Lanparty Mod

Skjámynd

Höfundur
beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3080
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 48
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Lanparty Mod

Pósturaf beatmaster » Lau 21. Nóv 2009 20:10

Ég í gleði minni fjárfesti í notuðu DFI Lanparty NF4 borði og hugsaði með mér að 2 PCI-E raufar hlytu að þýða SLI jafnvel crossfire.
Þannig að ég fór að skoða review og komst fljótlega að því að Lanparty Nf4 kemur í 5 mismunandi útfærslum:
DFI skrifaði:Lanparty UT NF4 Ultra-D
Lanparty UT NF4 Ultra-DR
Lanparty UT NF4 SLI-D
Lanparty UT NF4 SLI-DR
Lanparty NF4 SLI-DR

Þessi borð eru svo gott sem nákvæmlega eins, R-útgáfa inniheldur Silicon Image Sil3114 RAID controller og UT á að snúast um fylgihlutina sem að koma með borðinu og samkvæmt þessu review-i stendur UT fyrir "UV on, Tweak Fun!!"

Mynd

Ég komst að því að ég hafði keypt Lanparty UT Ultra-DR


Þar sem að ég gramsaði í gegnum þetta review las ég um að hægt væri að modda Ultra borðin í SLI, þær leiðbeiningar fann ég á AnandTech

Til að gera langa sögu stutta þá er eini munurinn á þessum 2 kubbum eiginlega enginn og til að gera þetta þarf aðeins að tengja saman 2 punkta sem að eru ekki tengdir saman á Ultra kubbinum

Skoðum aðeins nForce 4 kubbinn frá Nvidia nánar

NVIDIA nForce4 kubburinn kemur í þremur útgáfum.

* nForce4: Ódýrasta útgáfan og styður hvorki SLI né SATA-II.
* nForce4 Ultra: Miðlungsútgáfan, hún styður SATA-II en ekki SLI.
* nForce4 SLI:Toppurinn, með stuðningi við SATA-II og SLI.

Mynd

Þetta er mynd af nForce4 Ultra kubbinum, eins og sést eru SATA-II punktarnir tengdir en ekki sLI punktarnir.

Til að fá annaðhvort SLI eða SATA-II til að virka þarf að leiða þarna á milli, til þess er hægt að nota leiðandi penna eða venjulegan blýant.

Það var bara fyrsta útgáfa af Lanparty NF4 þar sem var svona rosalega auðvelt að modda það í, næstu útgáfum var það bara auðvelt :P

Mynd

Eins og sést á myndinni hérna fyrir ofan þá er kominn Epoxy klessa yfir SLI punktana, það er af einhverjum ástæðum líka komin klessa á öðrum stað á kubbinum en ekki er vitað afhverju og þykir líklegt að Nvidia hafi sett hana til að rugla væntanlega moddendur í rýminu, því að klessan er ekki yfir neinu merkilegu.

Hérna er borðið mitt komið í turninn sem það mun búa í, þetta er Cooler Master Centurion (Svo aldraður að ég næ ekki að Google-a neina mynd af honum)
Mynd

Skjákortið komið í (Inno3D 9600GT OC)
Mynd

Þá er bara að ræsa og sjá fyrir fullt og allt hvað þetta borð býður uppá
Mynd

Ultra var það víst :)

Þá er bara að kíkja á Norðurbrúnna, nForce Ultra kubburinn felur sig hérna undir þessari viftu
Mynd

Borðið komið aftur úr kassanum og viftan fokinn af (skemmtilegur orðaleikur :P )
Mynd

Þá er bara að byrja að Modda, það fyndna við allt þetta myndaflóð er að það er enginn mynd af modduninni sjálfri.
Ástæðan er sú að ég byrjaði í rólegheitunum að skrapa Epoxy dótið af en var ekki viss hversu vel það gengi, þannig að ég ákvað bara að krassa á milli SLI punktana með blýanti, henda viftunni aftur á og ræsa upp borðið til að sjá hvort eitthvað hafði breyst og viti menn...
Mynd

SLI mætt á svæðið :D

Eftir að þetta var allt orðið up and running í kassanum nennti ég ekki að taka allt fram aftur til að taka mynd...


