Síða 1 af 1
Með hvaða viftum mælið þið ?
Sent: Mið 10. Des 2003 20:13
af Snikkari
Ég er með Chieftech Dragon kassa.
Vil setja eina viftu að framan(92mm) og eina að aftan(92mm), þarf að vera eins hljóðlátt og mögulegt er.
Með hverju mæliði ?
Einhver ráðlagði mér að taka Vantec Stealth viftur, eru þær góðar ?
Væri betra fyrir mig að hafa viftustýringu með þeim ?
Ekki einhverju svona:
Raddadaddada, best að kveikja á tölvunni og kíkka á vaktina snöggvast.
HVÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍN GAAAAAAAAAAAAAARG
Kona kemur hlaupandi sveiflandi ógnvekjandi barefli fyrir ofan höfði sér og öskrar:
"Neiiiiiiiiiiiii ég get ekki meira, slökktu á tölvunni kall andskoti eða ég rota þig"
Sent: Mið 10. Des 2003 20:27
af Arnar
Papst viftur eru bestar
Sent: Mið 10. Des 2003 22:22
af gumol
Já, best að hafa viftustýringu með.
Ertu viss umm að það sé 120 mm gat aftaná dragoninum þínum?
Sent: Mið 10. Des 2003 22:24
af Snikkari
gumol skrifaði:Já, best að hafa viftustýringu með.
Ertu viss umm að það sé 120 mm gat aftaná dragoninum þínum?
Það er allavega stærra en 80mm, það gæti líka verið 92mm, það eru rétt rúmlega 8 cm á milli gata.
Sent: Mið 10. Des 2003 22:31
af MezzUp
Snikkari skrifaði:Það er allavega stærra en 80mm, það gæti líka verið 92mm, það eru rétt rúmlega 8 cm á milli gata.
hehe, þá er það 80mm vifta, þú veist væntanlega að 8 cm er jafn mikið og 80mm :)
Sent: Fim 11. Des 2003 00:17
af Snikkari
MezzUp skrifaði:Snikkari skrifaði:Það er allavega stærra en 80mm, það gæti líka verið 92mm, það eru rétt rúmlega 8 cm á milli gata.
hehe, þá er það 80mm vifta, þú veist væntanlega að 8 cm er jafn mikið og 80mm
á 80mm viftu er 7.2 cm á milli gata, en í kross á götin eru 10.1cm.
Heildarmál viftunnar er hinsvegar 80mm(8cm)
Sent: Fim 11. Des 2003 06:49
af SkaveN
Ég hef heyrt að Smart Fan II er að gera góða hluti, Get ekki sýnt framm á neinn test bara orð frá ýmsum gaurin frá öðrum Forums
Hérna er svo stykkið :
http://www.computer.is/vorur/2147
Ef þú vilt vera dáldið extreme geturu alltaf fengið þér Tornado viftuna
Sent: Fim 11. Des 2003 10:57
af Snikkari
Ég búin að kíkkja á Smart Fan II.
Það er ekki sérlega góður kostur.
Hún er að skila 20.55 CFM(35 m³/klst) við 17dB (1300 RPM).
Task.is er með Ultra Silent S1 viftu sem er skila 22.35 CFM(38 m³/klst) við 11dB (1500 RPM)
Líklegast tek ég Ultra silent að framan, svo þarf ég að finna mér einhverja góða 92 mm að aftan.
Sent: Fim 11. Des 2003 11:20
af SkaveN
Já Smart Fan II gæti verið dáldið hávær á 4800rpm en þá er hún líka að skila 75.7 CFM þannig það er kannski ekki góður kostur fyrir þig.
Skoðaðu Vantec Stealth vifturnar, færð þær i öllum stærðum 80,92,120
Getur skoðað Review hér:
http://www.overclockersclub.com/reviews/vantecstealthfans.php
Sent: Fim 11. Des 2003 11:29
af gnarr
mér lýst nokkuð vel á þessa 11db ultra silent. ætli ég fái mér ekki 6 þannig stikki eftir áramót
Re: Með hvaða viftum mælið þið ?
Sent: Fim 11. Des 2003 12:53
af skipio
Papst og Panaflo eru bestar. Þú færð því miður ekki Panaflo á Íslandi þó en það er samt ódýrara að panta Panaflo að utan en að kaupa Papst á Íslandi (3000-4000 fyrir Papst á Íslandi á meðan Panaflo kostar cirka 1000 krónur). Annars skilst mér að gæðaeftirlitinu á Papst hafi hrakað dulítið eftir að þeir fluttu framleiðslu sína til Ungverjalands í staðinn fyrir Þýskaland.
