Síða 1 af 2

alvöru mod!

Sent: Sun 04. Jan 2004 20:28
af Fletch
jæja, mér leiddist um helgina svo ég tók upp lóðboltan minn og skjákortið mitt ! :shock:

Mynd

Volt'modaði það semsagt, default eru volt'in á 9700 um 1.60V á GPU, hækkaði það í 1.8V, ég næ núna að OC'a GPU'in í 450 MHz, í stað 390!

Aðgerðin fólst í að lóða saman tvo pinna á kubbnum sem stjórnar volt'unum inná gpu'in með 10k Pot á milli, get þá bætt við ca. 0.1-0.4V við volt'in á gpu'in...

btw 9800XT er á 412 MHz default!

ekki slæmt :8)

Fletch

Sent: Sun 04. Jan 2004 20:35
af Snorrmund
hehe Þú ert snillingur..

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:09
af Cras Override
alls ekki slæmt og það er rétt þú ert snillingur

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:12
af dabb
Ég er að bíða eftir að tölvan þín springi.

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:20
af Cras Override
hvernig lóðbolta ertu með minn er svo stór að ég get ekkert gert neitt svona lítið með honum.

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:23
af Fletch
bara ódýran sem ég keypti í íhlutir...

Vantar eiginlega betri, með fínni nál og hitastillanlegan, þarf að fá mér nýjan, það er líka hægt að auka strauminn á minnið á kortinu en þá þarf að fara inná smærri rásir sem ég get ekki gert með mínum bolta

ps. mæli alls ekki með að menn pæli í þessu nema þeir séu búnir að bæta kælinguna á kortinu!

Fletch

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:24
af Guffi
snild.En samt afhverju gera skjákorts fyrirtækin þetta ekki :!: :!: hlýtur að vera ithver ástæða :idea:

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:26
af Fletch
Guffi skrifaði:snild.En samt afhverju gera skjákorts fyrirtækin þetta ekki :!: :!: hlýtur að vera ithver ástæða :idea:


more volts = more heat...

þá þarf mun öflugri kælingu...

með kortið hjá mér vatnskælt og heatsinks á minninu.

Fletch

Sent: Sun 04. Jan 2004 21:29
af Guffi
ok þá get ég hætt að spá í þetta :cry:

Sent: Sun 04. Jan 2004 23:11
af Damien
Ef ég sendi þér skjákortið mitt, nenniru þá að gera svona fyrir mig? :roll:

Sent: Sun 04. Jan 2004 23:27
af Fletch
Damien skrifaði:Ef ég sendi þér skjákortið mitt, nenniru þá að gera svona fyrir mig? :roll:


Hvernig kort er þetta og hvernig kælingu ertu með á því ?

Fletch

Sent: Sun 04. Jan 2004 23:31
af dabb
Fletch opnaðu bara OC stofu eða einhvað maður.
Það verður vinsælt :wink:

Sent: Mán 05. Jan 2004 00:11
af Cras Override
ef að hann myndi gera það þá gæti hann ekki ábyrgst að þetta myndi ekki skemma búanði og hann þyrfti að þekkja hann og alskonar þannig.

Sent: Mán 05. Jan 2004 01:14
af dabb
Það er allt í lagi.
Bara að maður svamli í peningum :8)

Sent: Mán 05. Jan 2004 19:03
af Fletch
Væri alltaf ÁN ábyrgðar! :roll:

Fletch

Sent: Mán 05. Jan 2004 19:05
af Cras Override
jamms mar gæti líka rukkað slatta fyrir þetta.

Sent: Mán 05. Jan 2004 19:10
af Hlynzit
Cras Override skrifaði:jamms mar gæti líka rukkað slatta fyrir þetta.

Hei ekki gefa kallinum hugmyndir :roll:

Sent: Mán 05. Jan 2004 19:11
af Cras Override
afhverju ekki ????????

Sent: Mið 07. Jan 2004 00:07
af Damien
Fletch skrifaði:
Damien skrifaði:Ef ég sendi þér skjákortið mitt, nenniru þá að gera svona fyrir mig? :roll:


Hvernig kort er þetta og hvernig kælingu ertu með á því ?

Fletch

Saphire built, Ati Radeon 9800 Pro

...með góðri vatnskælingu :wink:

Mynd
Þetta er vatnskælingin (nema ég er með öðruvísi pumpu sem dælir
pííínulítið hægar á mín og öðruvísi áfyllingarbakka(bara eldri gerð))
Mynd
Og hér er mynd af kubbnum á skjákortinu, þess má geta að ég er líka með svona ramsink :wink:

Sent: Mið 07. Jan 2004 00:09
af odinnn
Fletch hvernig límiru eða færð ram sink kubbana til vera þarna? ertu með eitthvað hitaleiðandi krem sem er líka límandi?

Sent: Mið 07. Jan 2004 00:54
af Fletch
Damien skrifaði:Saphire built, Ati Radeon 9800 Pro

...með góðri vatnskælingu :wink:

Og hér er mynd af kubbnum á skjákortinu, þess má geta að ég er líka með svona ramsink :wink:


Can you say "voltmod" ? ;)

Fletch

Sent: Mið 07. Jan 2004 00:56
af Fletch
odinnn skrifaði:Fletch hvernig límiru eða færð ram sink kubbana til vera þarna? ertu með eitthvað hitaleiðandi krem sem er líka límandi?


Setti bara kælikrem (AS keramík) og smá lím í hornin, er vel fast á og auðvelt að ná þeim af...

Fletch

Sent: Mið 07. Jan 2004 01:02
af Fletch
Búin að vera fikta meira í þessu, tók eftir því að waterblock'in var ekki að ná góðum contact við gpu'in, í kringum gpu'in er metal rammi, sem er örlítið hærri en gpu'in. Venjulega kælingin er með svona thermal pad á milli sem er kannski 1 mm... Ég fjarlægði ramman, og núna nær blockin 100% contact'i, hitastigið á kortinu er líka um 10°C lægra... Og núna er ég að ná 460-470 MHz á lægri voltum (1.77) !!?!?! eftir að prófa þetta betur :roll:

svo er bara spurning hvenær kortið brennur yfir :twisted:

Fletch

Sent: Mið 07. Jan 2004 01:06
af SkaveN
Þú getur ekki hætt!!! :wink:

Sent: Mið 07. Jan 2004 01:20
af Fletch
SkaveN skrifaði:Þú getur ekki hætt!!! :wink:


Lol, nei, alltof gaman :8)

Fann hérna mynd sem sýnir ramman

Mynd

Fletch