Þá er bara að setja upp SLI setup-ið
Hérna er parið, Inno3D 9600GT OC og Sparkle 9600 GT - Svo ólík en samt svo lík...
Mynd

Svo að kortin geti spjallað saman er hér SLI brú frá ABIT og er alfarið í boði Kísildals - Þúsund þakkir þangað :)
Mynd

Þá er bara smá vandamál eftir en það fólst í því að ég hafði ekki neitt nógu öflugt PSU liggjandi á lausu en hafði hinsvegar 1x350W og 1x 460W PSU hérna.

Þá er bara að útbúa sér eitthvað til að tengja á milli POWER_ON og GND á 460W aflgjafanum til að geta kveikt á því bara með takkanum aftaná, beygður vír reyndist henta mjög vel
Mynd

Vírínn kominn á sinn stað og falinn á bakvið einangrunarteip einnig þekkt sem FBF (Fúskarans Best Friend)
Mynd

Lokamynd af öllum herlegheitunum
Mynd


Þá er um að gera að loka þræðinum með fyrir og eftir Bench myndum ásamt Win7 WEI Score (2 Benchmark fyrir og eftir)

Fyrir...
Mynd

Eftir
Mynd

Fyrir...
Mynd

Eftir...
Mynd

WEI Fyrir...
Mynd

WEI Eftir...
Mynd


Takk fyrir mig.
beatmaster


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.


Orri
vélbúnaðarpervert
Póstar: 936
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Reputation: 152
Staða: Ótengdur

Re: Lanparty Mod

Pósturaf Orri » Lau 21. Nóv 2009 20:18

Snilld ! :)



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Lanparty Mod

Pósturaf chaplin » Lau 21. Nóv 2009 20:22

Legend setup! Á svipað, vantar samt nýjan örgjörva, helst nákvæmlega eins og þinn, keypti mitt eingöngu fyrir mod/oc/tests! Ef þú veist hvar ég get nálgast svipaðan örgjörva, amk. +3800 sendu póst. ;)



Skjámynd

Höfundur
beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3080
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 48
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lanparty Mod

Pósturaf beatmaster » Lau 21. Nóv 2009 20:31

daanielin skrifaði:Legend setup! Á svipað, vantar samt nýjan örgjörva, helst nákvæmlega eins og þinn, keypti mitt eingöngu fyrir mod/oc/tests! Ef þú veist hvar ég get nálgast svipaðan örgjörva, amk. +3800 sendu póst. ;)
Alveg Blankó með það, er búinn að skipta á þessum 4000+ (Sem að ég keypti hérna á Vaktinni sem X2 en reyndist vera Single Core :evil: ) og Opteron sem ætti að detta inn í borðið þegar að pósturinn skilar honum til mín eftir helgi :D


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Lanparty Mod

Pósturaf Glazier » Lau 21. Nóv 2009 20:35

Nice :)
Vinur minn á Lanparty móðurborð.. eru þessi móðurborð góð til þess að overclocka (spyr hann) ?


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Höfundur
beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3080
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 48
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lanparty Mod

Pósturaf beatmaster » Lau 21. Nóv 2009 20:38

Glazier skrifaði:Nice :)
Vinur minn á Lanparty móðurborð.. eru þessi móðurborð góð til þess að overclocka (spyr hann) ?
Best til þess og gerð til þess! (og þetta eru ekki ýkjur, spyrðu hvern sem er)


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Lanparty Mod

Pósturaf chaplin » Sun 06. Des 2009 12:41

Djöfusins snilld! Láttu vita ef þú moddar meira. ;)