Annars nota ég sjálfur Enermax 120mm viftu sem fæst í Task. Enermax eru mjög hljóðlátar á 5V. Sambærilegar við Papst.
Ekki kaupa Vantec Stealth.
Sent: Fim 11. Des 2003 13:46
af MezzUp
Snikkari skrifaði:MezzUp skrifaði:Snikkari skrifaði:Það er allavega stærra en 80mm, það gæti líka verið 92mm, það eru rétt rúmlega 8 cm á milli gata.
hehe, þá er það 80mm vifta, þú veist væntanlega að 8 cm er jafn mikið og 80mm :)
á 80mm viftu er 7.2 cm á milli gata, en í kross á götin eru 10.1cm.
Heildarmál viftunnar er hinsvegar 80mm(8cm)
aight, ég hélt að þú værir að tala um horn í horn
Sent: Fim 11. Des 2003 15:05
af Bendill
Ég myndi mæla með Vantec, Enermax eða Papst. Annars hef ég verið að nota Coolermaster LED viftur, þær eru afskaplega hljóðlátar. Er með þær á Zalman ZA-MFC1 og get skrúfað niður í þeim eftir vild
Sent: Fim 11. Des 2003 15:10
af gnarr
ég myndi mæla með málbandi.. þannig fáið þið þetta nákvæmar.
Re: Með hvaða viftum mælið þið ?
Sent: Fim 11. Des 2003 15:28
af Snikkari
skipio skrifaði:
Ekki kaupa Vantec Stealth.
Myndirðu vilja vera svo vænn að segja mér af hverju ekki Vantec Stealth ??
Ég er mjög forvitinn, því ég þekki ekkert inná þessar viftur !
Sent: Fim 11. Des 2003 20:27
af -Duce-
ég er með 2 stk 92mm panaflow á hliðinni á kassanum og þær eru
súrlega silent... annars myndi ég pæla í Sunon líka .. ekki neitt voða
dýrar en mazza sælent .. þ.e.a.s low rpm vifturnar .. er einnig með
solleiðis 2 stk 120 og þær valda mér ekki vonbrigðum allavegna
Re: Með hvaða viftum mælið þið ?
Sent: Fös 12. Des 2003 01:28
af skipio
Snikkari skrifaði:skipio skrifaði:
Ekki kaupa Vantec Stealth.
Myndirðu vilja vera svo vænn að segja mér af hverju ekki Vantec Stealth ??
Ég er mjög forvitinn, því ég þekki ekkert inná þessar viftur !
Þær eru bara ekkert sérstaklega hljóðlátar - annað en maður myndi halda af nafninu og upplýsingum frá framleiðandanum. Þær eru kannski allt í lagi en það eru bara til miklu betri viftur fyrir svipaðan pening, Papst, Panaflo, Enermax o.fl.
Sbr. t.d.
http://forums.silentpcreview.com/viewto ... ec+stealth
Sent: Fös 12. Des 2003 02:05
af Castrate
ég er með 6 stykki panaflo viftur í mínum kassa ekkert nema snilldar viftur =)
Sent: Fös 12. Des 2003 02:36
af Snikkari
Castrate skrifaði:ég er með 6 stykki panaflo viftur í mínum kassa ekkert nema snilldar viftur =)
Hvar keyptir þú þær ?
Sent: Fös 12. Des 2003 17:47
af Castrate
félagi minn keypti þær á ebay í fyrra held ég bara svo seldi hann mér þær bara núna í sumar ég veit ekki hverjir eru með panaflo hérna á ísland eða hvort einhver sé með þær hérna á landi
en ef ég væri að kaupa mér viftu í dag þá myndi ég fá mér zalman eða pabst.
Sent: Mið 17. Des 2003 23:55
af Shroom
Vantec er rusl punktur
Sent: Lau 27. Des 2003 13:21
af Icarus
Snikkari, ég á líka Chieftec Dragon og viftugötin eru 80mm
Sent: Lau 27. Des 2003 13:26
af Snikkari
Icarus skrifaði:Snikkari, ég á líka Chieftec Dragon og viftugötin eru 80mm
Viftugötin eru 92mm á mínum.
Svo er bracket að framan sem ég get sett 80mm viftu í.