Síða 1 af 1

Just Cooler HD600

Sent: Lau 13. Des 2003 00:47
af Gandalf
Einhver með reynslu af þessari harðdisk kæliviftu sem er í jóladagatalinu ? Er þetta eitthvað að standa sig og er þetta nógu lágvært ?
Just Cooler HD600
http://www.computer.is/vorur/3089

Svona pæling hvort maður skelli sér á þetta ef þetta hefur reynst vel.

Sent: Lau 13. Des 2003 00:55
af GuðjónR
Fyrir 594.-kr ætti að vera í lagi að prófa .... það má þá bara henda því ef það virkar ekki...

Sent: Lau 13. Des 2003 16:21
af Pandemic
ég var að versla svona smá hávaði en ekkert ærandi þegar komið er inn í kassa :)

Sent: Lau 13. Des 2003 18:17
af kiddi
Persónulega á ég erfitt með að trúa að svona viftukælingar geri eitthvað raunverulegt gagn fyrir HDD'a, annað en að lækka yfirborðshitann um °2-°3 gráður, sem er voða lítið í samanburði við raunhita diskana. Það er ekkert sem vatnskæling sem dugar á þetta held ég, eða riiisastórt heatsink, þetta er nú einusinni þokkalega þéttur járnklumpur sem þarf að kæla innviðin í. ;)

Sent: Lau 13. Des 2003 18:57
af Jakob
Þetta mun ekki gera neitt gagn.

Þú ert að blása HEITU lofti á nú þegar heita diska!

Ef þú vilt hugsa vel um diskana þína þá skaltu fá þér almennilegan kassa með viftu(m) sem draga ferskt loft inn og blása beint á diskana þína.

Sjáðu tildæmis þennan Lian-Li kassa:
http://www.lian-li.com/product.php?acti ... &prdid=376 (mynd)

Þarna ertu með tvær 80mm viftur (þessar framan á) með hraðastilli, sem blása beint á diskana... Svona á þetta að vera :-)

Sent: Mið 17. Des 2003 20:52
af Hlynzi
Ég held að þetta geri ekkert gagn. Þetta er á kolvitlausum stað.

Heatsink myndi gera gæfu muninn. Loft nær engum hita frá svona fleti.
Heatsink undir mótorinn, og á hliðarnar er það sem ég stefni á.

Sent: Mið 17. Des 2003 23:02
af Pandemic
minn diskur kólnaði þó um helling :roll: