Síða 1 af 1
Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Mið 30. Sep 2009 08:14
af GullMoli
Sælir,
Er með 500W CoolerMaster algjafa sem er það eina sem gefur frá sér hljóð í tölvunni minni. Því langar mig að skipta um viftuna í honum.
Er búinn að opna hann og þetta er 12CM vifta sem er tengd með 2 pinna tengi. Var að spegúlera hvort að
http://kisildalur.is/?p=2&id=647 myndi duga til þess að halda þessu kældu, blæs eflaust ekki jafn miklu og núvernandi viftan en getur varla skipt svo miklu máli þar sem ég er með vel kældan kassa + hann er mjög stór.
Kv.
GullMoli
Re: Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Mið 30. Sep 2009 10:01
af Minuz1
Bíddu í mjög langan tíma eftir að þú hefur aftengt afgjafan frá straumi áður en þú ferð að fikta....
Þéttar á aflgjöfum halda mjög miklu rafmagni og getur verið léttilega lífshættulegt ef þú snertir vitlausa fleti.
Re: Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Mið 30. Sep 2009 11:04
af Arnarr
Líka gott að eftir að þú slekkur á vélini og tekur hana úr sambandi að ýta á kveiki takkann... Tekur einhvað af þessu þéttum með því!
Re: Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Mið 30. Sep 2009 11:07
af GullMoli
Heh, tók tölvuna úr sambandi, ýtti á takkan nokkrum sinnum og beið svo í klukkustund. Unpluggaði svo viftuna, fór vissulega stórkostlega varlega.
Re: Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Fim 01. Okt 2009 00:06
af Frost
http://kisildalur.is/?p=2&id=819 Taktu frekar þessa. Langbesta vifta sem að ég veit um.
Re: Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Fim 01. Okt 2009 18:27
af littli-Jake
Algjör óþarfi. Fyrir utan að sú sem þú bendir á kemst niður í 9 db þá hefur hún ekkert framyfir í þetta. Sú fyrri er með nægilega lofthreifigetu og rúmlega það.
Aftur á móti er ég sammála um að þessi vifta er hrein eðal. Ég er með svona viftu á örrakælingunni minni og þetta er gargandi snild. Eini gallinn er sá að ég þarf alltaf að kíkja til að gá hvort að hún sé í botni eða lámarki því að það heirist enginn munur
Re: Skipta um viftu í aflgjafa
Sent: Fim 01. Okt 2009 19:41
af GullMoli
Jæja, búinn að skipta um viftu. Byrjaði á því að plögga 3 pinna tenginu sem er á viftunni í 2 pinna tengið í aflgjafanum. Það virkaði ekki svo ég tengdi viftuna bara í 12 volta tengi og það virkar fínt
Ah.. hljóðlaus tölva.
Skelli mér svo eflaust á Tacens Ventus Pro viftuna þegar ég uppfæri örgjörvakælinguna.