Síða 1 af 1
Hár CPU hiti
Sent: Fim 01. Jan 2004 04:33
af Roggi
Bara að spá í hversu hollt/óhollt það er fyrir örgjörvann minn að vera í 45° idle og alveg upp í 54° í vinnslu. Á ég eitthvað að fara að gera ráðstafanir eða bara láta þetta eiga sig?
Sent: Fim 01. Jan 2004 05:57
af aRnor`
Þetta er fínn hiti, láttu þetta bara eiga sig.
Sent: Fim 01. Jan 2004 06:12
af Roggi
Arg, ekki er nú allt komið enn.
Síðan ég kom af lani (í gær) þá hefur tölvan mín verið að fara upp í 60° idle. Þetta held ég að sé þó argasta vitleysa þar sem að ef ég fer eitthvað að gera í henni þá lækkar hún nokkuð snögglega í venjulegt idle, 45°. Ég hef kíkt í kassann þegar tölvan segir að það séu 60° þarna inni og held að það sé argasta vitleysa, hef alveg fundið það heitara þarna inni.
Þetta gerist bara ef að ég skil tölvuna eftir í 30-60 mínútur eða svo. Þá fer sound alert í gang, eins og ég stillti í biosinu og allt verður vitlaust. Ætla að setja hitamæli þarna inn og sjá hvort að þessi tala eigi við einhver rök að styðjast.
Einhver ráð?
Sent: Fim 01. Jan 2004 14:57
af Guffi
sko mín tölva er að fara langt yfir þín mörk alveg upp i sona 76 gráður en
láttu mæla sesorana þína. Mínir voru band vitlausir og ef þetta er rétt ekkert að sensorana þá er þetta allt í góðu þú ert ekki að nálgast hættu mörk á 60 til 65. þú ert að nálgast hættu mörk þarna ef hann fer ekki ifir 65 gráður þá er þetta í fínu lagi.
Sent: Fim 01. Jan 2004 15:12
af Roggi
Finnst bara svo merkilegt að hann fari að verða svona rosalega heitur í idle
Sent: Fim 01. Jan 2004 17:37
af gnarr
getur verið að tölvan sé stillt í bios eða einvherstaðar hjá þér að slökkva á örgjörfaviftunni þegar hún erbúin að vera idle í einhvern tíma?
Sent: Fim 01. Jan 2004 18:52
af GuðjónR
Flott að hafa þetta svona
Sent: Fim 01. Jan 2004 20:29
af Arnar
wt.. hvernig fórstu að þessu GuðjónR?
Hentiru henni í þennan fallega nýfallna snjó?
Og er þetta on die mæling eða?
Sent: Fim 01. Jan 2004 21:05
af Roggi
Tja, ef að örgjörvaviftan slekkur á sér í idle þá hefur sú stilling komið á af sjálfsdáðum, þar sem ég hef alveg látið það vera. Samt alveg hugsanlegt, þar sem þetta gerist aðeins eftir svona hálftíma idle.
Sent: Fös 02. Jan 2004 20:13
af WarriorJoe
GuðjónR, hvernig kælingu ertu eiginlega með? Og hvaða sniðuga forrit er þetta sem þú ert með þarna
Sent: Fös 02. Jan 2004 20:57
af Snorrmund
WarriorJoe: Ef þú skoðar myndina þá stendur "SpeedFan 4.09"
en held að hann hafi bara downclockað örran r somthing er ekki viss, eða bara leet photoshop skillz ;D
Sent: Fös 02. Jan 2004 23:21
af Pandemic
Sent: Lau 03. Jan 2004 00:10
af GuðjónR
Þetta var einfalt ég opnaði gluggan þegar hitinn úti var -10°c síðan beið ég meðan hitinn í gluggakistunni droppaði niður í -8°c.
Svo opnaði ég hliðina á kassanum sem er alveg við gluggann og hann hélst svona kaldur meðan ég þoldi við inn í herberginu.
Ég mæli ekki með þessari aðferð
Sent: Lau 03. Jan 2004 01:09
af iStorm
Ég setti upp þetta forrit (speed fan) og það finnur alla 3 diskana mína en sýnir engann hita á þeim,bara á temp 1 og 2.
Hvað gæti verið málið
Sent: Lau 03. Jan 2004 02:08
af Gandalf
jamm ég er líka með þetta speedfan og var að skoða það aðeins. Það detectar líka mína diska og það sem kemur af hitamælingum er:
Temp3: -48°C
Temp: -48°C
Temp2: 41°C
Temp: 41°C
Temp1: 36°C
Geri passlega ráð fyrir að þar sem -48°C sé þá séu ekki virkir hitaskynjarar eða eitthvað, en hvernig veit ég hvaða skynjarar hinir eru? Hvort það sé CPU, diskarnir (er btw með tvo diska) eða bara hitinn í kassanum. Og hvaða leið get ég notað til að komast að því?
P.s. Ef ég fer í configure þá sé ég að temp3, temp2 og temp1 eru "winbond W83627HF" en Temp er "LM75" í Chip.