Síða 1 af 1
Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Sun 15. Nóv 2009 02:35
af GullMoli
Sælir kæru vaktarar.
Ég er búinn að vera að fikta aðeins í yfirklukki núna undanfarið.
Það sem ég er kominn með so far er:
E6750 @ 3.4Ghz á 1.36 voltum (hækka um eitt stig).
Er með einn 2gb 800mhz minniskubb sem ég hækkaði í 850MHz til að fá FSB:DRAM jafnt og 1:1, hækkaði þá voltin á minninu um 0.05.
Er búinn að keyra orthos í rúma 6 tíma núna og ég lét LinX keyra eitt run á sama tíma og það kom úr errorlaust, ætti samt kannski að prufa að láta það keyra nokkrum sinnum.
Einnig þá fann ég enga leið til að breyta timings á minninu í BIOS og sá í CPU-Z að timings hafa sjálfkrafa farið úr 5-5-5-18--23 í 5-6-6-20--25. Hefur einhver svör við af hverju þetta gerist?
Hvernig líst ykkur annars á þetta? Er ég nokkuð að missa af einhverju? Þarf ég nokkuð að vera að hækka voltin á einhverju öðru (NB t.d.)?
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Sun 15. Nóv 2009 02:49
af SteiniP
Ef hún er stöðug þá er engin ástæða til að hækka voltin.
Best er að keyra stress test í allavega 12 tíma til að vera safe, en yfirleitt koma samt villur fram á fyrsta klukkutímanum ef hún er óstöðug.
En þetta er fínn hiti á þessu hjá þér og góð klukkun, hvað er þessi örri stock, 2.6GHz?
Þetta með timings, þá hækkar það yfirleitt sjálfkrafa þegar minnið er klukkað hærra. T.d. hjá mér þá eru þau 5-5-5-15--23 á 800MHz en 4-5-5-13--20 á 667MHz
En það ætti að vera hægt að stilla þau í BIOS.
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Sun 15. Nóv 2009 02:58
af GullMoli
Takk fyrir svarið!
Já hann er 2.66GHz stock. Í sambandi við minnið þá hef ég leitað en ég finn ekkert sem leyfir mér að breyta timings á minninu, skil ekkert hvar í ósköpunum þetta er falið.. :/ ojæja, þetta eru varla svo slæm timings? Hefði nefnilega verið til í að prufa að setja timings á stock og sjá hvort það væri ekki alveg stöðugt.
Prufa að keyra orthos í +12 tíma næstu nótt, nenni ekki að hafa tölvuna í gangi núna
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Sun 15. Nóv 2009 07:06
af chaplin
Ef hún er stöðug í +2klst þá þarftu ekki að spá jack í þessu, þá er næsta skref að keyra voltin á örgjörvan niður þangatil tölvan þolir 2klst eða keyra örgjörvan upp. Annars er ég núna að prufukeyra minn 6420 aftur, langar svo grimmt að ná honum í 4.0GHz að ég er að tapa mér, sýnist þú vera með mjög gott eintak og ef hitinn er undir hámarki myndi ég stefna hærra.
Ef þú nærð 3.8 Ghz (gætir þurft alltaf að 1.45v + smá nbvolt) þá ertu með mjög góða örgjörva!
Annars eru 12 klst test algjör óþarfi nema tölvan verði notuð sem hardcore server- eða ripvél. Ég hef klukkað tölvur og ná ekki 1sek stable í Orthos/Prime, undir 2min í LinX en geta samt verið í gangi í +336klst (2 vikur) í mikilli notkun, t.d. Hardcore leikjanotkun, photoshop ect. án þess að crasha, og því vill ég minna fólk að stress test segja ekki allt.
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Sun 15. Nóv 2009 12:22
af viddi
GullMoli skrifaði:Takk fyrir svarið!
Já hann er 2.66GHz stock. Í sambandi við minnið þá hef ég leitað en ég finn ekkert sem leyfir mér að breyta timings á minninu, skil ekkert hvar í ósköpunum þetta er falið.. :/ ojæja, þetta eru varla svo slæm timings? Hefði nefnilega verið til í að prufa að setja timings á stock og sjá hvort það væri ekki alveg stöðugt.
Prufa að keyra orthos í +12 tíma næstu nótt, nenni ekki að hafa tölvuna í gangi núna
Gerðu CTRL + F1 þegar þú kemur inní BIOS þá ættu nokkrar aukastillingar að birtast
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Sun 15. Nóv 2009 13:47
af GullMoli
Ah takk Viddi!
Og daanielin ég hef keyrt test og hef ekki fengið error fyrr en eftir 8 tíma. Vil að þetta sé 100% stable því ég er að láta tölvuna reikna í prime95
ætla að prufa að ná þessu í 3.6Ghz, hætti eftir það
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Mán 16. Nóv 2009 20:19
af chaplin
GullMoli skrifaði:Og daanielin ég hef keyrt test og hef ekki fengið error fyrr en eftir 8 tíma. Vil að þetta sé 100% stable því ég er að láta tölvuna reikna í prime95
Ætlaru að hafa þessa tölvu eingöngu fyrir Prime95 vinnslu ??
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Mán 16. Nóv 2009 20:48
af GullMoli
hahaha nei alls ekki, bara þegar ég er ekki heima/sofandi
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Þri 17. Nóv 2009 19:47
af chaplin
Já blessaður vertu, ef þú spilar 5 x MW2 í 10klst, þá eru 2-3klst meira en nóg í stability testi. Flokkast ekki sem BOC og fullgilt.
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Þri 17. Nóv 2009 19:56
af Frost
Næs yfirklukkun, ég náði mínum svipað hátt. Fór í 3,6Ghz og fékk BSOD. Veit ekki hvernig ég á að ná honum í 3,6 stable :S.
Re: Fikt við yfirklukk, vantar álit
Sent: Þri 17. Nóv 2009 20:10
af GullMoli
heh, takk fyrir það
Fyrst þegar ég var að prufa þá yfirklukkaði ég bara örgjörvan og kom honum í 3.6GHz, gat keyrt Otrhos fínt í einhverja klukkutíma.
Vil bara hafa þetta í 3.4GHz því þá þarf ég ekki að klukka minnið mikið til að fá 1:1 , þetta er nefnilega ekki beint yfirklukkunar minni :Þ