Síða 1 af 1

Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:15
af Glazier
Sá að "Sallarólegur" var að spreyja kassann sinn svartann að innan..
Mig langar rosalega að spreyja minn að innan í flottum lit.
Pæling að gera svart en ég er samt svoldið fyrir það að vera öðruvísi en aðrir þannig það gæti verið gaman að hafa annan lit.
Ég er með þennan kassa: http://kisildalur.is/?p=2&id=1189
Svo er ég með nokkurnvegin blátt móðurborð og mosa grænt skjákort.. (getið smellt á linkinn í undirskrift og séð myndir inn í tölvuna)
Og síðan appelsínugul Geil vinnsluminni

Þannig ég var að pæla hvaða lit ég ætti að hafa ef ég hef ekki svartann..
Það sem mér dettur í hug að gæti verið flott er
Hvítt (eins hvítt og það mögulega getur orðið)
Neon grænt
eða Dökk blátt

Hvað finnst ykkur ?

Edit: Núna er ég búinn að þessu og tók nokkrar myndir áðan :) (veit að það eru svoldið mikið af snúrum.. en það er rosa erfitt að fela þær betur en þetta þegar maður er með svona marga hdd)

Fyrir

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd


Eftir

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:21
af Gunnar
eldrautt. rautt og blátt fara vel saman fynnst mér. og rautt og svart utaná kassanum.

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:27
af Glazier
Gunnar skrifaði:eldrautt. rautt og blátt fara vel saman fynnst mér. og rautt og svart utaná kassanum.

veit ekki sko.. er ekkert sérstaklega mikið fyrir rauðann :S

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:43
af TwiiztedAcer
Appelsínugulur og svartur, getur svo bætt einum við í leiðinni
Þessir fara svo æðislega vel saman :D
example:
http://www.kicksonfire.com/wp-content/u ... lack-2.jpg

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:44
af Glazier
TwiiztedAcer skrifaði:Appelsínugulur og svartur, getur svo bætt einum við í leiðinni
Þessir fara svo æðislega vel saman :D
example:
http://www.kicksonfire.com/wp-content/u ... lack-2.jpg

tjaa.. ætla nú bara að hafa einn lit inni í honum :)

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:46
af dnz
Neon grænann eins og gjarðirnar þínar verða

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:48
af Glazier
dnz skrifaði:Neon grænann eins og gjarðirnar þínar verða

yeahh.. hver ert þú haha ? :D

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:51
af dnz
Var í Öskjuhlíðinni með þér mörðurinn þinn, tók... ehmm.... vitlausa beygju.... <.<

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:56
af Glazier
dnz skrifaði:Var í Öskjuhlíðinni með þér mörðurinn þinn, tók... ehmm.... vitlausa beygju.... <.<

haha ja þúú.. :D
En er það málið ?
Hafa tölvuna í stíl við hjólið.. haha

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:58
af dnz
Það er nett sko, svo er græni liturinn alltaf bara aðeins of svalur

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ?

Sent: Fös 15. Jan 2010 01:03
af Glazier
dnz skrifaði:Það er nett sko, svo er græni liturinn alltaf bara aðeins of svalur

jáá en samt sko.. fengi maður ekki ógeð ?
Ég er með tölvuna allveg við hliðiná mér uppá borðinu og hún er ALLTAF opin.. þannig þessi litur blasir alltaf við þegar ég sit við tölvuna :D
En dauðlangar að prófa hvítann.. þori því samt pínu ekki, hræddur um að það verði ekki flott :S

Edit: hahahhaha fór á google og fann þessa: http://theairbrushforum.com/attachments ... cn1450.jpg

Edit2: svo er náttla hægt að vera geðveikt flippaður og hafa hann gulllitaðann eða svona feitt krómaðann lit sem glansar ógeðslega mikið :P

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 17. Jan 2010 03:18
af Glazier
Komnar myndir.. efst ;)

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 17. Jan 2010 11:20
af Lexxinn
lookar helvíti vel

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 17. Jan 2010 15:59
af Glazier
Lexxinn skrifaði:lookar helvíti vel

mhm.. er líka bara drullu sáttur með þetta :D

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 21:16
af ZoRzEr
Glazier skrifaði:Komnar myndir.. efst ;)


Sælir,

Hvar fékkstu svarta litinn og prímerinn ? Ég fæ Coolermaster HAF932 á morgun og ætla mér að lita hann svartann að innan. Ég hef bara svo lítinn tíma eftir vinnu að fara kaupa brúsana og sandpappírinn að það væri betra að fá að vita það fyrirfram.

Geri þetta örugglega um næstu helgi svo í rólegheitunum. Posta myndum fyrir og eftir.

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 21:35
af Frost
Lookar vel. Mér finnst að kassar eigi bara að koma svartir að innan.

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 21:54
af ZoRzEr
Frost skrifaði:Lookar vel. Mér finnst að kassar eigi bara að koma svartir að innan.


Innilega sammála.

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 21:57
af Frost
ZoRzEr skrifaði:
Frost skrifaði:Lookar vel. Mér finnst að kassar eigi bara að koma svartir að innan.


Innilega sammála.


Margir kassar að koma á markaðinn sem að eru svartir, en eins og þú ert að fá þér HAF932 þá finnst mér að það ætti að vera sjálfssagt með svona "high end" kassa.

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 22:10
af ZoRzEr
Frost skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:
Frost skrifaði:Lookar vel. Mér finnst að kassar eigi bara að koma svartir að innan.


Innilega sammála.


Margir kassar að koma á markaðinn sem að eru svartir, en eins og þú ert að fá þér HAF932 þá finnst mér að það ætti að vera sjálfssagt með svona "high end" kassa.


Þetta verður eitthvað ævintýri að spreyja þennan blessaða kassa.

Valið var á milli HAF 932 og Antec 1200. Keypti P182 kassan sem ég nota núna bara því 1200 var ekki til.

Annars var ég aðeins að svitna á efri vörinni yfir Corsair 800D kassanum...

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 22:39
af Glazier
ZoRzEr skrifaði:
Glazier skrifaði:Komnar myndir.. efst ;)


Sælir,

Hvar fékkstu svarta litinn og prímerinn ? Ég fæ Coolermaster HAF932 á morgun og ætla mér að lita hann svartann að innan. Ég hef bara svo lítinn tíma eftir vinnu að fara kaupa brúsana og sandpappírinn að það væri betra að fá að vita það fyrirfram.

Geri þetta örugglega um næstu helgi svo í rólegheitunum. Posta myndum fyrir og eftir.

Keypti svartann glans lit hjá Bymos í mosfellsbænum.
Getur keypt þetta í öllum verslunum sem selja Flugger sprey.

Ég þurfti einn og hálfann brúsa fyrir eina umferð yfir allann kassann að innan + innanverðar hliðarnar.
Ég var of óþolinmóður þannig ég spreyjaði bara eina umferð beið síðan í 4 tíma og púslaði saman en svo nokkrum dögum seinna komst ég að því að önnur hliðin (eina hliðin sem ég var búinn að setja á) var pikk föst vegna þess ég leyfði þessu ekki að þorna nógu lengi (þetta þarf 2 heila sólahringa til að vera 100% þurrt)

Síðan prófaði ég að spreyja 2svar bakvið móðurborðið og sá að það kom mun betur út en að spreyja bara einu sinni þannig ég mæli með því að t.d. ef þú spreyjar allann kassann um 9 að kvöldi (og hliðarnar líka að innan) síðan spreyjaru allt dæmið aftur næsta dag og bíður síðan í 2 sólahringa áður en þú setur saman, þetta er orðið vel snerti þurrt eftir 4 tíma en ef þú setur síðan hliðarnar á þá festast þær á.

Vona að þú skiljir þetta, ef ekki þá geturðu bara sent mér pm og spurt eða bara hérna ;)


Edit: Langar að taka fram að ég pússaði ekki og ég setti engann grunn, ég bara blés rykið í burtu sem var í kassanum þannig hann var allveg hreinn síðan spreyjaði ég bara svarta spreyinu beint á kassann og það helst mjög vel, allgjör óþarfi að pússa eða nota grunn ;)

Re: Hvaða lit á maður að hafa inni í kassanum ? Komnar myndir !!

Sent: Sun 21. Feb 2010 22:58
af ZoRzEr
Glazier skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:
Glazier skrifaði:Komnar myndir.. efst ;)


Sælir,

Hvar fékkstu svarta litinn og prímerinn ? Ég fæ Coolermaster HAF932 á morgun og ætla mér að lita hann svartann að innan. Ég hef bara svo lítinn tíma eftir vinnu að fara kaupa brúsana og sandpappírinn að það væri betra að fá að vita það fyrirfram.

Geri þetta örugglega um næstu helgi svo í rólegheitunum. Posta myndum fyrir og eftir.

Keypti svartann glans lit hjá Bymos í mosfellsbænum.
Getur keypt þetta í öllum verslunum sem selja Flugger sprey.

Ég þurfti einn og hálfann brúsa fyrir eina umferð yfir allann kassann að innan + innanverðar hliðarnar.
Ég var of óþolinmóður þannig ég spreyjaði bara eina umferð beið síðan í 4 tíma og púslaði saman en svo nokkrum dögum seinna komst ég að því að önnur hliðin (eina hliðin sem ég var búinn að setja á) var pikk föst vegna þess ég leyfði þessu ekki að þorna nógu lengi (þetta þarf 2 heila sólahringa til að vera 100% þurrt)

Síðan prófaði ég að spreyja 2svar bakvið móðurborðið og sá að það kom mun betur út en að spreyja bara einu sinni þannig ég mæli með því að t.d. ef þú spreyjar allann kassann um 9 að kvöldi (og hliðarnar líka að innan) síðan spreyjaru allt dæmið aftur næsta dag og bíður síðan í 2 sólahringa áður en þú setur saman, þetta er orðið vel snerti þurrt eftir 4 tíma en ef þú setur síðan hliðarnar á þá festast þær á.

Vona að þú skiljir þetta, ef ekki þá geturðu bara sent mér pm og spurt eða bara hérna ;)


Glæsilegt, þakka þér kærlega. Ég redda brúsunum á morgun og primer, eyði örugglega næstu dögum að taka kassann í sundu og pússa hann og set nokkrar umferðir af primer. Svo ein umferð af svörtu á fimmtudag, önnur á föstudag, laugardag og svo samsetning sunnudag. Vonandi gengur þetta bara vel.

Takk kærlega fyrir upplýsingarnar.