04
af xtr
laemingi skrifaði:Snilld, ég verð að fá mér svona fjarstýringu
thats just tú low
Sent: Mið 04. Feb 2004 23:34
af Tesli
low hvað, ég er með tölvuna mína tengda í 32" sjónvarp sem er í hinum enda herbergisins, er ég low útaf því að þessi fjarstýring myndi auðvelda mér mikið. Ég ætti að taka þig og rasskella fyrir þetta comment
Sent: Sun 08. Feb 2004 10:01
af Demon
dabbi2000 skrifaði:Eftir mikla íhugun endaði ég á Shuttle SN45g vél
Bætti við AMD Athlon 2500,
ok....af hverju að fá sér athlon 2500 ef þú ætlar að hafa þetta minimal...af hverju ekki bara 1.3duron eða celeron eða eitthvað veikt á 4 þúsund kall?
Nei ég bara spyr...
Sent: Mán 09. Feb 2004 10:44
af Hlynzi
Mini ITX móðurborð Hérna er mini ITX móðurborð, verulega lítið. Ég pantaði mér eitt svona fyrir jól.. með 1 GHz örgjörva, fékk mér svo 256 mb í minni og er með 2x PCI slot með framlengingu sem hallar þeim einnig í 90 gráður, semsagt samsíða móðurborðinu.
Það blívar aldrei í bíómynda tilfærslum að vera með þráðleysu, CAT5 á milli er eiginlega möst ef þú ætlar að fá smá hraða í þetta.
Svo er hægt að splæsa í harðan disk, ég mæli mað Samsung, eða Seagate.
En þessi mini ITX er eitthvert eilífðar verk hjá mér, þetta verður úr plexígleri og læti, svo það er soldið erfitt að vinna það á köflum. En það verður einmitt media centerinn í stofunni. Eins og þú ert að pæla í, nema kannski minni hjá mér, og venjulega geisladrifið (Sony, DVD drif) er ekki hæft til að lesa á hlið, fæst drif eru það. Veit samt ekki með þetta sem er í ferðatölvunni hjá mér, það er svipað og ferðageislaspilari með hristivörn. (buffer)